Fjarðarpósturinn - 20.05.2009, Síða 6
Þetta er jafngóður og jafnvel
enn betri árangur en við höfum
áður náð en alls kepptu 42
þjóðir. Frændur vorir Norð -
menn sigr uðu með nokkrum
yfir burðum en annað sætið
réðist ekki fyrr en Norðmenn
gáfu okkur 12 stig sem fleyttu
íslenska framlaginu í annað
sæti með 218 stig en Aser -
beídsjan hafnaði í þriðja sæti
með 207 stig.
Í samtali við Fjarðarpóstinn
eftir heimkomuna sagði Jó -
hanna Guðrún að sér fyndist ár -
ang urinn ennþá svo lítið óraun -
verulegur. „Ég er ofboðslega
ánægð,“ segir Jóhanna. „Ég
þorði ekki að gera mér vonir
um að ná svona langt þó ég
hafði látið mig dreyma um eitt
af topp 10 sætunum. Mér fannst
sú tilhugsun svolítið ýkt en það
virtist allt ganga upp.“
„Mér leið ofboðslega vel
þegar ég söng lagið, mót tök -
urnar frá salnum voru æðis -
legar.“ Aðspurð sagðist hún
ekkert hafa verið að hugsa um
það að milljónir manna væru að
horfa á. Jóhanna hóf sönginn
með fölskvalaust bros á á vör
og virtist gríðarlega örugg.
„Nei, ég var eiginlega ekkert
stressuð, við höfðum æft svo
oft og það hafði gengið svo vel
á æfingunum svo við vorum öll
í hópn um komin með svo gott
sjálfstraust þannig að þetta var
bara mjög þægilegt og gott.
Þetta var mjög góð reynsla,“
segir Jóhanna Guðrún.
Jóhanna segist ekki óttast
frægð ina, „Nei, ég geri það
ekki. Ég er búin að vera í þess -
um bransa síðan ég var níu ára
svo ég þekki lítið annað. Ég er í
raun búin að vera á vinnu mark -
aðinum frá því að ég var níu ára
og þetta er það sem ég þekki
svo þetta er ekkert óvenju legt
eða skrítið fyrir mig og stressar
mig ekki.“
Söngkonan unga segist eiga
örugg lega eftir að ferðast tölu -
vert á næstunni, þau séu þegar
búin að fá nokkur tilboð sem
verið sé að skoða. Þá sé fyrir -
hugað að gefa út plötuna henn -
ar Butter flies And Elvis sem
hún gaf út í fyrra undir lista -
mannanafninu Yohanna en öll
lögin á plötunni eru á ensku og
m.a. ætluð á Bandaríkja mark -
að. Reiknar hún þó með að
gerðar verði einhverjar breyt -
ingar á plötunni áður en hún
verður gefin út í Evrópu.
Dívutónlist skemmtileg
En hvað finnst Jóhönnu
skemmtilegast að syngja? „Mér
finnst skemmtilegast að syngja
rokk, „dívutónlist“ t.d. lög sem
t.d. Celine Dion og svoleiðis
kerlingar hafa verið að syngja,“
segir Jóhanna og hlær við, það
fer reyndar eftir dags form inu.
Kveðjur í Setbergsskóla
Jóhanna var í Setbergsskóla
frá 8 ára aldri og hefur oft
sungið þar, síðast fyrir tveimur
árum. Hvað vill hún segja við
núverandi nemendur? „Njótið
þess að vera í grunn skóla, það
er skemmti legasti tími lífs
ykkar“, segir Jóhanna sem
jafnframt vildi koma á framfæri
þakklæti til allra sem studdu
hana.
6 www.fjardarposturinn.is Miðvikudagur 20. maí 2009
FUNDARBOÐ
Mánudaginn 25. maí kl. 17.30 verður
haldinn forstigskynningarfundur á tillögu
að nýju deiliskipulagi fyrir svæðið milli
Suðurgötu og Strandgötu, frá Hellubraut
að norðan að göngustíg við Suðurgötu 70
að sunnan.
Fundurinn verður haldinn í HAFNARBORG.
Þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta við
deiliskipulagið eru hvattir til að mæta á fundinn.
Skipulags- og byggingarsvið
Jóhanna Guðrún Jónsdóttir, 18 ára Hafnfirðingur
náði frábærum árangri á Eurovison keppninni í
Moskvu á laugar dag inn, þar sem hún söng sig inn í
hjörtu milljóna manna og náði öðru sæti.
„Ennþá svolítið óraunverulegt“
Jóhanna Guðrún himinlifandi með árangurinn
Mjög fjölmennt var á Austurvelli þar sem tekið var á móti
tónlistarhópnum á sunnudaginn.
L
jó
s
m
.:
G
u
ð
n
i
G
ís
la
s
o
n
Umhverfisnefnd Hafnar fjarð -
ar hefur ákveðið í samstarfi við
Fjarðarpóstinn að velja tré mán -
aðar ins í sumar, frá maí til júlí.
Forsaga þess er að bæjar -
stjórn Hafnarfjarðar samþykkti
með öllum atkvæðum á fundi
sínum 3. febrúar sl. tillögur að
samþykkt um trjáverndun,
verndun trjáa í Hafnarfirði.
Markmið samþykktarinnar er
að vernda trjágróður í þéttbýli
Hafnarfjarðar sem talinn er
hafa mikið náttúrulegt og/eða
menningarlegt gildi.
Tilnefningar fyrir 26. maí
Nú er kallað eftir aðstoð
almennings við að finna falleg,
merkileg, söguleg eða jafnvel
bara skemmtileg tré í bæn um,
tré sem hjálpa til að gera
Hafnarfjörð enn betri bæ að búa
í. Þeir sem vita um slík tré sem
gætu komið til greina sem tré
maí mánaðar eru hvattir til að
senda ábendingar á netfangið
almadrofn@hafnarfjordur.is
þar sem komi fram upplýsingar
um hvar tréð er að finna, hver
bendi á það og jafnvel frásögn
um tréð.
Valnefnd velur svo tré maí -
mánaðar og eigendur trésins fá
viðurkenningarskjal og sagt
verður frá trénu í Fjarðar póst -
inum í byrjun júní.
Tré mánaðarins valið
Kallað eftir tilnefningum
Súlublæösp
Fura í blóma
L
jó
s
m
.:
G
u
ð
n
i
G
ís
la
s
o
n
L
jó
s
m
.:
G
u
ð
n
i
G
ís
la
s
o
n
Jóhanna syngur á Austurvelli.
L
jó
s
m
.:
G
u
ð
n
i
G
ís
la
s
o
n
Í Setbergsskóla 2006.
L
jó
s
m
.:
G
u
ð
n
i
G
ís
la
s
o
n
Nr. 7 á svið í aðalkeppninni.
Stoltur Íslendingur í Moskvu.
L
jó
s
m
.:
J
ó
n
a
ta
n
G
a
rð
a
rs
s
o
n
L
jó
s
m
.:
J
ó
n
a
ta
n
G
a
rð
a
rs
s
o
n
• Bókhaldsþjónusta
• Endurskoðun
• Rekstrarráðgjöf
Rekstrargreining ehf.
Bæjarhrauni 2, 2.h. • sími 555 1090 • olafurhm@simnet.is
Ólafur Haukur Magnússon, viðskipta- og rekstrarhagfræðingur