Fjarðarpósturinn - 10.07.2008, Blaðsíða 11
Úrslit:
Fótbolti
Karlar:
Keflavík - FH: 0-1
ÍH - Völsungur: 1-1
Haukar - Þór: 1-0
Keflavík - FH: 3-1 (bikar)
Haukar - HK: 1-0 (bikar)
Konur:
FH - Haukar: (miðv.dag)
GRV - Haukar: 5-1
GRV - FH: 1-2
Næstu leikir
Fótbolti
10. júlí kl. 20, Stjörnuvöllur
Stjarnan - Haukar
(1. deild kvenna, A-riðill)
11. júlí kl. 20, Ásvellir
ÍH - Magni
(2. deild karla)
13. júlí kl. 20, Kaplakriki
FH - Fylkir
(úrvalsdeild karla)
15. júlí kl. 20, Sauðárkrókur
Tindastóll - ÍH
(2. deild karla)
16. júlí kl. 20, Valbjarnarvöllur
Þróttur R. - FH
(1. deild kvenna, A-riðill)
16. júlí kl. 20, Ásvellir
Haukar - ÍR
(1. deild kvenna, A-riðill)
Íþróttir
Fimmtudagur 10. júlí 2008 www.fjardarposturinn.is 11
FH úr leik í
bikar -
keppninni
Haukar slógu út
úrvalsdeildarlið
FH tapaði 1-3 fyrir Keflavík í
16 liða úrslitum bikarkeppni KSÍ
og eru bikarmeistararnir því úr
leik.
1. deildarlið Hauka gerði sér
lítið fyrir og sló út HK sem
verm ir neðsta sæti úrvals deild -
arinnar og leika við Fylki í 8 liða
úrslitum og verður leikið á
Ásvöllum 24. júlí kl. 19.15.
Bikarmeistaramótið í
sundi
SH í 2. og
4. sæti
Sundfélag Hafnarfjarðar varð í
4. sæti í 1. deild kvenna á bikar -
meistaramótinu í sundi og
karlaliðið varð í 2. sæti.
ÍRB, Íþróttabandalag Reykja -
nessbæjar sigraði í 1. deild
kvenna og 1. deild karla.
Stúlknasveit SH setti aldur -
flokkamet í 4x100 m skriðsundi
og bætti met sitt í 4x100 m
fjórsundi.
FH-ingar á toppnum!
FH-Fylkir
á sunnudaginn kl. 20
Vegna framkvæmda á Krikanum, er aðal aðgengi að svæðinu að norðanverðu
(við bensínstöð Atlantsolíu). Til að komast í gömlu stúkuna er gengið meðfram Risanum.
Ný malbikuð bílastæði inni á svæðinu!
F
j
a
r
ð
a
r
p
ó
s
t
u
r
i
n
n
0
8
0
6
–
©
H
ö
n
n
u
n
a
r
h
ú
s
i
ð
e
h
f
.
Komið í Kaplakrika
og sjáið skemmti -
legan fótboltaleik.
Fylkir hefur ekki fengið stig í s
íðustu 5 leikjum
í deildinni og vilja allt gera til a
ð sigra, en FH
má ekkert stig missa í toppbar
áttunni og mun
örugglega leika fjörugan sókna
rleik.
Hafnfirðingarnir Eyjólfur
Páls son og Halldór Halldórsson
hafa opnað Fiskbúðina Hafið -
fiskiprinsinn á Reykjavíkurvegi
68 en fyrir reka þeir fiskbúð að
Hlíðarsmára 8 í Kópavogi.
Að sögn þeirra félaga er þetta
fiskverslun í nýjum stíl, „gour -
met“ fiskverslun og allt lagt í
sölurnar til að hafa ferskasta hrá -
efnið og góða þjónustu.
Hafið býður upp mjög gott
úrval fiskrétta, meira en gerist í
flestum fiskbúðum og nú er
marineraði grillfiskurinn mjög
vinsæll. Má þar nefna prinsa -
spjót, pinna með þremur mis -
mund andi fisktegundum, allar í
mismunandi marineringu. Þá
bjóða þeir félagar úrval af fersk -
um fiski og gott úrval af góðri
frystri vöru, stóran humar, tígris -
rækjur, rauðan túnfisk og stóran
og lítinn hörpudisk svo eitthvað
sé nefnt.
Humarsúpan sem þeir selja er
geysilega vinsæl, tilbúinn grunn -
ur sem þynntur er með rjóma eða
kóksmjól og kryddað eftir smekk
og fiski bætt í að eigin vali.
Verslunin er opin alla virka
daga kl. 10-18.30 en nánari
upplýsingar um fyrirtækið má
finna á www.hafid.is
Fiskiprinsinn opnar
Enn bætist í góða flóru fiskbúða - grillfiskur!
Halldór Halldórsson og Eyjólfur Pálsson eigendur Hafsins.
Árni Gunnlaugsson, hæstar -
rétt ar lögmaður og fv. bæjar full -
trúi hefur samið um 50 lög í
gegnum tíðina sem aðrir hafa
fengið að njóta. Hann gaf út 24
lög í bókinni „Þú fagra vor“ sem
kom út 1988 og 20 lög „Látum
sönginn óma“ árið 1991.
Nú hefur hann gefið út átta
sönglög, útsett fyrir karlakór öll í
útsetningu Eyþórs Þorlákssonar
en hann hefur útsett fjölda laga
Árna. Árni hefur einnig samið
sum ljóðanna sem fyrr. Í heftinu
eru einnig nótur að píanóundir -
leik. Heftið er gefið út í tilefni af
100 ára kaupstaðarafmæli Hafn -
ar fjarðar.
Árni hefur ekki látið þetta
nægja því nú stendur yfir í
Hafnarborg sýning á myndum
hans af Hafnfirðingum sem
koma flestar úr bókum hans
Fólkið úr Firðinum sem komu út
um 1990. Þá hefur Árni gefið út
tvo geisladiska, „Þú fagra vor“
árið 1998 og „Kveðjan mín“ árið
2003.
Átta sönglög fyrir
karlakór
Árni Gunnlaugsson gefur út eigin lagasmíð
L
j
ó
s
m
.
:
G
u
ð
n
i
G
í
s
l
a
s
o
n