Fjarðarpósturinn - 10.07.2008, Qupperneq 4
4 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 10. júlí 2008
Verslum í Hafnarfirði!
. . það e r svo s tu t t að fa ra!
Í apríl 1910 birtust eftirfarandi
hugmyndir Sigurgeirs Gísla -
sonar, verkstjóra, í Skuggsjá,
frétta- og sögublaði, sem gefið
var út í Hafnarfirði og gerðu
blaðmenn sér vonir að fólk gæti
eftir 100 ár séð hugsjónir
forfeðr anna í veruleika eða þá
hitt.
„Búið að byggja bæinn suður
að Hvaleyri og vestur að Bala -
kletti, inn að Hraunsholtslæk og
upp að Setbergi. Búið að setja
aflvaka í Hraunsholtslæk til raf -
lýsingar og upphitunar. Allir
Víðistaðir með nærliggjandi
hraun krikum orðnir skógi vaxn ir.
Búið að rífa Linnets fjósið og
tæma safngryfjuna við Ásbúð, og
gera Þorlákstún að renni sléttri
flöt. Byggja hafskipa bryggju
fram af Gestshúsa klöpp inni, og
dýpka höfnina. Enginn kúttari til
með handfæri, allt ein tóm gufu-
og rafurmagnsskip. Menn verða
mikið til hættir að ganga, en
fljúga í þess stað í loftinu í
flugvélum. Þá geta menn talað
bæja milli með þráðlausu áhaldi,
er knýja má með aflinu í hand -
leggnum.
Konur mestmegnis í bæjar -
stjórn, en karlmennirnir elda
graut inn. Búið að byggja stein -
kirkju í undirhamarstúninu og ef
til vill aðra í Víðistöðum. Slétta
mikið til út hraunið og gera um
það beinni vegi en nú eru. - Þá
verð ur líka Sigurgeir dauður!-
Búið að veita Kaldá niður í
Hafnar fjörð. Þá þarf ekki að
senda menn til þess að gæta að
því, hvað um Kaldá verður!
Húsið sem við nú erum í verður
orðið það stórt, að búið verður
að lengja það vestur undir verk -
smiðjuna, sem nú er. Rafur -
magns vagnar ganga daglega
milli Hafnarfjarðar og Reykja -
víkur, og verður þá oft í flutn -
ingnum Rafurmagn á þar til
gerð um ílátum, en því hefir verið
safn að í ljósastöðinni hér.
Brennivín og aðrir áfengir
drykk ir þekkjast ekki nema af
sögunni. Andleg menning hefir
auk ist svo mikið, að menn selja
ekki sannfæringu sína fyrir einn
málsverð.“
Gufu- og rafurmagnsskip
Hugmyndir Sigurgeirs Gíslasonar, verkstjóra árið 1910
Frá hafnarvinnu um miðja síðustu öld.
L
j
ó
s
m
.
:
L
j
ó
s
m
y
n
d
a
s
t
o
f
a
H
e
r
d
í
s
a
r
o
g
G
u
ð
b
j
a
r
t
s
.
Íbúar við Staðarhvamm mót -
mæla harðlega hugmyndum um
bráðabirgðastækkun leikskólans
Hvamms og telja stækkunina
valda aukningu á bílaumferð um
götuna sem er botnlangi. Þá séu
aðeins 38 bílasætði til almennra
nota við Staðarhvamm en nú séu
starfsmenn leikskólans Hvamms
30 og muni fjölga við stækk -
unina.
Segja íbúarnir að bæjaryfir -
völd um hafi verið ljóst hversu
erfitt aðgengið er en segja engar
raun hæfar lausnir hafi verið
lagð ar fram. Krefjast þeir að öll -
um framkvæmdum verði hætt
þar til lausn hafi fundist.
Mótmæla stækkun
leikskóla
Íbúar við Staðarhvamm vilja frestun á bráða -
birgðastækkun þar til aðgengi hefur verið bætt.
L
j
ó
s
m
.
:
G
u
ð
n
i
G
í
s
l
a
s
o
n
Bakaríið Kornið hefur opnað
nýtt bakarí í Hafnarfirði, að
Reykjavíkurvegi 62 þar sem
Oddur bakari var fyrir en Oddur
rekur áfram bakarí við Grensás -
veg.
Dagbjartur Hilmarsson, mark -
aðs stjóri Kornsins segist mjög
ánægður með móttökurnar í
bakaríi Kornsins á Völlum sem
opnað var í janúar 2006 og því sé
bakaríum Kornsins nú fjölgað í
Hafnarfirði. Greinilegt sé að
bæjarbúar séu ánægðir með
vöruúrvalið og hið lága vöruverð
og ekki síst gæðin, enda ekkert
slegið af gæða kröfum að sögn
Dagbjartar.
Dagbjartur býður bæjarbúa
velkomna á Reykjavíkurveginn
og segist hann búast við góðum
viðtökum, þetta sé mjög góður
staður, rétt við Norðurbæinn og
við stórt og vaxandi iðnaðar- og
þjónustusvæði. Opið er virka
daga í báðum bakaríunum í
Hafn arfirði kl. 7.30 - 18, laugar -
daga kl. 8-17 og á sunnudögum
kl. 9-17.
Með þessu nýja bakaríi eru
bakarí Kornsins orðin 11 talsins.
Kornið opnar bakarí
að Reykjavíkurvegi
Keypti af Oddi bakara
L
j
ó
s
m
.
:
G
u
ð
n
i
G
í
s
l
a
s
o
n
Smurstöðin á Reykjavíkurvegi
54 er einn af þeim stöðum sem
Hafnfirskir bíleigendur senni -
lega þekkja best í gegnum tíðina.
Þar hafa verið svo til sömu
andlitin í áratugi og sonur hefur
tekið við af föður.
Þeir Magnús Jóhannsson og
Gunnar Sveinbjörnsson sem
rekið hafa smur stöð ina á Reykja -
víkurvegi 54 hafa nú opnað í
björtu og rúm góðu húsnæði að
Bæjarhrauni 6, baklóð. Þar eru
nú þegar 3 lyftur og þeim mun
fjölga og öll tæki ný og bjóða
þeir félagar við skipta vinum
sínum enn betri þjón ustu en fyrr.
Þeir opnuðu á nýja staðnum 1.
júlí sl. og segja þeir viðbrögðin
hafa verið afar góð og brjálað að
gera. Allar olíur eru nú frá Shell
og er allur dælubúnaður nýr og
af fullkomnustu gerð.
Smurstöðin er opin mánudaga
til þriðjudaga kl. 8-18 og föstu -
daga kl. 8-17. Ekki þarf að panta
tíma en Magnús og Gunnar gefa
nánari upplýsingar í síma
5550330.
Smurstöðin á Reykja víkurvegi
flutt á Bæjarhraunið
Gamla „Esso smurstöðin“ heitir nú Smur 54 og er á nýjum björtum stað
Magnús og Gunnar í nýju smurstöðinni að Bæjarhrauni 6.
L
j
ó
s
m
.
:
G
u
ð
n
i
G
í
s
l
a
s
o
n
L
j
ó
s
m
.
:
G
u
ð
n
i
G
í
s
l
a
s
o
n
Í heyskap í Setberginu
Nýja bakarí Kornsins þar sem Oddur bakari var áður.
. . bæjarb lað Hafn f i rð inga í 25 á r