Fjarðarpósturinn


Fjarðarpósturinn - 18.09.2008, Page 9

Fjarðarpósturinn - 18.09.2008, Page 9
www.fjardarposturinn.is 9Fjardarpósturinn 25 ára Fimmtudagur 18. september 2008 Aðalfundur Vinabæjafélagsins Hafnarfjörður/Cuxhaven Mætið og takið með ykkur gesti og nýja félaga! Stjórnin verður haldinn í Selinu, húsi Skógræktarfélags Hafnar fjarðar við Kaldárselsveg, miðvikudaginn 24. september kl. 20.00 Dagskrá að hætti Cux-vina! Alls sóttu 43 um stöðu for - stöðu manns Hafnarborgar sem auglýst var fyrr í sumar, 31 kona en aðeins 12 karlar. Sextán umsækjenda eru búsettir í Hafn - arfirði. Skv. heimildum Fjarðarpóstins voru 7 ein stakl ingar skoðaðir nánar, 5 konur og 2 karlar. Mælt var með Rakel Halldórsdóttur, fram kvæmda stjóra Safnaráðs en hún dró umsókn sína til baka og var Ólöf Kristín Sigurðardóttir ráðin en hún er deildarstjóri fræðslu deildar Listasafns Reykja víkur. Ólöf er M.A. í list og stjórnun frá School of the Art Insti tute í Chicago og B.A. í lista sögu og heimspeki frá Há - skóla Íslands. Ólöf Kristín mun hefja störf 1. október nk. en hún tekur við starfinu af Pétrúnu Pétursdóttur sem gegnt hefur starfinu frá stofnun safnsins fyrir 25 árum síðan. Nýr forstöðumaður Hafnarborgar Ólöf Kristín Sigurðardóttir ráðin Stúlkurnar í FH urðu á sunnudaginn bikarmeistarar í sínum aldursflokki og vörðu þar með titilinn frá því á síðasta ári. Þær fór frekar erfiða leið í úrslitaleikinn unnu bæði Breiða - blik og KR í hörku leikjum. Leikurinn á sunnudaginn fór fram á Kaplakrikavellinum við frekar erfiðar aðstæður blautur og þungur völlur. Kvennaráð FH hafði veg og vanda við undir - búning leiksins og fóru stelp - urnar í te og ristað brauð heim til for manns kvennaráðs FH Helgu Friðriksdóttur síðan var haldið í Krikann. Liðin voru svo kynnt af Árna Guðmundssyni og fórst honum það einstaklega vel úr hendi. FH byrjaði leikinn af miklum krafti og skoruðu þrjú mörk í fyrri hálfleik. FH stelpurnar mættu hálf værukærar til leiks í seinni hálfleik því þær rauð - klæddu skoruðu tvö mörk strax í upphafi seinni hálfleiks, staðan var því 3-2 FH í vil. FH létu þetta samt ekki á sig fá og skoruðu tvö mörk til viðbótar og endaði leikurinn því 5-2 fyrir FH. Vert er að minnast þess að Aldís Kara Lúðvíksdóttir skoraði eitt fall - egasta mark sem sést hefur í Krik anum þetta sumarið. Aldís sem gjaldgeng er í 4. flokki félags ins fékk boltann við mið - línu og eins og alvöru sókn ar - manni sæmir setti hún stefn una beint í átt að marki Vals manna. Svighreyfingar henn ar sem Al - berto Tomba hefði verið stoltur af komu henni svo í gott skotfæri sem hún nýtti með því að þruma boltanum í Vinkil frænda og sigurinn þar með innsiglaður. FH strákarnir sigursælir FH-ingar tryggðu sér á mánu - daginn Íslands meistaratitilinn í 3. flokki karla með 2-0 sigri á Tindastóli/Hvöt á Skalla gríms - velli í Borgarnesi og skoraði Kristján Gauti Emilsson bæði mörk FH í fram lengingu. Þar með er FH Íslandsmeistari bæði í A- og B-liðum en B-liðið tryggði sér titilinn á föstudag með 4-3 sigri á Fjölni á Kaplakrika þar sem Orri Kekic skoraði öll fjögur mörk FH. FH Íslandsmeistari og bikar - meistari í 3. flokki í fótbolta FH stelpurnar bikarmeistarar og strákarnir tvöfaldir Íslandsmeistarar Stoltar stúlkurnar ásamt þjálfurum og aðstoðarfólki. L j ó s m . : J . L o n g L j ó s m . : K r i s t í n A r n a r s d ó t t i r B-lið 3. flokks FH Íslandsmeistarar eftir sigur á Fjölni. Busavígsla Sl. fimmtudag vor nýnemar boðnir velkomnir í Iðnskólann með óvissuferð í Drenalín - garðinn. Var nýnemum ásamt nemendaráðinu skipt niður í hópa og tókust hóparnir á við ýmis verkefni sem reyndu á traust og samvinnu. Félagslífsfulltrúinn, Gunn ar Már Antonsson, var al sæll eftir velheppnaðan dag og vonaðist til að þessi nýbreytni yrði tekin til fyrirmyndar á komandi árum við skólann.

x

Fjarðarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fjarðarpósturinn
https://timarit.is/publication/945

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.