Fjarðarpósturinn - 04.06.2009, Blaðsíða 10
Kaffisala á
Hrafnistu
Hin árlega kaffisala á Hrafn -
istu á sjómannadaginn verður
kl. 14-17.
Das-bandið spilar, Hrafnistu -
kór inn syngur, Guðmundur
Ólafs son syngur og sýning
verð ur á myndlist og hand -
verki. Þá verður handverks -
basar á vegum iðjuþjálfunar.
Handverkssýningin og basar -
inn verður einnig opin mánu -
daginn 8. júní kl. 10-15.
Ný sýning
Huldufólk og talandi steinar í
myndheimi Sveins Björnssonar
er ný sýning Sveinssafns í
Krýsuvík og er framhald af
sýningum í Hafnar borg. Þetta
er fimmta sýn ing Sveinssafns í
Krýsuvík og er sýningin opin
fyrsta sunnudag í hverjum
mánuði yfir sumar tímann kl.
13.30 - 17 en einnig á öðrum
tím um samkvæmt samkomu -
lagi fyrir hópa fólks.
Deiglan opin
Deiglan, sem starfrækt hefur
verið í gamla Lækjarskóla, ekki
síst fyrir atvinnulausa, verður
opinn í sumar eins og verið
hefur frá kl. 9 til 12 alla virka
daga, en enginn skipulögð
dagskrá verður í boði. Dagskrá
hefst aftur í haust.
10 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 4. júní 2009
Eldsneytisverð
3. júní 2009 í Hafnarfirði:
Sölustaður 95 okt. dísil
Atlantsolía, Kaplakr. 179,8 170,2
Atlantsolía, Suðurhö. 179,5 169,9
Orkan, Óseyrarbraut 179,4 169,8
ÓB, Fjarðarkaup 179,4 169,8
ÓB, Melabraut 179,8 170,2
ÓB, Suðurhellu 179,8 170,2
Skeljungur, Rvk.vegi 181,3 171,7
Öll verð miðast við sjálfs af greiðslu og
eru fundin á vef síð um olíufélaganna.
Að auki getur verið í boði sérafsláttur.
Efri hæð í tvíbýlishúsi að Nönnustíg
8 er til leigu. Upplýsingar í s. 897
0813 eða 554 2441, Rafn.
Opin og björt 2ja herbergja íbúð til
leigu í fallegu fjölbýli á
Kirkjuvöllum í Hafnarfirði með
stæði í bílakjallara. 110
þús/mánuði. Reglusemi og góð
umgengni skilyrði. Frekari
upplýsingar í síma 692 7737, eða
hildabjorg@gmail.com
Óska eftir 3 - 4 herbergja íbúð frá
ágúst eða síðar næsta haust.
Greiðslugeta 90 - 100 þúsund á
mánuði. Er í öruggu starfi og get
komið með meðmæli ef óskað er.
Upplýsingar í síma 896 3163.
Óska eftir húsnæði til leigu á
Álftanesi. A.m.k. 4 herbergi.
Uppl. í s. 824 5709.
Ódýr garðsláttur og öll almenn
garðvinna. Geri tilboð þér að
kostnaðarlausu.
Blokkir/einbýlishús.
Hafið samband í s. 662 0588.
Fataskápur, borð og barstólar til
sölu. Drapplitaður fataskápur með
3 hurðum (136x210 cm), skúff -
um, hillum og hengi til sölu á
8000 kr. 3 svartir barstólar til
sölu. Hæðarstillanlegir. Líta út eins
og nýir! Verð 5000 kr. stk. Allir á
12000 kr. Brún borðplata (79x
120 cm) til sölu á 2000 kr. Einn
fótur fylgir. Nánari uppl. hjá
Borghildi eftir kl. 20 í s. 899 9272
eða hjá Jóhanni í s. 696 9166
Þú getur sent
smáauglýsingar á:
a u g l y s i n g a r @ f j a r d a r p o s t u r i n n . i s
e ð a h r i n g t í s í m a 5 6 5 3 0 6 6
A ð e i n s 5 0 0 k r .
Tapað-fundið og fæst gefins: F R Í T T
A ð e i n s f y r i r e i n s t a k l i n g a .
R e k s t r a r a ð i l a r :
Fáið tilboð í rammaauglýsingar!
Húsnæði óskast
Til sölu
Húsnæði í boði
Þjónusta
Kistur • Krossar • Sálmaskrár • Duftker • Blóm • Fáni • Gestabók • Erfidrykkja • Prestur
Kirkja • Legstaður • Tónlist • Tilkynningar í fjölmiðla • Landsbyggðarþjónusta • Líkflutningar
Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is
Vaktsími: 565 5892 & 896 8242 • Sólarhringsvakt
Komum heim til aðstandenda ef óskað er
Bryndís Valbjarnardóttir
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
Það sem hafa ber í huga varðandi andlát og útför
Hermann JónassonSverrir Einarsson Jón G. Bjarnason
Árangur með
Herbalife
Aukin orka -
Betri líðan
Gerður Hannesdóttir
gsm 865-4052
ghmg@internet.is
Pantaðu frían
prufupakka!
SAUMAKONA
í Hafnarfirði
- földun - rennilásar - gardínur
- hvers kyns saumaskapur
GOTT VERÐ
Reykjavíkurvegi 22
á bak við Sjónarhól
Opið kl. 17 til 21
miðvikudagar lokað
Sími 867 2273
LOFTNETS OG SÍMAÞJÓNUSTA
Viðgerðir og uppsetningar á
loftnetum, diskum, heimabíóum,
flatskjám. Síma- og tölvulagnir
Loftnetstaekni.is
sími 894 2460
Sæll Lúðvík
Ég vel þá leið að senda þessar
línur til þín í gegnum Fjarð -
arpóstinn þar sem formlegar og
óformlegar umkvartanir íbúa
Austurgötu 9 hafa engu skilað
og því ekki nokkur
leið að vita hvar
erindi okkar er niður -
komið. Það hefur
sem sagt ítrekað ver -
ið óskað eftir hraða -
stillandi að gerð um á
þeim enda Austur -
göt unnar sem hefur
af einhverjum ástæð -
um verið algjörlega
af skiptur í endur -
nýjun gatna í miðbænum. Hér
er ekki einu sinni gangstétt til
að forða sér undan umferðinni
en það er líklega efni í aðra
grein; „Af hverju er ekki gang -
stétt á allri Austurgötunni?“
Það kann að hljóma undar -
lega að hraðakstur skuli vera
vanda mál í litlum 150 metra
gatna stubbi en svo er nú samt,
enda hvorki skilti né hraða -
hindranir á svæðinu til að draga
úr hraða. Það er þó enn undar -
legra að ekki skuli hlustað á
ósk ir bæjarbúa í málum sem
snúa beint að öryggi barna. Ég
gæti nefnt nokkur nýleg dæmi
þar sem ég og fjölskyldan mín
hefur beinlínis verið í hættu
vegna umferðar í götunni en í
dag er mælirinn fullur. Þriðju -
daginn 2. júní lagði ég bílnum í
bílastæði sem liggur samsíða
húsinu mínu og hvergi var
neina umferð að sjá. 6 ára dóttir
mín opnar aftur hurð -
ina götumegin en um
leið kom þar að bíll á
mikilli ferð sem
keyrði á hurðina af
miklu afli. Sam -
kvæmt formúlu á
Vís indavefnum sam -
svara bremsuförin
því að bíllinn hafi
ver ið á 35 km. hraða
EFTIR að hafa keyrt
á bílinn minn og hefur væntan -
lega til viðbótar náð að draga úr
ferð áður en bremsan var stigin
í botn, hámarkshraði í götunni
er 30 km.
Dóttir mín slapp í þetta skipt -
ið en kærir sig einhver um að
hugsa þá hugsun til enda ef lítil
stúlkuhönd hefði klemmst á
milli eða hún búin að stökkva
úr sæti sínu? Er verið að bíða
eftir slíku slysi áður en eitthvað
verður gert? Ég trúi ekki öðru
en að á næstu dögum verði haft
samband við okkur þar sem við
verðum spurð nánar um
nauðsynlegar úrbætur.
Höfundur er foreldri og íbúi
á Austurgötu 9.
Opið bréf til bæjarstjóra
Axel Einar
Guðnason
Páll Eyjólfsson, liðsmaður
Papa og framkvæmdastjóri um -
boðsskrifstofunnar Prime, segir
að með dansleiknum á laugar -
dag séu Papar og Egó að hefja
sumarsamstarf 8 dans leikja og
með því sé verið að endurvekja
gömlu sveitaballa stemmn ing -
una þar sem stórar hljóm sveitir
héldu uppi fjörinu. Seg ist Páll
finna fiðringinn í bæn um, fólk
sé greinilega spennt fyrir dans -
leiknum enda ekki á hverjum
degi sem tækifæri gefst að
dansa í takti við þessar stór -
hljómsveitir.
Paparnir eru að gefa út disk í
dag og Egó gefur út disk í haust
svo búast má við nokkrum
nýjum lögum í bland við gömlu
góðu lögin sem hljómsveitirnar
eru þekktar fyrir. Húsið verður
opnað kl. 23 og dansleikurinn
verður til kl. 3.30. Aldurs -
lágmark er 20 ár en Páll býst
við fólki á öllum aldri. Dans -
gólfið er risastórt og vel á að
fara um fólk. Segir hann
ánægju legt að finna fyrir velj -
vilja bæjaryfirvalda á svona
tónleikum og segir samstarfið
vera ánægjulegt en dans leik -
urinn er lokadansleikur Bjartra
daga.
Forsala miða er á midi.is og í
Súfistanum í Hafnarfirði.
„Sveitaball“ á laugardaginn
Paparnir, Egó og Bubbi á stórdansleik í
Íþróttahúsinu við Strandgötu á Björtum dögum
„Mér finnst skemmtilegast að
spila boogie woogie og blús
shuffle, tónlist með „frá -
slætti“,“ segir hinn góðþekki
KK í viðtali við Fjarðarpóstinn
en hann verður í Bæjarbíói á
föstudaginn með tónleika
ásamt Jóni Ólafssyni, hljóm -
borðs leikara og Þorleifi Guð -
jónssyni, kontrabassaleikara.
KK segir enga ástæða til að
vera alvarlegur á föstudags -
kvöldi, allra síst með þessum
mönn um og þegar þeir séu
sam an sé einfaldlega svo gam -
an. Þeir ætla að leika ný lög og
gömul, jafnvel sjómannalög í
tilefni sjómannadagsins. „Það
er sérstaklega gaman að spila
með góðu fólki sem þekkir
lögin mín í bak og fyrir,“ segir
KK og hlakkar til tónleikanna.
Hann segir dásamlegt að
leika í Bæjarbíói sem sé eitt
skemmtilegasta tónlistarhús
sem hann leiki í. Hann hafi
kynnst því á aðventutónleikum
með Ellen systur sinni sem
hann ætlar að endurtaka á vetri
komandi. Forsala er á midi.is
Skemmtilegast að spila boogie
KK og félagar leika í Bæjarbíói
Hver þekkir ekki erfiðleika
við að koma sláttuvélinni eða
sláttuorfinu í gang eftir vetur -
inn? Fyrirtækið UMOE að
Brekkutröð 1 sérhæfir sig í að
gera við sláttuvélar af öllum
stærð um og gerðum og aðrar
smá vélar. Valgeir Pétursson hjá
UMOE segir fyrirtækið hafa
mikla reynslu á þessu sviði og
sjái m.a. um viðgerðir á fjöl -
mörgum sláttutækjum Reykja -
víkur borgar, stórum og smáum.
Því til viðbótar er fyrirtækið
með almenna járnsmiðju og
vinnur fjölda verkefna á því
sviði auk þess að sérhæfa sig í
þjónustu við álver í samstarfi
við UMOE í Noregi en Valgeir
hefur langa reynslu við þá grein
víða um heim.
Gerir við sláttuvélar
og aðrar smávélar
Ný þjónusta hjá UMOE í Brekkutröðinni
Sláttuvél í góðum höndum.
L
jó
s
m
.:
G
u
ð
n
i
G
ís
la
s
o
n