Fjarðarpósturinn - 16.07.2009, Page 2
2 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 16. júlí 2009
Bæjarráð hafði vit fyrir útdauðri miðbæjar -
nefndinni og hafnaði því að tyrfa Thorsplanið.
Hugmyndin var að leggja grastorfur á nýja
Thorsplanið þar sem skilyrt var, þegar það var
gert, að það skyldi leggja opnum steinum sem
gras gæti vaxið upp á milli. Þetta varð til þess
að prúðbúnar konur forðuðust planið og
jafnvel þeir sem voru slæmir til gangs. Grasið
eitt sér bætir ekki mannlífið í miðbænum.
Alveg eins hefði mátt rökstyðja það að betra væri að leggja planið
sléttum steinflísum, þar sem mætti raða stólum og dansa svo fátt
eitt sé nefnt. Á meðan enginn pólitískur kjarkur eða vilji er til að
stýra betur uppbyggingu í miðbænum eykst varla lífið í bænum. Á
meðan stjórnmálaflokkarnir hafa höfuðstöðvar sínar í verslunar -
rýmum í stað þess að fá verslun eða þjónustu í þau eykst varla lífið
í miðbænum. Það þarf kjark til að stýra bæjarfélagi til árangurs og
þann kjark vantar. Í vor verður kosið og allt er á huldu hvað verður
í boði fyrir bæjarbúa. Hverjir eru tilbúnir að vinna faglega að
uppbyggingu bæjarins? Það virðist ljóst að vinur minn Haraldur
Ólason ætlar sér ekki að vera í brúnni hjá Sjálfstæðisflokknum og
þar er eftir að finna arftaka sem sátt er um. Gunnar félagi Svavars -
son virðist stefna út úr pólitík og sumir hafa jafnvel orðað hann við
forstjóra Landsvirkjunar en sú staða er að losna. Er þá mikið loft
úr Samfylkingunni ef hann fer. Kannski það komi fram nýtt
framboð sem bylti mynstrinu í hafnfirskri pólitík. Það virðist þó
ekki vera áhugavert að hella sér í pólitík þegar ástandið er eins og
það er. En menn geta þó sagt við sig að leiðin er brátt aðeins upp
á við. Við þurfum stjórnun á bænum sem ekki þarf marga fundi til
að ná niður einu skilti um stöðutíma bifreiða og ná samt ekki að
leysa upprunalegt vandamálið þrátt fyrir allt. Geti menn ekki leyst
einföldustu vandamál, hvernig á þá að taka á þeim stóru. Ný
bæjarstjórn þarf að hafa kjark til að stilla stjórnkerfið betur. Þora
að marka stefnu og dreifa valdi. Þora að setja reglur og fara eftir
þeim. Þeir sem telja sig hafa erindi í bæjarstjórn og hafa áhuga á
málefnum bæjarins í heild geta notað tímann nú í sumar að horfa
í kringum sig, skoða bæinn, mannlífið og sjá hvað gott er og hvað
megi gera betur.
Fjarðarpósturinn fer nú í þriggja vikna sumarfrí og ég óska
lesendum ánægjulegs og farsæls sumars.
Guðni Gíslason.
Útgefandi: Keilir ehf. útgáfufélag, kt. 480307-0380
Fjarðarpósturinn, Bæjarhrauni 2, 220 Hafnarfirði
Vinnsla: Hönnunarhúsið ehf., umbrot@fjardarposturinn.is
Ritstjóri og ábm.: Guðni Gíslason
Ritstjórn: 565 4513, 896 4613, ritstjorn@fjardarposturinn.is
Auglýsingar: 565 3066, auglysingar@fjardarposturinn.is
Prentun: Steinmark ehf. Dreifing: Íslandspóstur
ISSN 1670-4169 – Vefútgáfa: ISSN 1670-4193
www.fjardarposturinn.is
Sunnudagur 19. júlí
Sumarguðsþjónusta kl. 10.30
Prestur: Sr. Þórhallur Heimisson
Ræðuefni: „Þjónandi kirkja“
Organisti: Guðmundur Sigurðsson
Fimmtudagur 23. júlí
Samtímakórverk og
heimstónlist kl. 20
Northern Spirit kammerkór
Í boði Hafnarfjarðarkirkju heldur Kammerkórinn Northern Spirit
ásamt stjórnanda sínum Gordon Hamilton tónleika í
Hafnarfjarðarkirkju n.k. fimmtudag 23. júlí kl. 20.
Gestakór á tónleikunum verður Flensborgarkórinn
undir stjórn Hrafnhildar Blomsterberg.
Aðgangur er ókeypis.
Northern Spirit er 24 manna hópur kórsöngvara á aldrinum 16-26 ára sem
hafa helgað sig flutningi samtímakórverka og heimstónlistar.
Á efnisskránni er að finna ferskt og fjölbreytt úrval samtímakórtónlistar þar á
meðal verk eftir söngstjórann, hinn ástralska Gordon Hamilton ásamt
veraldlegum og trúarlegum verkum ýmissa samtímahöfunda. Upp á síðkastið
hefur kórinn lagt mikla áherslu á heimstónlist, einkum þýsk þjóðlög. Í mörgum
verkanna kveður vægast satt við við afar óvenjulegan tón!
ÚTFARARÞJÓNUSTA
HAFNARFJARÐAR
SÍMI 565 9775 - ALLAN SÓLARHRINGINN - UTH.IS
Frímann Andrésson
útfararstjóri
hÁLFDÁN hÁLFDÁNARSON
útfararstjóri
LOFTNETS OG SÍMAÞJÓNUSTA
Viðgerðir og uppsetningar á
loftnetum, diskum, heimabíóum,
flatskjám. Síma- og tölvulagnir
Loftnetstaekni.is
sími 894 2460
Sendibílaþjónusta í 25 ár!
Benni Ben. • 893 2190
SAUMAKONA
í Hafnarfirði
- földun - rennilásar - gardínur
- hvers kyns saumaskapur
GOTT VERÐ
Reykjavíkurvegi 22
á bak við Sjónarhól
Opið kl. 17 til 21
miðvikudagar lokað
Sími 867 2273
Sumarhátíð ÍTH
Sumarhátíð íþrótta- og tómstunda -
nefndar verður haldin á Víðistaðatúni
í dag og hefst kl. 13. Þátttakendur
koma frá Vinnuskóla Hafnarfjarðar,
skóla görðum, íþrótta- og leikja nám -
skeiðum, róló og annarri starfsemi
sem Hafnarfjarðarbær rekur yfir
sumartímann. Boðið verður upp á
rjúkandi pylsur, skemmtiatriði, leiki
og fleira. Allir bæjarbúar eru
velkomnir.
Ljósmyndasýningin Krísa
Í dag kl. 17 verður opnuð ljós -
mynda sýningin Krísa í Gúttó við
Suðurgötu. Krísa er ljósmynda verk -
efni um eina af sýnilegustu afleið -
ingum banka hrunsins á Íslandi
2008. Víða standa auð og hálfkláruð
hús sem ekki seljast. Í mörgum
sveitarfélögum Íslands standa heilu
hverfin hálftóm.
Þetta gerði Íris Stefánsdóttir að
lokaverkefni sínu í fréttaljósmyndun
fyrir ljósmyndaskólann Istituto Euro -
peo di Design, í Mílanó á Ítalíu, en
þaðan útskrifaðist hún með hæstu
einkunn í júlí 2009. Krísa er fyrsta
einkasýning Írisar en hún hefur áður
tekið þátt í sýningum á Ítalíu.
Íris valdi að einbeita sér að
sveitarfélögunum Hafnarfirði og
Garðabæ. Þar, líkt og í öðrum
sveitarfélögum, hefur bjartsýni verið
mikil og hafa þau að geyma hverfi
með hálfkláruðum húsum og
ófrágengnum götum.
Opinn dagur hjá Competo í
Gamla Bókasafninu
Föstudaginn 17. júlí kl. 12-16
verður opinn dagur hjá Competo –
Jafningja fræðslunni í Hafnarfirði. Allir
sem hafa áhuga á starfsemi Com -
peto eru velkomnir að koma og
kynna sér starfið. Foreldrar barna í
Vinnuskólanum eru sérstaklega
hvattir til að mæta.
Safnarar í Hafnarborg
Sýningin Safn(arar) er haldin í tilefni
þessa að 100 ár eru liðin frá fæðingu
Sverris Magnússonar sem lagði
grunninn að Hafnarborg. Sýningin er
mjög fjölbreytt og allir ættu að finna
eitthvað við sitt hæfi. Sýning stendur
til 3. ágúst.
Kári tenór
syngur í
Víðistaðakirkju
Kári Friðriksson tenór heldur
um þessar mundir einsöngs tón -
leika vítt um landið. Hann
syng ur í Víðistaðakirkju á
mánu daginn kl. 20 og rennur
þriðj ungur aðgangseyris til
mæðra styrks nefndar Hafnar -
fjarðar. Kári mun syngja vin -
sælar aríur úr óperum Doni -
zetti, Puccini, Verdi, íslensk og
þýsk ein söngs lög, sígild meist -
ar averk píanó tónskáldanna
Chop in, Schu manns, Mendels -
sohn og Debussy. Píanóleikari á
tón leikunum er Nína Margrét
Gríms dóttir.
Nágrannar Arnar Skúlasonar
flugvirkja komust ekki hjá því
að sjá að hann varð fertugur
fyrir skömmu því vinir hans,
sem greinilega kalla sig
„Tigers“ höfðu látið mála þetta
graffitiverk á bílskúrinn hans.
Listrænn hrekkur á afmæli
L
j
ó
s
m
.
:
G
u
ð
n
i
G
í
s
l
a
s
o
n