Fjarðarpósturinn - 20.05.2009, Síða 2
Er fólki mismunað til náms? Við Íslending -
ar höfum getað sótt nám í skóla á Norð -
urlöndunum í langan tíma en svo virðist sem
samkomulag við nágrannasveitafélögin sé
stirðara a.m.k. þurfa einhverjir þeirra sem
stunda tón listarnám í Reykjavík að flytja
þangað til þess að njóta sömu niðurgreiðslu og
Reyk víkingar eða Hafnfirðingar í námi í
Hafnar firði. Til eru reglur um þessar niður -
greiðslur þar sem rauði þráðurinn er að menn skulu helst stunda
nám í Tónlistarskóla Hafnarfjarðar en þó að Hafnarfjarðarbær
muni greiða kennslukostnað í tónlistarskóla fyrir nemendur, sem
óska eftir að stunda nám í öðrum tónlistarskóla en Tónlistarskóla
Hafnarfjarðar, í samræmi við nánari reglur og kröfur. Takmarkað
er hversu margir geta fengið niðurgreitt og mun færri komast að í
TH en sækja um og annar skólinn engan veginn eftirspurn.
Við Hafnfirðingar eigum mikinn fjölda afbragðs tónlistarfólks
og er Jóhanna Guðrún okkur góð áminning um það. Hafnarfjörður
ætti að vera mekka tónlistar á Íslandi og kannski er kreppan kjörið
tækifæri til þess að blása í herlúðra og undirbúa sókn á þeim
markaði. Sem betur fer eru sumir að starfa af metnaði að flutningi
alþýðlegrar tónlistar í bænum og er umboðsskrifstofan Prime eitt
dæmi um það. Verum með á nótunum og blásum í herlúðra!
Guðni Gíslason.
2 www.fjardarposturinn.is Miðvikudagur 20. maí 2009
Útgefandi: Keilir ehf. útgáfufélag, kt. 480307-0380
Fjarðarpósturinn, Bæjarhrauni 2, 220 Hafnarfirði
Vinnsla: Hönnunarhúsið ehf., umbrot@fjardarposturinn.is
Ritstjóri og ábm.: Guðni Gíslason
Ritstjórn: 565 4513, 896 4613, ritstjorn@fjardarposturinn.is
Auglýsingar: 565 3066, auglysingar@fjardarposturinn.is
Prentun: Steinmark ehf. Dreifing: Íslandspóstur
ISSN 1670-4169 – Vefútgáfa: ISSN 1670-4193
www.fjardarposturinn.is
Uppstigningardagur 21. maí
Guðsþjónusta kl. 14
Dagur aldraðra í Þjóðkirkjunni
Öldruðum og fjölskyldum þeirra sérstaklega boðið.
Sætaferð frá Höfn kl. 13.30.
Prestar sr. Gunnþór Þ. Ingason og sr. Kjartan Jónsson.
Kantor: Guðmundur Sigurðsson.
Kór: Barbörukórinn í Hafnarfirði og Gerðubergskórinn
Veislukaffi í Hásölum eftir Guðsþjónustuna.
Sunnudagur 24. maí
Messa kl. 14
Útvarpsmessa
Prestur sr. Kjartan Jónsson.
Kantor: Guðmundur Sigurðsson
Kór: Barbörukórinn í Hafnarfirði
TÖLVUHJÁLPIN
Tek að mér vírushreinsanir,
viðgerðir, uppfærslur og
uppsetningar á PC tölvum
Mæti í heimahús
Sanngjarnt verð
Sími 849-6827
Tónleikar í kvöld
Vorboðinn ljúfi er yfirskrift tónleika
Kórs Flensborgarskólans sem
haldnir verða í Hamarssal skólans í
kvöld, miðvikudag kl. 20. Kórtónlist
frá endurreisn til okkar tíma. Nýtt
verk eftir Hildigunni Rúnarsdóttur,
tileinkað skólanum frumflutt. Stjórn -
andi er Hrafnhildur Blomster berg.
Jóhanna og Guðný sýna í
Hafnarborg
Sl. laugardag voru opnað ar tvær
sýningar í Hafnarborg, Vættir, verk
eftir Jónínu Guðnadóttur og sýning
Guðnýar Guðmundsdóttur. Hér eru á
ferðinni sýningar þar sem teflt er
saman tveim kynslóðum listamanna
sem hvor um sig er mótuð af
sterkum tíðaranda og aðstæðum
sem hafa áhrif á feril þeirra og
sköpun. Guðný Guðmundsdóttir
tekur þátt í leiðsögn um sýninguna
sunnudaginn 24. maí kl. 15.
Kórar Öldutúns syngja
Kvennakór Öldutúns og Kór Öldu -
túns skóla halda tónleika í Hafnar -
fjarðarkirkju á morgun, uppstign -
ingar dag kl. 16. Stjórnandi er Bryn -
hildur Auðbjargardóttir og Ástríður
Alda Sigurðardóttir leikur á flygil.
Vorsýning Iðnskólans
Hin árlega vorsýning Iðnskólans í
Hafnarfirði stendur nú yfir í húsnæði
skólans. Hún er opin daglega kl. 13-
16 og stendur til 24. maí.
Nemendur sýna verk sem þeir hafa
unnið í vetur þar sem leit ast er við að
rekja ferli hvers og eins verks, allt frá
hugmynd á blaði, teikningar, útfærslu
og til endan legs smíðisgrips eða
vöru. Þarna má sjá verk iðnnema og
hönnunarnema. Frítt er inn á
sýninguna og eru allir velkomnir.
ÚTFARARÞJÓNUSTA
HAFNARFJARÐAR
SÍMI 565 9775 - ALLAN SÓLARHRINGINN - UTH.IS
Frímann Andrésson
útfararstjóri
hÁLFDÁN hÁLFDÁNARSON
útfararstjóri
Víðistaðakirkja
Uppstigningardagur 21. maí
Guðsþjónusta kl. 14
sérstaklega tileinkuð eldri borgurum
á uppstigningardag 21. maí, kl. 14:00.
Gaflarakórinn, kór Félags eldri borgara,
syngur undir stjórn Kristjönu Þórdísar
Ásgeirsdóttur.
Organisti: Arngerður María Árnadóttir
Kaffiveitingar í safnaðarheimilinu
eftir messu
Rúta fer frá Hjallabraut 33 kl. 13:40
og frá Hrafnistu kl. 13:50.
Allir velkomnir
www.vidistadakirkja.is
LOFTNETS OG SÍMAÞJÓNUSTA
Viðgerðir og uppsetningar á
loftnetum, diskum, heimabíóum,
flatskjám. Síma- og tölvulagnir
Loftnetstaekni.is
sími 894 2460
FJARÐARPÓSTURINN
auglysingar@fjardarposturinn.is
Auglýsingasími:
565 3066
Opnað í dag
í Þöll
Veita ráðgjöf um
trjárækt og gróður
Gróðrarstöðin Þöll, sem er í
eigu Skógræktarfélagags Hafn -
ar fjarðar var opnuð í morgun
eftir vetrardvala. þar er á boð -
stólum tré, skrautrunnar, berja -
runn ar, rósir, krúttrunnar og
limgerðisplöntur og veitir
starfs fólk stöðvarinnar ráðgjöf
um val og ræktun. Stöðin sem
er á svæði Skógræktarfélags
Hafnarfjarðar við Kaldár sels -
veg er opin virka daga kl. 8-18
nema föstudaga þá er opið til kl.
20. Á laugardögum er opið kl.
10-18.
Linnetssíg 2 - 220 Hafnarfirði
Sími: 5650955 - www.galleríthors.net
Opið virka daga frá kl. 11-18.
Laugardaga frá kl. 11-14.
gallerí
Sædís Bauer
Gullsmiður
íslenskri list
Gleðjum með