Fjarðarpósturinn


Fjarðarpósturinn - 18.09.2008, Síða 8

Fjarðarpósturinn - 18.09.2008, Síða 8
Á fundi bæjarstjórnar þann 2. september og aftur á fundi fjöl - skylduráðs þann 10. september sl. lýsti ég yfir áhyggjum mínum af niðurstöðum könn - unar um hagi og líðan ungs fólks í Hafnar - firði sem sýna að hafn - firskar stúlkur stunda skipulagt íþrótta- og tóm stundastarf í minnk andi mæli á milli ára. Brottfall stúlkna hæst í Hafnarfirði Skv. niðurstöðunum er hlutfall hafnfirskra stúlkna í 9. og 10. bekk sem stunda skipulagt íþrótta- og tómstundastarf 1-3 sinnum í viku það lægsta á landinu eða 14% samanborið við 21% á landinu í heild. Einungis 29% stúlkna stunda íþróttir og tómstundastarf 4 sinnum eða oftar í viku. Sömuleiðis fækkar þeim hafnfirsku stúlk um sem segjast taka þátt í skipulögðu tóm - stundastarfi vikulega eða oftar úr 46% í 40% milli áranna 2006 og 2008 en lands meðaltalið er 51% og hækkar milli ára. Á sama tíma eykst þátttaka hafnfirskra stráka í skipulögðu íþrótta- og tómstundastarfi milli ára. Þessar niðurstöður gefa vísbendingar um að framboð á skipulögðu íþrótta- og tómstundastarfi í Hafnarfirði höfði meira til stráka en stúlkna. Varaformaður fjöl skylduráðs hefur hins vegar opin berlega viðrað þá skoðun sína að hafnfirskar stúlkur vilji frek ar vinna á kassa í stór markaði en stunda íþróttir og taka þátt í tómstundastarfi. Öll börn eiga að njóta Brottfall stúlkna úr íþrótta - starfi var áhyggjuefni í Hafnar - firði árið 2003 en niðurstöður úttektar sem Margrét Gauja Magnús dóttir vann fyrir bæjar - yfirvöld það árið sýndu að brott - fall stúlkna úr íþróttum á ákveðnu aldursbili var töluvert hærra en drengja. Margar hug - myndir um aðgerðir komu fram í kjölfarið en 5 árum seinna er brottfall stúlkna úr íþróttum enn mjög hátt. Fjölmargar rannsóknir hafa leitt í ljós að iðkun íþrótta og líkamsræktar sé holl og dæmi um heilsusamlegan lífsstíl sem dregur úr líkum á því að ungl - ingar tileinki sér þá lifnaðarhætti sem fylgja notkun vímuefna. Sömuleiðis hefur verið sýnt fram á að hreyfing og þjálfun líkam - ans tengist námsárangri með jákvæðum hætti. Aðgerða er þörf Bæjaryfirvöld bera mikla ábyrgð á því að tryggja að öll hafnfirsk börn að 18 ára aldri fái notið heilbrigðs lífsstíls. Í ljósi þessara niðurstaðna er brýnt að bæjaryfirvöld leiti svara við því af hverju hafnfirskar unglings - stúlkur stunda íþróttir og tómstundastarf í minna mæli en jafnaldrar þeirra annars staðar á landinu og komi fram með tillögur að úrbótum sem tryggja að stúlkur jafnt sem strákar í bæjarfélaginu fái notið upp - byggilegs félag- og íþróttastarfs. Höfundur er fyrsti varabæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokks og fulltrúi í fjölskylduráði 8 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 18. september 2008 1983-2008 Stór Margaríta Líkamsræktarstöðin Hress er nú á sínu 21. starfsári. Það voru þau hjónin Anna Haraldsdóttir og Hallgrímur Ragnarsson sem stofnuðu stöðina en í dag eiga og reka stöðina Linda Björk Hilmarsdóttir, sem hefur starfað þar öll árin og Jón Þórðarson maður Lindu. Stöðin hóf starfsemi sína að Bæjarhrauni 4 en fluttist svo árið 1997 á núverandi stað að Dalshrauni 11. Árið í ár hefur verið viðburðar - ríkt fyrir Hress en fyrr á árinu sameinaðist starfsemi Techno - sport stöðinni og ný stöð var opn uð í húsnæði Ásvallalaugar. Í samtali við Fjarðarpóstinn segir Linda að starfsemin í Ás - vallalaug hafi farið vel af stað og vonum framar. Þar er glæsilegur, bjartur tækjasalur með góðu útsýni og leikfimisalur með útsýni út yfir sundlaugina. Linda segir ánægjulegt að sjá hversu vel íbúar á Völlunum hafi tekið stöðinni, ekki síst fjölskyldufólk sem mæti kl. 6 á morgnana og fólk sem vill ekki þurfa að aka langt í líkamsrækt. „Við munum nota umhverfið, hvetja fólk til að skokka og leiðarlýsingar verða í móttökunni og einhverjar uppá - komur,“ segir Linda og bætir við að stöðin eigi eftir að mótast betur á næstu vikum. Fólk sem kemur í stöðina í Ásvallalaug fær aðgang að sund - lauginni, heitum pottum og gufubaði en viðskiptavinir Hress geta valið að mæta þar eða á Dalshrauninu. Linda segir stolt stöðvarinnar vera hóptímana sem stöðin hefur ávallt byggst á. Í hóptímunum er notast við Les Mills æfingakerfi, viðurkennt kerfi sem Hress hefur notað til 10 ára, lengst allra hér landi. Annars býður Hress upp á velútbúna tækjasali, nudd og sauna, pilates, stöðvaþjálfun, karlaátak, konuátak, tíma fyrir stráka/stelpur 10-16 ára og rope - jóga og jóga sem nýtur mikilla vinsælda núna. „Þetta er fjölskyldurekin stöð sem við reynum að hafa heim - ilis lega og ég er mjög ánægð með að fólk er duglegt að gefa okkur ráð,“ segir Linda. Nýja stöðin á Ásvöllum er opn uð kl. 5.50 á morgnana og er opið til kl. 21 mánudaga til fimmtu daga en til kl. 20 á föstu - dögum. Þá er opið frá kl. 8-16 á laugardögum og kl. 9-16 á sunnu dögum en frá 21. septem - ber verður lokað á sunnudögum á Dalshrauninu. Hóptímarnir eru í hávegum hafðir hjá Hress. Jón Þórðarson og Linda Björk Hilmarsdóttir ásamt Söru Dögg, Benediktu og Jóhönnu við opnunina. Sund, sauna og rennibraut Hress opnar líkamsræktarstöð í Ásvallalaug Fjölmargir mættu við opnunina og prófuðu tækin. Hvar eru unglingsstúlkurnar okkar í Hafnarfirði? María Kristín Gylfadóttir

x

Fjarðarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjarðarpósturinn
https://timarit.is/publication/945

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.