Fjarðarpósturinn - 04.06.2009, Blaðsíða 6
6 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 4. júní 2009
www.flensborg.is
Minnt er á að innritun í Flensborgarskólann
stendur yfir og lýkur á miðnætti 11. júní.
Allar upplýsingar um skólann
og innritunina er að finna á
heimasíðu skólans www.flensborg.is
Innritun í
Flensborgarskólann
Fjarnám fyrir grunnskólanema
í Flensborgarskólanum
Haustið 2009 eru í boði eftirtaldir áfangar:
DAN 152, ENS 103, ÍSL 103 og STÆ 103.
Fjarnámið er fyrst og fremst hugsað fyrir þá nem -
endur grunnskólanna sem uppfylla skilyrði þeirra til
að hefja nám á framhaldsskólastigi. Innritun fer
fram í grunnskólunum og skal lokið 11. júní n.k.
Sérstakur kynningarfundur um fjarnámið
fyrir nemendur og foreldra verður í Flensborgar -
skólanum mánudaginn 8. júní kl. 17:00.
Á fundinum verður einnig hægt að skrá sig
í fjarnámið.
Nánari upplýsingar um fjarnám veitir fjarnámsstjóri
Unnar Örn Þorsteinsson í síma 5650400 eða með
fyrirspurn á netfangið unnart@flensborg.is.
Skólameistari
Umhverfismál voru megin -
umræðuefnin á vinabæjarmóti
nor rænu vinabæja Hafnar fjarð -
ar í Uppsala í Svíþjóð 21.-24.
maí sl. Á málþingi kynntu full -
trúar sveitarfélaga það sem
helst er að gerast í um hverfis -
málum í heimabyggð. Hún bar
hæst þátttaka hafnfirskra ung -
menna í samstarfsverkefni með
öðrum ungmennum frá vina -
bæjunum. Venja er að ung -
menni frá hverjum vinabæ hitt -
ist á mótinu og vinni saman
sam kvæmt þema vinabæjar -
mótsins. Unga fólkið setti upp
leikverk en þau höfðu einungis
fjóra daga til að setja saman
sýningu og var útkoman mjög
áhrifamikil og heillandi sýning
með skýrum boðskap um að
huga betur að umhverfi okkar
sem er sameign okkar allra.
Sýningin hófst með glæsi -
legu opnunaratriði og var
gestum skipt upp í þrjá hópa.
Síðan var hópunum vísað á þrjá
mismunandi staði fyrir utan
leikhúsið þar sem búið var að
setja upp leikmynd. Fyrsta
leikmyndin var fyrir framan
leikhúsið og þemað var
andrúmsloftið. Þar var því gerð
góð skil hversu mikilvægt það
er að anda að sér hreinu og
fersku lofti, og hvað helst gæti
mengað það og spillt. Önnur
leikmyndin var í húsi gegnt
leikhúsinu og þar var jörðinni
gerð skil, þ.e. hversu mikilvægt
er að rækta hana og hlúa vel að
umhverfinu í kringum okkur.
Síðasta leikmyndin var í
bakgarði leikhússins og var
fjallað sérstaklega um vatnið.
Lögð var sérstök áhersla á að
geta drukkið, baðað sig og synt
í hreinu og fersku vatni. Í öllum
þessum atriðum var alltaf gert
grein fyrir því jafnvægi sem
þarf að ríkja svo að manneskjan
fari ekki illa með þessi
mikilvægu grunnþætti
umhverfis okkar. Lokaatriðið
var síðan í sýningarsalnum
sjálfum og þar fengu allir að
njóta sýn í söng, dansi og
loftfimleikum. Í lok sýningar -
innar urðu mikil fagnaðarlæti
og var það samdóma álit þeirra
sem sóttu vinabæjarmótið heim
að þáttur ungmennanna væri
hápunktur mótsins.
Umhverfismál ungmenna í Uppsala
Ásgrímur Gunnarsson, Birna Rún Eiríksdóttir, Fannar Logi
Bergþórsson, Elmar Þórarinsson, Björk Guðmundsdóttir, Vigdís
Ósk Howser, Auðunn Lúthersson og Kristín Pétursdóttir.
Dagskrá Bjartra daga fór vel
af stað. Hæst bar setningar -
daginn, sl. fimmtudag þegar
söngkonan Jóhanna Guðrún
Jónsdóttir var útnefnd bæjar -
listamaður Hafnarfjarðar og
tveir ungir listamenn, Ing unn
Fjóla Ingþórsdóttir, mynd -
listamaður og Kristján Tryggvi
Martinsson tónlistarmaður
fengu hvatningarstyrki. Ungir
Hafn firðingar biðu í löngum
röðum eftir að fá eigin -
handaráritanir og gaf Jóhanna
Guðrún sér góðan tíma við að
sinna aðdáendum sínum.
Um kvöldið fjölmenntu
bæjar búar á vinnustofur lista -
manna og góð aðsókn var m.a.
á tónleika í heimahúsi á Sel -
vogsgötunni. Sópranós stelp -
urnar ullu ekki vonbrigðum á
föstudag og um helgina var list-
ratleikur á Víðistaðatúni, tón -
leik ar, djass og sögusýningin
Lífið við höfnina var opnuð í
Pakkhúsinu. Hápunktur Bjartra
daga er svo sjómannadagurinn
og 100 ára afmæli hafnarinnar
og ekki má gleyma lokaballinu
í íþróttahúsinu á laugardag.
Líflegt á Björtum dögum
Ball og hátíð sjómannadagsins um helgina
Frá tónleikum Aladár og Guido á Selvogsgötunni.
Leitin að hreina landinu í flutningi skólahóps Smáralundar í Gúttó.
Jóhanna Guðrún, bæjarlistamaður Hafnarfjarðar 2009.
L
j
ó
s
m
.
:
G
u
ð
n
i
G
í
s
l
a
s
o
n
L
j
ó
s
m
.
:
G
u
ð
n
i
G
í
s
l
a
s
o
n
Frá norrænu frímerkjasýningunni.
L
j
ó
s
m
.
:
G
u
ð
n
i
G
í
s
l
a
s
o
n
Á vinnustofu listamanns.
Allir vildu eiginhandaráritanir.