Fjarðarpósturinn - 10.07.2008, Page 8
8 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 10. júlí 2008
ÞJÓNUSTUVER HAFNARFJARÐAR SÍMI 585 5500
WWW.HAFNARFJORDUR.IS
SKIPULAGS- OG
BYGGINGARSVIÐ
- SUMARLEYFI
Vegna sumarleyfa starfsmanna á skipulags- og
byggingarsviði Hafnarfjarðar geta orðið tafir á afgreiðslu
erinda, en reynt verður að flýta afgreiðslu eftir föngum.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa 16. júlí
fellur niður og næsti fundur skipulags- og byggingarráðs
verður 22. júlí.
Sviðsstjóri skipulags- og byggingarsviðs
Allar tertur
á 950 kr.
föstudag - laugardag - sunnudag
©
F
ja
rð
ar
pó
st
ur
in
n/
H
ön
nu
na
rh
ús
ið
–
0
80
7
Allar tertur
á 1090 kr.
föstudaga - laugard
aga - sunnudaga
Opið mán.-fös
tud. kl. 7.30-1
8
laugardaga kl.
8-17
sunnudaga kl.
9-17
Nú líka á
Reykjavíkurvegi 62
Tjarnarvöllum 15 og Reykjavíkurvegi 62
Opið mán. - föstud. kl. 7.30-18, laugardaga kl. 8-17, sunnudaga kl. 9-17
Allar helgar ..
.. eru tertuhelgar!
Það var fróðlegt að heyra við -
brögð fólks sem var við -
mælendur fjölmiðla um drápið á
ísbjörnunum sem komu á land í
Skagafirði á dögunum.
Þarna er um að ræða
stærsta rándýr jarðar -
innar sem er stór -
hættulegt bæði mönn -
um og búfénaði. Sér -
fróðir aðilar í ná -
granna löndum, eins og
Grænlandi og á Sval -
barða, sem eru vanir
að fást við svona dýr
töldu að viðbrögð okk -
ar hefðu verið hárrétt.
Sama fólkið og fárast yfir
kostnaði ráð herra ríkisstjórnar -
innar við að fljúga á fundi í
útlöndum, finnst það allt í lagi að
eyða tvö- eða þríföldum ferða -
kostnaði þeirra við að bjarga
einu rándýri og flytja það á
heima slóðir, þaðan sem það
kynni væntanlega að koma aftur
að ári liðnu til þess að ógna
lands mönnum. Hvað hefðu þess -
ir „dýravinir“ sagt ef dýrið hefði
drepið einn eða fleiri landsmenn
og étið þá vegna þess að við -
brögð okkar hefðu verið of væg?
Það kom nefnilega í ljós eftirá að
á sömu slóðum og fyrra rándýrið
hafðist við voru menn á ferli sem
vissu ekkert af dýrinu og hefðu
ekki getað varist árás þess ef til
hefði komið. Sem betur fer, af
veðurfarsástæðum, vissi dýrið
heldur ekkert af þeim.
Þetta leiðir hugan að ýmsum
kröfum sem fólk gerir til sam -
félagsins án þess að hugsa um
hvað það kostar. Við sem erum
fámenn þjóð í stóru
landi þurfum að bera
hærri kostnað af sam -
félagslegri þjónustu
en þjóðir sem eru
miklu stærri en við.
Oft er kvartað yfir
íslenska vegakerfinu,
en sannleikurinn er sá
að það er stórkostlegt
afrek af hálfu fá -
mennr ar þjóðar að
eiga slíkt vegakerfi. Það kostar
tíu sinnum meira á hvern íbúa á
Íslandi að gera einn kílómetra af
vegi með bundnu slitlagi heldur
en það kostar t.d. íbúa Þýska -
lands.
Við kvörtum yfir heilbrigðis -
kerfinu okkar sem er reyndar
mjög gott, en gæti verið betra, en
líður fyrir fjárskort og fámenni.
Þetta eru dæmi um ósanngjarna
gagnrýni.
Hins vegar mætti gagnrýni á
skattkerfi okkar verið háværari
og harðari. Sem dæmi skal nefnt
að lífeyrisþegi sem hefur um eitt
hundrað þúsund krónur á mánuði
í tekjur (100.000) greiðir 36% af
þessum tekjum sínum í skatta. Á
meðan greiðir fjármagns tekju -
þegi, sem ekki hefur launatekjur
en e.t.v. milljónir á mánuði í arð,
að eins 10% af sínum tekjum í
skatt og það eru reyndar aðeins
10% af vöxtum en ekki þeim
upp hæðum sem hann á í banka.
Reynd ar greiðir lífeyrisþeginn
einn ig fjármagnstekjuskatt ef
hann er svo lánsamur að hafa
getað aurað saman á lífsleiðinni
til að eiga fyrir útförinni sinni.
Þetta er réttlætt með því að ef
fjármagnstekjuskattur væri hærri
myndu þessir aðilar flytja til
útlanda þar sem hagur þeirra
væri betri. Heyr á endemi! Fjár -
magnstekjuskattur í löndum t.d.
Evrópusambandsins og í BNA er
frá 15 til 25%! Ég segi nú bara
leyfum þeim þá að fara. „Far vel
Frans“ og „good riddance“. Þetta
útleggst á vorri tungu: Góða ferð,
gott að að vera laus við ykkur.
Enn eitt dæmið um vitleysuna
í okkar stjórnsýslu er hvernig fá -
mennum hópi leyfist að einoka
lífeyrissjóði landsmanna og
stjórna þeim nánast eftir eigin
geðþótta og án þess að ráðgast
við eigendurna sem eru þeir sem
greiða gjöld í sjóðina. Hvernig
væri að eigendur lífeyris sjóð -
anna færu að vakna til lífsins og
taka málin í eigin hendur.
Ég segi einnig við þá sem
sífellt eru að kvarta yfir ranglæti
yfirvalda, hvort sem er í héraði
eða á landsvísu, þið getið sjálfum
ykkur um kennt. Þið eigið að
veita þessum yfirvöldum aðhald
og það gerið þið í kosningum,
ekki í skoðanakönnunum. Síðan
er það spurning hvor sé betri ,
brúnn eða rauður, grænn eða
blár. Því verðið þið sjálf að svara.
En því miður eru allt of margir
litblindir.
Höfundur er fv. flugumf.stjóri.
Ísbjarnarblús
Hermann
Þórðarson
Rakel 869 7090 • Sindri 861 7080 • www.kolbrunrakel.is
Næring + Hreyfing + Fræðsla = Árangur
Sjálfstæðir dreifingaraðilarHERBALIFE
Opið mán.-fös
tud. kl. 7.30-1
8
laugardaga kl.
8-17
sunnudaga kl.
9-17