Fjarðarpósturinn - 20.05.2009, Síða 8
Íbúar við Klausturhvamm
tóku eftir að reyk lagði út um
glugga á efri hæð raðhúss
hinum megin við götuna.
Hringdu þeir strax í Neyðar -
línuna og hljóp húsmóðirin yfir
götuna og hrindi dyrabjöllunni í
ákafa ef vera skyldi að einhver
væri heima. Kona sem hafði
lagt sig á neðri hæð sagðist hafa
vaknað við mikil læti í dyra -
bjöllunni og rokið til dyra. Hún
segist þá hafa fundið reykjar -
lykt og fór upp á loft og sá að
reyk lagði undan hurð í ungl -
inga herbergi og forðaði sér út
en enginn var í herbergingu.
Slökkvilið var komið á staðinn
á örskammri stundu og réði
niðurlögum eldsins sem þá var
farinn að teygja sig út um hálf -
opinn glugga.
Miklar skemmdir urðu á
herberginu og allt ónýtt sem í
því var en að sögn hús móð -
urinnar á heimilinu urðu engar
aðrar skemmdir á húsinu,
hvorki af vatni né reyk og segir
að það sé í raun ótrúlegt hvað
hurðin hafi haldið vel. Hún
þakkar nágrönnum sínum að
ekki hafi farið ver því ekki er
víst að hurðin hafi haldið mikið
lengur.
Eldsupptök eru ekki upplýst
en eldurinn er talinn hafa kom -
ið upp í sófa.
8 www.fjardarposturinn.is Miðvikudagur 20. maí 2009
Kvennakór Öldutúns er nú að
ljúka sínu fjórða starfsári og
hafa þessi ár verið viðburðarík
og skemmtileg fyrir meðlimi
hans að sögn Ragnhildar A.
Þor geirsdóttur, gjaldkera kórs -
ins. Auk hins hefðbundna kórs -
starfs með jóla- og vortón -
leikum hefur kvennakórinn tek -
ið þátt í að flytja lög hafn firska
tónskáldsins Friðriks Bjarna -
sonar á sameiginlegum tón leik -
um fjögurra kóra en geisla -
diskur með því efni er væntan -
legur.
Mikið og gott samstarf hefur
verið við Kór Öldutúnsskóla
enda hófu margar kvenna kórs -
konur söngferil sinn hjá heið -
urs félaga kórsins, Agli Frið -
leifssyni, sem stjórnaði Kór
Öldu túnsskóla áratugum sam -
an, auk þess sem nokkrar þeirra
eiga dætur í barnakórnum.
Kórarnir hafa verið með sam -
eiginlegt tónleikahald og sung -
ið saman margs konar tónlist
und ir stjórn Brynhildar Auð -
bjargardóttur sem stendur fyrir
öflugu tónlistarlífi í Öldu -
túnsskóla.
Mörg spennandi verkefni eru
framundan hjá Kvennakór
Öldutúns. Segir Ragnhildur
stefn una vera að hafa alltaf
gam an að því sem verið er að
gera og sleppa leiðindum eins
og sölu salernispappírs og
köku bakstri í fjáröflunarskyni
sem gjarnan fylgir svona
kórastarfi. Nýir söngelskir
meðlimir eru ávallt velkomnir í
hópinn.
Kór Öldutúnsskóla og
Kvenna kór Öldutúns verða
með sýna árlegu vortónleika á
morgun uppstigningardag í
Hafnarfjarðarkirkju kl. 16.
Kórar Öldutúns syngja
Tónleikar í Hafnarfjarðarkirkju á morgun kl. 16
Á vortónleikum kóranna í Flensborgarskólanum á síðasta ári.
Eldur í raðhúsi
Árvekni nágranna forðaði stórtjóni
Mikil mildi að aðeins
herbergið brann.
Slökkviliðið var komið á örskammri stundu og slökkti eldinn.
L
jó
s
m
.:
G
u
ð
n
i
G
ís
la
s
o
n
L
jó
s
m
.:
G
u
ð
n
i
G
ís
la
s
o
n
L
jó
s
m
.:
G
u
ð
n
i
G
ís
la
s
o
n
Á kínveskri „vespu“ í vinnuna
Hann Ármann, starfsmaður Þjónustuvers
Hafnarfjarðarbæjar mætir á forláta kín -
versku mótorhjóli í vinnuna. Segir hann
þetta vera í sparnaðarskyni því hjólið eyði
varla meira en 3 lítrúm á hundraði. Hjólið
vekur athygli enda langt síðan svona hvítar
dekkja rendur hafa sést eins og tíðkuðust á
síðustu öld.
L
jó
s
m
.:
G
u
ð
n
i
G
ís
la
s
o
n