Fjarðarpósturinn


Fjarðarpósturinn - 08.01.2009, Blaðsíða 9

Fjarðarpósturinn - 08.01.2009, Blaðsíða 9
www.fjardarposturinn.is 9Fimmtudagur 8. janúar 2009 Á síðasta ári fögnuðum við Hafnfirðingar 100 ára kaup - staðarafmæli okkar með marg - víslegum hætti. En nú í ár eru hundrað ár liðin frá því að höfnin okkar var gerð að sjálfstæðri stofnun í bæjar félag inu. Með fyrstu verk um sem bæjar stjórn hins nýja kaupstaðar tók sér fyrir hendur var að semja frumvarp að hafnar - reglugerð og var það samþykkt í bæjar stjórn 6. október 1908 og staðfest af Stjórnar ráði Íslands 8. desem ber, en með nokkrum breytingum. Gísli lóðs, fyrsti starfsmaður hafnarinnar Reglugerðin öðlaðist gildi 1. janúar 1909. Með henni var stofnaður sérstakur hafnarsjóður aðskilinn frá hinum almenna bæjarsjóði og skipakomur og langtímalega skipa gerð gjald - skyld. Höfninni var þannig skap - aður sjálfstæður fjárhagur sem lagði grundvöll að ráðningu starfsmanna og undirbúningi hafn arframkvæmda í Hafnar - firði. Hafnarnefnd var sett á lagg irnar til að hafa umsjón og eftirlit með rekstri hafnarinnar í umboði bæjarstjórnar. Í fyrstu nefnd inni sátu þeir Sigfús Berg mann bæjar fulltrúi, Ágúst Flygen ring al þing is - maður og Magnús Jónsson bæjarstjóri (og jafn framt sýslu - maður og bæjar fó - geti). Á fyrsta fundi nefndar innar var eitt mál á dagskrá, ráðn - ing starfsmanns til að hafa eftirlit með frágangi skipa og legu þeirra til lengri tíma. Þegar hafnarreglugerðin tók gildi var Gísli „lóðs“ Jónsson þegar við störf sem hafnsögu - maður og varð hann fyrsti starfsmaður hafn arinnar. Vagga togaraútgerðar Hin góða hafnar aðstaða sem hér er í firðinum hefur verið nýtt allt frá landnáms tíð og á löngum tímum var Hafn arfjörður mið - stöð samskipta þjóðar innar við önnur lönd. Á 16. öld var bærinn t.d. miðstöð verslunar Hansa - kaupmanna á Íslandi og var svo fram að ein okun sem tók gildi 1603 í Hafnar firði, einu ári seinna en annars staðar á land - inu. Héðan voru þilskip Innrétt - inganna gerð út um miðja 18. öld, hér var fyrst smíðað þilskip á Íslandi að tilhlutan Bjarna Sí - vertssens kaupmanns og hér var vagga togaraútgerðar í upphafi 20. aldar svo dæmi séu tekin. Um 1920 var talið að 1/7 fiskút - flutnings Íslendinga færi frá Hafnarfirði. Sögu Hafnar fjarðar - hafnar verða ekki gerð nein skil í stuttri grein sem þessari, en hún er samofin sögu erlendra sam - skipta, verslunar og fiskveiða íslensku þjóðarinnar. Fyrr á öldum og fram á þá tuttugustu voru hér engin hafnar - mannvirki, skip lágu úti á „legunni“ og öll umskipun fór fram með árabátum sem sigldu milli skips og lands með vörur og fólk og lögðu að smá - bryggjum sem voru framan við hin ýmsu verslunarhús. Skipa - lægi þótti gott í öllum vindáttum nema vestlægum, gegn þeim var lítið skjól og órói mikill í höfn - inni. Hætta var á að skip losnuðu upp og ræki á land og gerðist það öðru hverju, stundum með manns skaða. Gullfoss lagði að í Hafnarfirði Það var því með fyrstu verkefnum nýrra hafnaryfirvalda að undirbúa hafnar mannvirki sem tryggðu betra öryggi og aðstöðu til að þjóna skipum. Hinn 7. nóvember 1911 var ákveðið að hefja hér smíði hafskipabryggju og var hún formlega tekin í notkun 16. október 1913 með mikilli við - höfn. Á þessum tíma var ekki komin nein slík bryggja í Reykja vík og þegar Gullfoss kom til landsins í apríl 1915 lagð ist hann að „Gömlu bryggj - unni“ eins og hún var síðar köll - uð. Þessi aðstaða þótti fljótt ekki nægjanleg og 1931 var „Nýja bryggjan“ tekin í notkun. Báðar voru þessar bryggjur tré staura - bryggjur með tim burgólfi og muna Hafnfirðingar sem komnir eru yfir miðjan aldur eftir þeim. Umdeildur Norðurgarður Enn var þó jafnmikill órói í vestanáttum og það mun hafa verið Skipstjóra- og stýri manna - félagið Kári sem fyrst lagði fram tillögu um gerð brimvarnagarða í febrúar 1922. Þetta átti eftir að verða eitt heitasta pólitíska þrætueplið í bænum næstu 20 árin og komst loks til fram - kvæmdar með byggingu Norð - ur garðsins 1941-1945 og Suður - garðisins sem tekinn var í notkun 1953. Deilt var hart um tækni - legar forsendur Norður garðsins, hvort botninn væri nógu traustur til að bera hann og skemmst er frá því að segja að fremri hluti hans seig skyndilega um rúma tvo til þrjá metra í ágúst 1945, botninn gaf sig. Framtíð hafnarinnar Mikið vatn hefur runnið til sjáv ar í hundrað ára sögu Hafnar fjarðarhafnar og hér hefur einungis verið drepið á fáein viðfangsefni frumkvöðlanna. Höfn in er nú á vissum tíma - mótum og taka þarf mikilsverðar ákvarðanir um framtíð hennar. Þar tel ég hæst bera byggingu nýrrar hafnaraðstöðu vestan Straums víkur og endur skipu - lagningu innri hafnarinnar þann - ig að hún þjóni betur því hlut - verki a vera miðpunktur mann - lífs í bænum. Í ljósi efnahagsástandsins og þess að nýlokið er miklum hátíðar höldum hefur hafnar - stjórn ákveðið að ekki verði efnt til milla veisluhalda í tilefni af afmælinu. Sögu hafnarinnar og framtíðaráformum verða gerð skil í kvikmynd sem unnið er að og einnig í sérstakri útgáfu með þessu blaði síðar á árinu og verð - ur þá greint nánar frá atburðum afmælisársins. Höfundur er formaður hafnarstjórnar. Heimildir: Sigurður Skúlason, Saga Hafnarfjarðar, 1931, Ágúst Guðmundsson, Saga Hafnarfjarðar, 1983. Eyjólfur Sæmundsson Hafnarfjarðarhöfn 100 ára L j ó s m . : L á r u s K a r l I n g a s o n Horft undan Flensborgarhamri að Vesturbænum. Bát og skip á legunni. Strandgatan lengst til hægri. Horft yfir hafnarsvæðið, Hvaleyrina og Straumsvík. Ljósmynd tekin 2008. Rétt fyrir jólin afhenti Krabba - meinsfélag Hafnarfjarðar St. Jósefs spítala- Sólvangi allan hús búnað og lyfjadælu að gjöf í sérstaklega útbúna sjúkrastofu þar sem bæði sjúklingi og að - standendum er ætlað að líða sem best. Undirbúningur stofunnar hefur staðið yfir í nokkra mánuði og allt tekist mjög vel til í góðri samvinnu forráðamanna spítal - ans og Krabbameinsfélags Hafn - arfjarðar. Skúli Þórsson heitinn sem lengi sat í stjórn félagsins gaf ásamt systrum sínum 150 þúsund krónur í minningu for - eldra þeirra í þetta verkefni. Krabbameinsfélag Hafnar - fjarð ar hefur ásamt fjölmörgum félagasamtökum, fyrirtækjum og einstaklingum í Hafnarfirði unnið markvisst að því að efla og styrkja starfsemi spítalans með fjárframlögum. Undanfarin ár hafa þessir aðilar m.a. keypt tæki til að stórefla forvarnir og með - ferð meltingarsjúkdóma, en spítal inn hefur verið í forystu við það hér á landi til margra ára. Krabbameinsfélagið og aðrir velunnarar treysta því að heil - brigðisyfirvöld hlúi enn frekar að starfsemi St. Jósefsspítala - Sól - vangs og að stofnunin fái að efla frekar þá sérhæfðu starfsemi sem skipulögð hefur verið á undan - förnum áratugum. Stuðningur einstaklinga og félagasamtaka við spítalann sýnir að starf hans nýtur virðingar og er mikils met - ið. Bæjarbúar styðja við St. Jósefsspítala Krabbameinsfélag Hafnarfjarðar færir St. Jósefsspítala - Sólvangi mikilvæga gjöf L j ó s m . : G u ð n i G í s l a s o n

x

Fjarðarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fjarðarpósturinn
https://timarit.is/publication/945

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.