Fjarðarpósturinn - 08.01.2009, Page 1
Heilbrigðisráðherra tilkynnti í
gær að í hagræðingarskyni yrði
St. Jósefsspítali yrði lagður niður
í núverandi mynd á næstu mán -
uðum. Skurðstofurekstur yrði að
mestu færður til Reykjanesbæjar
og önnur starfsemi sameinist
Landspítalanum.
Áætlað er að spara 750 millj.
kr. á SV horninu og sagði
Guðlaugur Þór Þórðarson að
ljóst væri að meiri hagræðing
væri af stærri einingum en
minni. Berglind Ásgeirsdóttir
ráðu neytisstjóri sagði skurð -
stofurnar á St. Jósefsspítalanum
gamlar og úreldar en yngri
skurðstofan er frá 1994.
Ekki vildi ráðherrann svara því
hversu hátt hlutfall sjúklinga á
skurðstofunni í Reykjanesbæ
kæmu annarsstaðar frá né hversu
háar fjárhæðir spöruðust beint
við að færa rekstur sem nú er á
St. Jósefsspítala. Ljóst er að ekki
á að minnka þjónustu og reyndar
sagði ráðherra að markmiðið
væri að bæta þjónustuna. Heild -
ar sparnaður í skipulags breyt ing -
um sem byggðar eru á lögum um
heilbrigðisþjónustu frá 2007 eru
áætlaðar 6,7 millj. kr. en ekki
sagði ráðherra að til uppsagna
kæmi en alltaf væri einhver
hreyfing á starfsfólki.
Starfsfólk spítalans fjölmennti
á Hilton hótelið til að hitta
ráðherrann eftir fundinn en hann
mælti sér mót við fólkið í dag,
fimmtudag. Fólkið var mjög reitt
og sagði fásinnu að hægt væri að
spara með þessum hætti.
Árni Sverrisson, forstóri St.
Jósefsspítala - Sólvangs sagðist
eðlilega brugðið en tækifæri
mætti þó lesa úr þessum hug -
myndum. Hins vegar væri mjög
mörgum spurningum ósvarað.
Undirbúningur er hafinn að
undirskriftarsöfnum gegn lokun
spítalans og er Gunnhildur
Sigurðardóttir, fv. hjúkrunar -
forstjóri í fremstu röð þeirra sem
að því vinna.
ISSN 1670-4169
Vefútgáfa: ISSN 1670-4193
w w w. f j a r d a r p o s t u r i n n . i s
1. tbl. 27. árg. 2009
Fimmtudagur 8. janúar
Upplag 9.800 eintök. Dreift frítt í Hafnarfirði og á Álftanesi
www.as.is
Sími 520 2600
L
j
ó
s
m
.
:
G
u
ð
n
i
G
í
s
l
a
s
o
n
Starfsfólkinu var heitt í hamsi.
Heimilismatur
í fyrirtæki
skoðaðu matseðilinn
á www.skutan.is
Hólshrauni 3
sími 565 1810
Pústþjónusta BJB bætir þjónustuna.
Núna færð þú einnig hjólbarða hjá okkur.
Starfsmenn BJB eru snöggir að afgreiða
þig með nýja hjólbarða undir bílinn.
30-50% afsláttur af 17-22” sumardekkjum
fyrir jeppa og fólksbíla.
25% afsláttur af 15-18” dekkjum
fyrir jeppa og pallbíla.
2 sumardekk 13-16” í kaupbæti
ef þú kaupir 4 vetrardekk sömu stærðar.
Tilboðin gilda
meðan
birgðir endas
t.
Sparaðu - Ko
mdu strax.
Hjólbarðaþjónusta:
BJB | Flatahrauni 7 | 220 Hafnarfirði | Sími 565 1090 | www.bjb.isHafðu samband - Komdu:
25-50% afsláttur
bjb_augl_hjolbarðar_afsláttur_090107_218x70.ai 7.1.2009 12:16:13Fjarðarpósturinn óskar gleðilegs árs!
Fjarðarpósturinn þakkar
ánægjulegt samstarf á liðnu ári
og hlakkar til viðburðaríks
krefjandi árs. Fjarðarpósturinn
treystir á gott samstarf við
lesendur sína og viðskiptavini.
L
j
ó
s
m
.
:
G
u
ð
n
i
G
í
s
l
a
s
o
n
Lagður niður í núverandi mynd og nýttur til hvíldarinnlagna aldraðra
St. Jósefsspítala lokað!