Fjarðarpósturinn - 20.05.2009, Síða 4
Um síðustu helgi fór fram
landsþing Slysavarnafélagsins
Landsbjargar á Akureyri. Sam -
hliða þinginu fóru einnig fram
Björgunarleikar þar sem 18 lið
kepptu í ýmsum þrautum
tengd um björgunarstarfi.
Þurfa að geta bjargað
fjárhagnum!
Meðal verkefna voru fjalla -
björgun, fyrsta hjálp, GPS,
rústa björgun, fjáröflunar verk -
efni og margt fleira. Félagar úr
Björg unar sveit Hafnarfjarðar
fjölmenntu norður og voru
tæplega 50 félagar á þinginu.
Tvö 6 manna lið frá sveitinni
tók þátt í Björgunarleikunum
og var annað liðið skipað
undan förum sveitarinnar og hitt
liðið skipað nýliðum sem eru
að ljúka fyrra árinu sínu í
þjálfun björgunar sveitarinnar.
Undanfarar eru hins vegar þeir
sem mæta fyrstir á vettvang og
hafa hlotið mikla þjálfun
Úrslit leikanna komu vafa -
laust flestum á óvart en lið
nýliðanna, „Heroes - not yet
legends“ (Hetjur - en ekki orðn -
ar goðsagnir enn) lentu í 3. sæti
aðeins 117 stigum á eftir liði
undanfaranna úr Hafnarfirði.
4 www.fjardarposturinn.is Miðvikudagur 20. maí 2009
Þrátt fyrir góða veðrið á
föstudaginn voru þrír ungir
piltar í listasmiðjunni í Hlíðar -
bergi en um þessar mundir er
Ólöf Björg Björns dóttir, mynd -
listakona og kennari að veita
börnunum á leikskólanum inn -
sýn í ævintýraheima listsköp -
unar.
Fjölnotasalurinn er fullur af
alls konar dóti sem nota má til
að búa til myndverk úr og þar
sem þemað er hafið má jafnvel
lykta sig fram til ýmissa hluta
úr fjöruborðinu. Jafnvel fiskar
eru notaðir til þess að stensla
myndir á og það var ekki annað
að sjá á strákunum þremur að
þeir væru afar stoltir af árangr -
inum. Kannski þarna séu
komnir listamenn framtíðar -
innar.
Framtíðarlistamennirnir
Leikskólabörn á Hlíðarbergi njóta sín við listsköpun
Karfinn var í hlutverki
fyrirmyndarinnar.
Ólöf Björg með þremur af
stoltum nemendum sínu.
Sannkölluð liðsheild í
fjallabjörgunarverkefni.
L
jó
s
m
.:
G
u
ð
n
i
G
ís
la
s
o
n
L
jó
s
m
.:
G
u
ð
n
i
G
ís
la
s
o
n
Á laugardaginn kl. 11 verður
ganga í röðinni „Af stað á
Reykjanesið“ og verður Ketils -
stígur genginn, frá Seltúni í
Krýsuvík að Katlinum og til
baka, um 7 km leið.
Ketilstígur er hluti af þjóðleið
milli Krýsuvíkur og Hafnar -
fjarðar. Á leiðinni verður geng -
ið framhjá Arnarvatni, um
Sveiflu háls að katlinum sem
leið in dregur nafn sitt af.
Genginn verður hringur til baka
með útsýni yfir Móhálsadal og
Núpshlíðarhálsinn. Svæðið býr
yfir kyngimagnaðri náttúru,
minjum og sögum sem Sigrún
Jónsdóttir Franklín mun miðla
á leiðinni. Áætlað er að gangan
taki ca. 3-4 klst. með fræðslu -
stoppum. Þetta er frekar auð -
veld leið en gott er að vera með
nesti og í góðum skóm. Þátt -
tökugjald kr. 1.500. Frítt fyrir
börn. Tilvalið er að taka með
sér myndavél því litadýrðin og
útsýnið er stórkostlegt.
Gangan er þriðja ferð af tólf
menningar- og sögutengdum
gönguferðum um hluta af
gömlu þjóðleiðunum á Reykja -
nesskaganum sem farnar verða
með leiðsögn í smar.
Gengið Ketilstíginn
Vanrækslugjald var lagt á
óskoðaðar bifreiðar í fyrsta sinn
þann 1. apríl síðastliðinn.
Gjaldið er lagt á ökutæki
þremur mánuðum eftir að þau
eiga að koma í skoðun. Þannig
leggst gjaldið á bifreið með 1 í
endastaf þann 1. apríl, þann
1. maí á bifreið með 2 í enda -
staf, þann 1. júní á bifreið með
3 í endastaf o.s.frv. Á bifreiðum
með einkanúmer og bókstaf í
enda númers leggst gjaldið á
þann 1. ágúst. Þann dag leggst
gjaldið einnig á skráðar forn -
bifreiðar, skráð forn bifhjól og
skráðar hús bifreið ar sem ekki
hafa skilað sér í skoðun og að
auki á óskoð uð fellihýsi, hjól -
hýsi og tjaldvagna.
Með tilkomu vanrækslu -
gjaldsins hefur aðsókn í skoð -
unarstöðvarnar aukist mikið,
sérstaklega í lok mánaðar. Svo
mikil aðsókn hefur verið, að
vísa hefur þurft fólki frá þar
sem ekki hefur verið hægt að
anna öllum þeim fjölda sem
vilja láta skoða. Því er mikil -
vægt að fólk láti skoða bílinn
sinn í tíma, sérstaklega ef kom -
ið er að þriðja mánuði og
vanrækslugjaldið að leggjast á.
Nýverið var einnig sett í lög
að ferðavagnar, (fellihýsi,
tjaldvagnar og hjólhýsi) skuli
skoðaðir á tveggja ára fresti,
fyrst á fjórða ári frá ný skrán -
ingu. Allir ferðavagnar sem eru
af árgerð 2005 og allir eldri
vagn ar eiga því að koma í skoð -
un í sumar og eiga að hafa lokið
skoðun fyrir 1. ágúst. Hafi þeir
ekki verið færðir til skoðunar
fyrir þann tíma leggst van -
rækslugjald á þá.
Fólk er hvatt til að yfir fara
vagna sína áður en komið er
með þá í skoðun og kanna
ástand ljósabúnaðar, bremsu -
bún aðar, hjólabúnaðar og ör -
ygg is búnaðar. Hægt er að leita
sér upplýsinga um ofantalin
atriði á skoðunarstöðvunum.
Aðalskoðun hf. er með þrjár
skoðunarstöðvar á höfuð borg -
ar svæðinu en í Hafnarfirði eru
hún að Hjallahrauni 4. Þar er
opið alla virka daga frá kl. 8-17.
Dýrt að láta ekki
skoða ökutæki
Skoða á ferðavagna, árgerð 2005 og eldri Glæsilegur árangur Björg -
un ar sveitar Hafnarfjarðar
Undanfararnir og nýliðarnir í öðru og þriðja sæti í Björgunarleikunum
Nýliðarnir í hvítum bolum og undanfararnir með hvíta hjálma
fyrir aftan þá.
L
jó
s
m
.:
Þ
ó
ró
lf
u
r
K
ri
s
tj
á
n
s
s
o
n
L
jó
s
m
.:
Þ
ó
ró
lf
u
r
K
ri
s
tj
á
n
s
s
o
n
Auglýsing í Fjarðarpóstinum borgar sig!
Auglýsingasíminn er 565 3066
L
jó
s
m
.:
G
u
ð
n
i
G
ís
la
s
o
n