Fjarðarpósturinn


Fjarðarpósturinn - 18.09.2008, Side 2

Fjarðarpósturinn - 18.09.2008, Side 2
„Ef þú ert ekki með oss, ertu á móti oss.“ Þetta kom upp í huga minn er ég hlustaði á umræður um vatnssamning á bæjarstjórnarfundi á þriðju - dag. Kallaði Gunnar Svavarsson eftir því að Sjálf - stæðismenn sætu hjá frekar en að greiða atkvæði á móti samningnum. Af hverju eiga bæjarfulltrúar að sitja hjá? Ég spyr enn. Voru þeir ekki kosnir til að hafa skoðun? Við höfum ekkert við fólk í bæjarstjórn að gera sem ekki hefur skoðun og því hljóta hjásetur í bæjarstjórn að heyra til undan - tekn inga. Aðeins einn sat hjá, fulltrúi Vinstri grænna en þó virtist hann fagna samningnum. Sjálf stæðis menn greiddu atkvæði gegn samn ingnum og töldu samningsdrögin vera enn ófullnægjandi. Vatnssamningurinn var samningur en það mátti halda að samið hafi verið um heitt vatn, svo mikill hiti var í mönnum. Skilti og áróður virðist skipta máli þvert á skoðanir margra foreldra í Hvaleyrarskóla en nýlegar hraðamælingar lögreglu sýndu að ökumenn í nágrenni skólans óku hægar en við aðra skóla í bænum og flestir óku á löglegum hraða. Þessu ber að fagna og sannar að ekki þarf að loka götum eða beita öðrum álíka aðgerðum til að auka öryggi barna. Enn ítreka ég að það það eru aðallega íbúar í hverf - unum sam aka fram hjá skólunum og þeir hafa öryggi barnanna í hendi sér. Það er gott að fólk er vakandi og tilbúið að vekja athygli annarra á umferðaröryggi og mætti sjá meira af því. Guðni Gíslason 2. Hvammur leikskóli, stækkun Lagður fram úrskurður Úrskurð - arnefndar skipulags- og bygging - ar mála um kæru vegna veitingar stöðuleyfis dags. 04.09.2008. Lagðir fram minnispunktar frá kynningarfundi á niðurstöðu á úrskurði Úrskurðarnefndar skipu - lags- og byggingarmála dags. 09.09.2008. Lagt fram skriflegt samkomulag bæjarstjóra við íbúa hverfisins varðandi tímabundna staðsetningu lausra kennslustofa á svæðinu, sem gert var á þeim fundi. Skipulags- og byggingarráð fel - ur skipulags- og byggingarsviði að skoða framhald málsins með hliðsjón af úrskurði Úrskurðar - nefndar skipulags- og byggingar - mála. Lögð er áhersla á að hraða málinu eftir föngum. 3. Austurgata 27b og Austurgata 29b, úttekt Franklín Stiner óskar formlega með bréfi dags. 02.09.2008 eftir úttekt á lóðum og fasteignum Aust ur götu 27b og 29b. Skipulags- og byggingarráð felur skipulags- og byggingarsviði að framkvæma umbeðna úttekt. 2. Frístundir.is, styrkbeiðni Lagt fram erindi frá frístundir.is dags. 9. sept. s.l., þar sem farið er fram á styrk og samstarf vegna upplýsingabæklings á erlendum tungumálum um frístundir á höfuð borgarsvæðinu. Íþrótta- og tómstundanefnd samþykkir að styrkja erindið um kr. 100.000 og felur íþróttafulltrúa afgreiðslu þess. 3. Pílukast, styrkbeiðni Lagt fram erindi frá Örnu Rut Guðlaugsdóttur ódags., þar sem óskað er eftir styrk vegna þátttöku á Norðurlandamóti í maí s.l.. Íþrótta- og tómstundanefnd samþykkir að veita styrk að upp - hæð kr. 15.000 og felur íþrótt - fulltrúa afgreiðslu þess. 17. Lionsklúbbur Hafnarfjarðar, Gaflaradagur, styrkbeiðni Lagt fram erindi Lionsklúbbs Hafnarfjarðar dags. 1.9.2008 þar sem óskað er eftir stuðningi við fjáröflun klúbbsins. Bæjarráð samþykkir styrk að upphæð kr. 150.000 sem takist af fjárveitingu bæjarráðs til styrk - veitinga, bókhaldslið 21-815. 3. Hjúkrunarheimili á Völlum Lögð fram tvö bréf frá félags- og tryggingamálaráðuneytinu, dags. 20. ágúst sl., varðandi ný hjúkrunarrými í Hafnarfirði og víðar á höfuðborgarsvæðinu. Óskað er eftir því að Hafnar - fjarðarbær tilnefni tvo fulltrúa til þess að vinna að frekari framgangi verkefnisins í samvinnu við félags- og trygginga málaráðu - neytið og Framkvæmdasýslu ríkisisins. Lagt fram afrit af bréfi bæjarstjóra, dags. 5. sept. sl., þar sem fram kemur að bæjar - fulltrúarnir Almar Grímsson og Guðmundur Rúnar Árnason verða áfram fulltrúar bæjarins í þessum viðræðum. 2 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 18. september 2008 1983-2008 Útgefandi: Keilir ehf. útgáfufélag, kt. 480307-0380 Fjarðarpósturinn, Bæjarhrauni 2, 220 Hafnarfirði Vinnsla: Hönnunarhúsið ehf., umbrot@fjardarposturinn.is Ritstjóri og ábm.: Guðni Gíslason Ritstjórn: 565 4513, 896 4613, ritstjorn@fjardarposturinn.is Auglýsingar: 565 3066, auglysingar@fjardarposturinn.is Prentun: Steinmark ehf. Dreifing: Íslandspóstur ISSN 1670-4169 – Vefútgáfa: ISSN 1670-4193 www.fjardarposturinn.is Víðistaðakirkja Sunnudagurinn 21. september Sunnudagaskóli kl. 11:00 Barnastarf sunnudagaskólans hefst á sunnudaginn í loftsal kirkjunnar. Fjölbreytt og skemmtileg dagskrá fyrir alla fjölskylduna. Verið með frá upphafi! Guðsþjónusta kl. 11:00 Prestur: Sr. Kjartan Jónsson Einsöngur: Anna Sigríður Helgadóttir 8-9 ára starf á mánudögum kl. 15:30 10-12 ára starf á mánudögum kl. 17:00 Kyrrðarstundir á miðvikudögum kl. 12:00 Súpa og brauð í safnaðarheimilinu á eftir. Opið hús fyrir eldri borgara á miðvikudögum kl. 13:00 Spil, spjall og kaffiveitingar Foreldrastundir á fimmtudögum kl. 13.00 Gefandi samvera fyrir heimavinnandi foreldra. www.vidistadakirkja.is Allir velkomnir! Bragi J. Ingibergsson, sóknarprestur Sýningar í Bæjarbíói Á laugardaginn kl. 16 sýnir Kvik - mynda safn Íslands síðari hluta myndarinnar 1900 eða Novecento (1976) í leikstjórn ítalska leikstjórans Bernardo Bertolucci. Á þriðjudaginn kl. 20 verður sýnd kvikmyndin Belle de jour (1967) eftir Luis Bunuel. Myndin byggir á bók Joseph Kessel og er sérkennileg blanda af raunveruleika og draumsýnum. Eitt af aðalsmerkjum Bunuels sem kvikmyndahöfundar er framsetning hans á draumum í kvik - myndum enda á hann sjálfur rætur að rekja til súrrealismans á fyrri hluta 20. aldar. Myndin segir frá ungri konu, Severine, sem virðist hafa allt til alls í lífinu og er nýlega gift, þegar hún lætur undan ómótstæðilegri löngun sinni og ræður sig á snyrtilegt hóruhús í París á milli kl. tvö og fimm á daginn. Myndin skipar sér í flokk erótískra mynda með því að ganga aldrei alla leið heldur skilja nóg eftir fyrir ímyndunarafl áhorfandans. Sölusýning í Gallerí Syrpu Gallerí Syrpa, Strandgötu 39 er með sölusýningu á 38 listaverkum eftir listamenn sem flestir hafa tengsl við Hafnarfjörð; Rúnu, Guðmund Karl, Eirík Smith, Kristberg, Godda og Bjarna H., Kristjönu Arndal og Hjördísi Frímann. Galleríið var opnað í sumar, stendur í miðbæ Hafnarfjarðar og er á annari hæð gegnt Hafnarborg, menningar-og listastofnunar Hafnarfjarðar. Opnunartími er þriðjudaga - föstudaga kl. 12 – 17. Laugardaga kl. 10 - 14. Sýningin stendur til 3. október. Fríkirkjan Sunnudagurinn 21. september Sunnudagaskólinn kl. 11 Kvöldguðsþjónusta kl. 20 Unglingakórinn æfir mánudaga kl. 17.30 Barnakórinn æfir miðvikudaga kl. 17. Sporin 12, Andlegt ferðalag fimmtudagkvöld kl. 20 í safnaðarheimlinu www.frikirkja.is Allir velkomnir www.fjardarposturinn.is

x

Fjarðarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjarðarpósturinn
https://timarit.is/publication/945

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.