Fjarðarpósturinn - 20.05.2009, Side 11
www.fjardarposturinn.is 11Miðvikudagur 20. maí 2009
Eldsneytisverð
19. maí 2009 í Hafnarfirði:
Sölustaður 95 okt. dísil
Atlantsolía, Kaplakr. 160,9 163,3
Atlantsolía, Suðurhö. 160,9 163,3
Orkan, Óseyrarbraut 160,8 163,2
ÓB, Fjarðarkaup 160,8 163,2
ÓB, Melabraut 160,9 163,3
ÓB, Suðurhellu 160,9 163,3
Skeljungur, Rvk.vegi 162,4 164,8
Öll verð miðast við sjálfs af greiðslu og
eru fundin á vef síð um olíufélaganna.
Að auki getur verið í boði sérafsláttur.
Smáauglýsingar aðeins 500 kr.
a u g l y s i n g a r @ f j a r d a r p o s t u r i n n . i s
Úrslit:
Fótbolti
Karlar:
Breiðablik - FH: 2-3
Haukar - Fjarðarbyggð: 3-1
FH - Fram: 2-1
Konur:
Haukar - Völsundur: 2-1
Næstu leikir
Fótbolti
22. maí kl. 20, Varmárvöllur
Afturelding - Haukar
(1. deild karla)
23. maí kl. 14, Kaplakriki
FH - Stjarnan
(úrvalsdeild karla)
23. maí kl. 14, Ásvellir
Haukar - Draupnir
(1. deild kvenna)
24. maí kl. 14, Kaplakriki
FH - Draupnir
(1. deild kvenna)
Mætum á heimaleiki
Íþróttir
SAUMAKONA
í Hafnarfirði
- földun - rennilásar - gardínur
- hvers kyns saumaskapur
GOTT VERÐ
Reykjavíkurvegi 22
á bak við Sjónarhól
Opið kl. 17 til 21
miðvikudagar lokað
Sími 867 2273
Demparar
Bæjarhraun 6 • 220 Hafnarfjörður • Sími 520-8003 • www.stilling.is
Börn og starfsfólk á deild inni
Þúfu á leikskólanum Stekkjar ási
fóru í bæjarferð sl. fimmtu dag.
„Við löbbuðum niður að Læk og
gáfum öndunum brauð, svo lá
leið okkar að Firði þar sem við
ætluðum að taka strætó upp á
leikskóla aftur en þá kom bobb í
bátinn. Vagninn sem við ætluð -
um að taka var fullur af börnum
frá öðrum leikskóla ásamt fleira
fólki og næsti strætó sem færi
framhjá okkar leikskóla færi
ekki fyrr en eftir 40 mín. Ákváð -
um við að tala við vagnstjóra
sem ekur vagni 1 upp á Velli og
biðja hann um að stoppa við
hring torg ið við Velli og Ásland
og ætl uð um við að labba þaðan
upp í skóla.
Maðurinn var svo almenni -
legur að hann ók okkur alla leið
upp á leikskóla (hringdi og fékk
leyfi fyrir því hjá sínum yfir -
manni) þó það hafi ekki verið í
leið fyrir hann.
Við viljum þakka honum
kærlega fyrir vagnstjóri á leið 1
kl. 11.20 frá Firði á Velli.
Kveðja frá Þúfu Stekkjarás
Hrönn Sigurjónsdóttir,
Eygló Sófusdóttir,
Magdalena Ostolska,
Gundega Jaunlinina.
Lesandi hefur orðið:
Þakkir til strætóbílstjóra
Vorsýning Iðnskólans í Hafn -
ar firði er árlegur viðburður og
þema sýningarinnar í ár er ferli.
Nemendur sýna verk sem þeir
hafa unnið í vetur þar sem leit -
ast er við að rekja ferli hvers og
eins verks, allt frá hugmynd á
blaði, teikningar, útfærslu og til
endan legs smíðisgrips eða
vöru.
Margir athyglisverðir hlutir
eru á sýningunni að þessu sinni.
Útskriftarnemar af listnáms -
braut sýna „vínflöskusinfóníu,
nem endur á rafiðnaðarbraut
sýna ýmis ljósadíóðuverkefni
eins og umferðarljós. Tækni -
teikn arar sýna lokaverkefni
sín, auk þess sem fjöldi smíðis -
gripa úr málmi, tré og plasti eru
á sýningunni.
Iðnskólinn byggir á gömlum
grunni hefðbundins iðnnáms og
hefur einnig haslað sér völl sem
góður listnámsskóli.
Sýningin er í húsnæði skól -
ans að Flatahrauni 12 og stend -
ur til 24. maí. Opið er daglega
frá kl. 13-16.
Vorsýning Iðnskólans
Frá eldri sýningu Iðnskólans.
Hundaskítur
Fjölmargar kvartanir berast
víðs vegar úr bænum um
hundaskít á gangstéttum. Íbúi
við Sléttahraun kvartar yfir að
eigendur hunda hendi pokum
með hundaskít inn í næsta
trjábeð. Íbúi á Austurgötu sem
bætt hafði mold og laukum í
beð úti við götu kvartar yfir því
að fólk láti hunda sína róta í
beðunum auk þess sem kettir
róta víða þar sem síst skyldi.
Hundaeigendur eru hvattir til
þess að hirða upp eftir hunda
sína og henda pokunum í
ruslatunnur. Engin afsökun er
þó að engin rusladallur sé í
nánd, hundaeigendur bera
ábyrgð á hundum sínum.
Þeir hundaeigendur sem
svona illa ganga um koma
óorði á alla hundaeigendur.
Stuðningsmenn FH voru
sumir farnir af velli á leik
Breiðabliks og FH þegar staðan
var 2-0 fyrir Breiðablik og
aðeins 17 mínútur eftir af
leiknum. Þá bitu FH-ingar í
skjaldarendur og sóttu stíft og
Matthías Vilhjálmsson minnk -
aði muninn í eitt mark. 12
mínútum síðar uppskáru FH-
ingar mark, að vísu með hjálp
Breiða bliks eftir skalla Atla að
marki og á síðustu mínútu
leiksins skoraði svo Norð mað -
urinn Alexander Toft Söderlund
glæsilegt mark og tryggði FH
sigurinn.
Þetta var annar sigur FH því
sl. fimmtudag sigraði FH lið
Fram 2-1 eftir að hafa lent 0-1
undir eftir slakan fyrri hálfleik.
FH tapaði fyrsta leik sínum
gegn Keflavík 0-1.
Spennandi grannaslagur
FH á heimaleik gegn nýlið -
um Stjörnunnar úr Garðabæ á
laugardaginn á Kaplakrika en
gegn öllum spám er Stjarnan í
efsta sæti hefur unnið alla leiki
sína, hefur skorað 11 mörk og
fengið aðeins eitt mark á sig.
Það verður því spennandi
grannaslagur í Kaplakrika á
laugardaginn kl. 14.
Hnökrar hjá Íslandsmeisturunum
Sigruðu í tveimur síðust leikjum eftir að hafa orðið undir
FH-ingar fengu dæmda vítaspyrnu á þetta brot Fram en skoruðu ekki.
L
jó
s
m
.:
J
.
L
.
L
á
ru
s
s
o
n
L
jó
s
m
.:
J
.
L
.
L
á
ru
s
s
o
n
Það sjást oft skondin atvik.
FH-ingar voru kampakátir
eftir sigur á Breiðabliki á
elleftu stundu.
L
jó
s
m
.:
G
u
ð
n
i
G
ís
la
s
o
n