Fjarðarpósturinn - 16.07.2009, Side 4
4 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 16. júlí 2009
SUÐURBÆJARLAUG
OPNUÐ AFTUR
Fimmtudaginn 16. júlí verður Suðurbæjar -
laug opnuð aftur en laugin hefur verið
lokuð um tíma vegna viðgerða. Um leið og
Suðurbæjarlaug hefur verið opnuð hefur
Sundhöllinni við Herjólfsgötu verið lokað,
vegna viðhalds, fram til 21. ágúst.
Nánari upplýsingar um opnunartíma sundlauga
bæjarins er að finna á www.hafnarfjordur.is
Skógar- og útivistardagur
fjölskyldunnar
laugardaginn 18. júlí
Bænalundur Höfðaskógi (skógræktin)
Kl. 14 Setning: Formaður Skógræktarfélags Hafnarfjarðar
Helgistund: Séra Gunnþór Ingason.
Tónlist: Sandra Jónsdóttir fiðluleikari og Þórdís
Gerður Jónsdóttir sellóleikari.
Kl. 14.30 Skógarganga að lokinni helgistund
Skátalundur - skátaskálinn
Kl. 14-16 Kaffi og vöfflur fyrir aðeins kr. 100,- í boði Gildisskáta
Hvaleyrarvatn
Kl. 14.30-16.30 Heitt í kolunum. Komið sjálf með á grillið.
Gróðrarstöðin Þöll / Skógræktarfélag Hafnarfjarðar
Kl. 14.30-16 Skógarhappdrætti fyrir yngstu kynslóðina. Dregið
úr réttum lausnum kl. 16.30. Heitt á könnunni
Sörlastaðir
Kl. 15-16 Börnin á hestbak, teymt undir börnum í boði
Íshesta og Sörla
Nánari upplýsingar hjá Skógræktarfélagi Hafnarfjarðar í síma 555 6455
Hvaleyrarvatn og nágrenni
Gallerí Útlit er alhliða snyrti -
mið stöð í Bæjarhrauni 6, Hafn -
ar firði en opnunarhátíð var hjá
fyrirtækinu 13. júní sl. Í Gallerí
Útliti eru þrjú fyrirtæki, hár -
greiðslustofa, snyrtistofa og
heildsala sem selur Calgel
nagla vörurnar og MakeupTime
4u förðunar vörurnar. Að sögn
Þuríðar Stefáns dóttur, fram -
kvæmda stjóra er boðið upp á
alla snyrtingu, hársnyrtingu og
förðun við öll tækifæri ásamt
ýmisskonar námskeiðum í
förð un og gervinöglum.
Hjá Gallerí Útliti starfar fag -
fólk með margra ára reynslu;
Arna Eyjólfsdóttir hársnyrtir,
Guðrún Bjarnadóttir, snyrti- og
naglameistari, Helga Lind Þór -
eyjardóttir snyrtifræðingur og
Þuríður Stefánsdóttir, snyrti- og
förðunarmeistari.
Frekar upplýsingar um
Gallerí Útlit er að finna á
www.galleriutlit.is
Ný þjónusta í Hafnarfirði
Gallerí Útlit opnaði að Bæjarhrauni 6 í júní
F.v. Arna Eyjólfsdóttir, Guðrún
Bjarnadóttir, Helga Lind Þór -
eyjardóttir og Þuríður
Stefáns dóttir.
Frá opnuninni; Olla, Gréta, Þorgerður og Böddi.
Skoskir siglingamenn á
skútunni Alba Voyager gistu í
Hafnarfjarðarhöfn um síðustu
helgi. Alba Voyager er ein af
þremur skútum sem Ocean
Youth Trust Scotland gerir út
og eru ætlaðar í leiðangra til að
þroska unga skota á aldrinum
12-24 ára bæði félagslega og
verklega með því að byggja
upp kunnáttu í einhverju sem
venjuleg borgarbörn eru alls
óvön og efla þannig með þeim
sjálfstraust og færni til að vinna
og búa í hóp. OYT hefur átt í
góðu samstarfi við Siglinga -
klúbbinn Þyt í Hafnarfirði síðan
árið 2004 og er þetta í þriðja
skiptið sem skúta frá þeim
hefur viðdvöl hér. Tólf ung -
menni ásamt sex manna áhöfn
sigldu skútunni frá Skotlandi til
Íslands með viðkomu í Vest -
mannaeyjum og Flatey á
Breiða firði áður en haldið var
til hafnar í Hafnarfirði. Þessi
hópur fór heim með flugi á
laugardag og annar tólf manna
hópur kom til landsins og siglir
bátnum frá Hafnarfirði til Skot -
lands, með viðkomu í Fær -
eyjum. Á skútunni eru tveir
fastráðnir menn, skipstjóri og
stýri maður, aðrir í áhöfn eru
sjálfboðliðar með margvíslegan
bakgrunn. Meðal áhafnar með -
lima í þetta sinn var jarð -
fræðingur sem öllu jöfnu starfar
við olíuleit víða um heim og
málfræðingur sem kennir við
háskóla í Glasgow. Þess má
geta að árið 2004 slóst Þyts -
maðurinn Nils Daníelsson í för
með skotunum frá Glasgow til
Íslands og sagði skipstjórinn,
Dan Russell, að það væri alltaf
opinn möguleiki að íslensk
ungmenni fengju að slást í för
en komast má í samband við
samtökin í gegnum heimasíðu
þeirra, oytscotland.org.uk.
Alba Voyager er 72 feta skúta
af Challenge gerð, byggður árið
2000 fyrir Global Challenge
keppnina. OYT á tvo þeirra
báta sem tóku þátt í keppninni.
Þetta eru stöðugar skútur og
vandaðar, enda byggðar til að
sigla rangsælis í kringum
jörðina í keppni.
S.l. laugardag buðu Skotarnir
félögum úr Þyt til skemmti -
siglingar um Faxaflóann. Nátt -
úran skartaði sínu fegursta og
hrefnurnar í flóanum „léku við
hvurn sinn fingur“.
Skosk ungmenni efld á skútu
Á siglingu utan við Straumsvík.
L
j
ó
s
m
.
:
H
a
l
l
u
r
H
e
l
g
a
s
o
n
Miklar landfyllingar - engin mold
Margir hafa undrast miklar
landfyllingar ofan við Hamra -
nes sem sjá má á myndinni.
Engin endurvinnsla fer fram og
íbúar þurf að aka upp í Álfsnes
til að sækja sér gróðurmold í
kerru. Þessi fylling þurfi ekki í
umhverfismat!
L
j
ó
s
m
.
:
G
u
ð
n
i
G
í
s
l
a
s
o
n