Fjarðarpósturinn - 18.09.2008, Side 11
Fólki á öllum aldri gefst kostur
á því að stunda badminton sem
líkamsrækt hjá Badmintonfélagi
Hafnarfjarðar í Íþróttahúsinu við
Strandgötu enda er badminton
sögð bæði skemmtileg og góð
hreyfing sem hentar flestum.
Framboð á tímum fyrir fullorðna
hefur hinsvegar verið takmarkað
en fyrir tveimur árum síðan byrj -
aði Badmintonfélagið að bjóða
uppá badminton fyrir fullorðna
með leiðbeinenda og voru við -
tökurnar frábærar. Tímarnir hafa
verið mjög vin sælir og því hefur
verið ákveðið að bæta við.
Fyrir byrjendur og styttra
komna eru í boði tveir tímar með
þjálf ara, á mánudögum kl.
20.20-21.10 annarsvegar og kl.
21.10-22.00 hinsvegar. Mjög
vanir og lengra komnir spila á
mánudögum kl. 19.10-20.20.
Einnig er hægt að fá tíma án
þjálfara þar sem 2-4 leigja sér
völl saman og ennþá er
möguleiki á að komast að.
Skráning fer fram hjá Sigurði
Þorsteinssyni í síma 847 6015 og
á tölvupóstfangið bhbad min -
ton@ hotmail.com. Tímatöflu og
fl. má sjá á http://bh.sidan.is/.
Góð samverustund fyrir
foreldra og börn
Alla sunnudaga kl. 14.30-
15.20 stendur félagið fyrir
íþrótta skóla fyrir 3-5 ára börn og
foreldra þeirra í Íþróttahúsinu
við Strandgötu. Reyndir þjálfarar
stjórna leikjum og æfingum sem
hafa það að markmiði að efla
hreyfiþroska barnanna og styrkja
þau. Bæði eru æfingar með
badmintonspöðum og kúl um auk
almennra leikja og þrauta. Í
Íþróttaskóla BH fylgja for eldrar
börnum sínum í tím anum og eiga
góða sam verustund saman.
Skráning í Íþróttaskóla BH fer
fram hjá Önnu Lilju í síma 868
6361 og á tölvupóstfangið
bhbadminton@hotmail.com.
Fjardarpósturinn 25 ára Fimmtudagur 18. september 2008 www.fjardarposturinn.is 11
Sendibílaþjónusta Hafnarfjarðar
STÓRIR BÍLAR
Matti 692 7078
Jón Þ. 899 7188
MILLISTÓR BÍLL
Baldur 659 1047
OPIÐ ALLA DAGA
LÍTILL BÍLL
Óli Pétur 892 5559
Búslóðaflutningar, píanóflutningar,
allir almennir flutningar. Aukamenn ef óskað er.
Föst tilboð á ferðir út á land!
8
• 3ja herbergja íbúðir
• Iðnaðarhúsnæði, 104, 110 og 183 m²
• Skrifstofuherbergi
• Íbúðarherbergi
Ungir sem aldri í badminton BRIDGEFÉLAG
HAFNARFJARÐAR
HAUST 2008:
Fyrstu 4. kvöldin verður spilað einskvölda
tvímenningur:
15. sept., 22. sept., 29. sept., 6. okt.
A. Hansen tvímenningur 3ja kvölda:
13. okt., 20. okt., 27. okt.
Tveggja kvölda tvímenningur:
3. nóv. og 10. nóv.
Tveggja kvölda hraðsveitakeppni:
17. nóv. og 24. nóv.
Bridgefélag Selfoss kemur í heimsókn til okkar
laugardaginn 22. nóvember.
Aðalsveitakeppnin byrjar:
1. des. og 8. des.
Jólagleði:
15. desember
Jólamót Bridgefélags Hafnarfjarðar verður
haldið mánudaginn 29 des.
A.T.H
Nýjung verður hjá Bridgefélagi Hafnarfjarðar í ár, þar
sem stjórnin hefur ákveðið að bjóða uppá byrjendariðil,
þannig að allir þeir sem hafa áhuga að mæta og prufa
hvernig er að spila keppnisbridge eru hjartanlega
velkomnir. Við vitum að það er stundum erfitt að taka
skrefið að mæta, en þegar fólk er komið á staðinn er
ekkert aftur snúið, því þetta er bara gaman.:)
Spilað er á mánudagskvöldum í Bridgefélagi
Hafnarfjaðar að Flatahrauni 3.
A.T.H Spilamennska hefst stundvíslega kl 19.00 spilagjaldið er 800
kr. og 400 kr. fyrir byrjendur og eldri borgara.
Frekari upplýsingar
gefur formaður Bridgefélags Hafnarfjarðar:
Erla Sigurjónsdóttir, sími 565 3050 / 659 3013
FM-hús ehf.