Fjarðarpósturinn - 04.06.2009, Side 9
Alls útskrifuðust 63 ein -
staklingar á vorönn Flens borg -
ar skóla með samtals 65 próf.
11 nemendur útskrifuðust af
fjölmiðlatæknibraut, tveir
einnig með stúdentspróf, 1
nemandi af starfsbraut, og 53
stúdentar þar sem karlar voru
fleiri sem er sjaldgæft. 16
útskrifuðust af félagsfræða -
braut, 5 af málabraut, 21 af
náttúru fræðibraut, 5 af við -
skipta braut og 6 með viðbótar -
nám til stúdentsprófs af fjöl -
miðlabraut. 12 nemendur luku
stúdentsprófi eftir þriggja vetra
nám. Það er óvenjulega hátt
hlut fall.
Bestum árangri á stúdents -
prófi náði Kristín Fjóla
Reynsidóttir eftir 3 ára nám og
næstur í röðinni, mjög skammt
undan, var Þorleifur Úlfarsson
en bæði voru þau á náttúru -
fræði braut. Bæði með fyrstu
ágætiseinkunn.
Fjölmörg verðlaun voru veitt,
sum af skólanum, en auk þeirra
gáfu Gámaþjónustan, Rótarý -
klúbbur Hafnarfjarðar, sendi ráð
Danmerkur, Frakklands og
Kanada og Stærðfræðafélagið
verðlaun.
www.fjardarposturinn.is 9Fimmtudagur 4. júní 2009
Bæjarhraun 6 • 220 Hafnarfjörður • Sími 520-8003 • www.stilling.is
Demparar
Frummatsskýrsla fyrir Suðvesturlínur vegna
mats á umhverfisáhrifum var lögð inn til
málsmeðferðar hjá Skipulagsstofnun 20. maí
síðastliðinn og á næstunni efnir Landsnet til
kynningar á niðurstöðum hennar á opnu húsi.
Opin hús verða á eftirfarandi stöðum:
- Haukahúsinu á Ásvöllum í Hafnarfirði
föstudaginn 5. júni, milli kl. 16 og 19,
- Kríunesi við Elliðavatn
sunnudaginn 7. júní, milli kl. 14 og 17,
- Virkjun á flugvallarsvæðinu í Reykjanesbæ,
mánudaginn 8. júní, milli kl. 16 og 19.
Gögn vegna breytinga á aðalskipulagi sveitar-
félaga sem verkefnið nær til munu einnig liggja
frammi til kynningar á þessum fundum.
Frummatsskýrslan er aðgengileg á vef
Landsnets, www.landsnet.is, á vef EFLU
verkfræðistofu, www.efla.is, og á heimasíðu
verkefnisins, www.sudvesturlinur.is.
Suðvesturlínur / Frummatsskýrsla
Nýlega lánaði Toyota á
Íslandi Hafnarfjarðarbæ þrjá
bíla af gerðinni Toyota Prius
sem eru tvinnbílar, bílar með
bensínvél og rafmótor. Samspil
bensínvélarinnar og rafmótors -
ins í þessum bílum er alsjálf -
virkt og háspenntur rafgeymir -
inn hleðst við akstur á bensín -
vélinni og þegar bremsað er eða
þegar bíllinn er látinn renna.
Með þessu á að nást mun
minni mengun en ella og vilja
forsvarsmenn Toyota kynna
þessa tækni fyrir umhverfis -
sinnuðum starfsmönnum Hafn -
ar fjarðarbæjar og sagði Úlfar
Steindórsson, forstjóri Toyota á
Íslandi ánægjulegt hversu
viðbrögð Hafnarfjarðarbæjar
voru góð og snör.
Priusinn er stór og öflugur
bíll og í raun alveg eins að aka
og öðrum bílum nema hvað
hann er hljóðlátari þegar raf -
mótorinn er nýttur.
Hafnarfjarðarbær prófar tvinnbíla
Toyota lánar Hafnarfjarðarbæ 3 tvinnbíla til reynslu
Guðfinna Guðmundsdóttir, formaður umhverfisnefndar tekur við bíl -
lyklum úr hendi Úlfars Steindórssonar, forstjóra Toyota á Íslandi.
L
jó
s
m
.:
G
u
ð
n
i
G
ís
la
s
o
n
Sífellt er verið að hvetja
bæjarbúa til að sinna umhverfi
sínu og flestir garðeigendur í
Hafnarfirði eru mjög áhuga -
samir og sinna görðum sínum
vel. Við vaxandi garðrækt fellur
ýmiss lífrænn úrgangur sem
ekki alltaf ratar í heima -
jarðgerð. Gámaþjónustan sem
fagnar 25 ára afmæli sínu um
þessar mundir kynnir nú nýja
þjón ustu við garðeigendur,
garða poka til viðbótar við
garðatunnuna. Pokarnir eru 150
lítra og seldir fimm saman og
sendir til viðskiptavina á höfuð -
borgarsvæðinu innan tveggja
daga frá pöntun og er sóttur
þegar þess er óskað og er sú
þjónusta innifalin í verði pok -
anna. Garðatunnan er hins
vegar losuð reglulega á tveggja
vikna fresti yfir sumar mánuð -
ina.
Panta má pokana á
gardapokinn.is og tunnuna á
gardatunnan.is
Innihaldið er svo nýtt til
jarðgerðar í fullkominni garð -
gerðarstöð Gámaþjónustunnar
við Berghellu í Hafnarfirði.
Sveinn Hannesson, fram -
kvæmda stjóri Gámaþjónust -
unnar afhenti fyrir skömmu
Þorbjörgu Helgu Vigfúsdóttur,
formanni umhverfis- og sam -
gönguráðs Reykjavíkur fyrstu
pokana í Grasagarðinum í
Laugardal.
Ný þjónusta við garðeigendur
Grænn poki og græn tunna
Sveinn Hannesson, framkvæmdastjóri Gámaþjónustunnar kynnir
nýju lausnirnar í Grasagarðinum í Reykjavík.
L
jó
s
m
.:
G
u
ð
n
i
G
ís
la
s
o
n
Auglýsing í Fjarðarpóstinum borgar sig!
Auglýsingasíminn er 565 3066
63 útskrifaðir í Flengborg
Þar af 53 stúdentar og strákar fleiri en stelpur
L
jó
s
m
.:
L
á
ru
s
K
a
rl
I
n
g
a
s
o
n