Fjarðarpósturinn - 16.07.2009, Qupperneq 7
www.fjardarposturinn.is 7Fimmtudagur 16. júlí 2009
TÖLVUHJÁLPIN
Viðgerðir, vírushreinsanir,
uppfærslur og uppsetningar
á PC tölvum. Kem í heimahús
Sanngjarnt verð
Sími 849-6827
Árangur með
Herbalife
Aukin orka -
Betri líðan
Gerður Hannesdóttir
gsm 865-4052
ghmg@internet.is
Pantaðu frían
prufupakka!
2. flokkur:
Fylkir - FH 3-1
Alma Gytha Huntingdon-Williams, 16 ára
Staða á vellinum: Miðja/kantur
Uppáhalds matur: Pönnukökur
Skemmtilegast að gera á æfingu: Spila
Leiðinlegast: Sendingar
Uppáhaldslið í enska: Chelsea
Nám / atvinna: MH / fótboltaskólinn og Súfistinn
Foreldrar: Guðrún og Marteinn
Sunna Dögg Steinarsdóttir, 17 ára
Staða á vellinum: Vörn
Uppáhalds matur: Núðlur með kjúklingi
Skemmtilegast að gera á æfingu: Reitur, spil
Leiðinlegast: Upphitun
Uppáhaldslið í enska: Manchester United
Nám / atvinna: Knattspyrnuskóli FH / Flensborg
Foreldrar: Steinar og Sigrún
Mætum á leikina og styðjum stelpurnar okkar!
Meistara- og 2. flokkur kvenna
Meistaraflokkur:
fös. 17. júlí kl. 20 FH - Völsungur Kaplakriki
2. flokkur:
mán. 27. júlí kl. 20 FH - Valur Kaplakriki
Kynning: Leikmenn vikunnar
Næstu leikir:Úrslit:
Það hefur borist út að Sam -
fylkingin og fylgismenn hennar í
ESB-málinu íhugi að koma í veg
fyrir að aðildarumsókn að ESB
fari í þjóðaratkvæði ef málið
kemst í gegn um þingið
óbreytt. Það liggur því
fyrir að afstaða þing -
manna VG kemur til
með að ráða úrslitum um
það hvort þetta mál nái
fram að ganga. Það er í
höndum Vinstri grænna
hvort Íslandi verði
fórnað á altari Ev rópu -
kratanna eða ekki. Það
er með ólík indum hve sterka
áherslu liðs menn Sam fylking -
arinnar leggja á aðild Íslands að
ESB. Hvað veldur?
Hvers vegna að þeirra mati má
þjóðin sjálf ekki taka þessa
þýðingarmiklu ákvörðun um
framtíðarstöðu Íslands í sam félagi
þjóðanna? Hvers vegna mega
landsmenn sjálfir ekki ákveða hvort
landið verður áfram fullvalda ríki
eða gangi á hönd alþjóðlegu
samveldi eins og ESB stefnir að
að verða? Hvaða hagsmuni eru
Sam fylk ingarmenn að verja? Og
hvers vegna eru Steingrímur J.
Sig fússon og félagar að afneita
fyrri samfæringu og gangast Sam -
fylkingunni á hönd? Hver er
dúsan? Hvar er fólkið sem safnað -
ist saman á Austurvelli og krafðist
afsagnar óhæfrar ríkis stjórnar?
Ætlar það að láta bjóða sér þetta?
Þegar þessi mótmæli áttu sér
stað á sínum tíma var því haldið
fram af Sjálfstæðismönnum að
VG stæði á bak við þetta. Það
þótti ekki trúverðugt en er það
ekki skrítið að öll mótmæli sem
síðan hafa verið boðuð gegn
núverandi ríkisstjórn hafa runnið
út í sand inn? Hvað veldur af stöðu
VG? Er draum urinn um Sovét-
Ísland enn að velkjast fyrir þeim
og sjá þeir ESB e.t.v. sem arftaka
Sovétríkjanna sál ugu? Ég býst
ekki við nein um svörum af þeirra
hálfu en bið alla þjóð -
holla Íslendinga að
velta þessum spurn ing -
um fyrir sér. Það verður
fróðlegt að sjá hvern ig
forsetinn bregðst við ef
málin þró ast á þennan
hátt. Mun hann verja
full veld ið með því að
neita að skrifa undir
eða mun hann áfram
verja hagsmuni aðila sem að hans
mati fyrir nokkrum áratugum
síðan voru landráðamenn? Það
hafa komið fram efasemdir í um -
ræð um um aðildarumsóknina
hvort það standist stjórnarskrá að
sækja um aðild að henni óbreyttri.
Þau vinnibrögð sem ríkistjórnin
við hefur í þessu máli eru með
ólík indum. Ef helstu stjórn spek -
ingar landsins benda á þennan
þröskuld þá er það auðvitað út í
hött að samþykkja svona fumvarp
áður en stjórnarskránni hefur
verið breytt ef það gengur þá eftir.
Og takið eftir því góðir
landsmenn það þarf tvö þing til
þess að samþykkja stjórnar skrár -
breyt ingu. Ég hélt að það væri nú
brýnni vandamál sem þingið þarf
að leysa og sem varðar tugþús -
und ir Íslendinga meira heldur
hvort sótt verði um aðild að ESB
á þessum tíma eða síðar. Auk þess
er það lítil von við þær aðstæður
sem við búum við í dag að við
get um í náinni framtíð uppfyllt
þau skilyrði sem ESB setur um
aðild ef svo sorglega vildi til að til
þess kæmi.
Höfundur er fv.
flugumferðarstjóri.
Landráð í uppsiglingu?
- hvað gerir forsetinn?
Bæjarhraun 6 • 220 Hafnarfjörður • Sími 520-8003 • www.stilling.is
Ferðabox
Pacific 100139 x 90 x 39 cm370 L43.900.-
Í síðasta blaði Fjarðar pósts ins,
skrifar bæjarfulltrúi Vinstri
Grænna, Guðrún Ágústa Guð -
munds dóttir varnargrein vegna
þeirrar áskorunar sem sett var fram,
af und ir rituð um, á bæj -
ar stjórn ar fundi í júní lok
að fækka ráðs mönn um
með sam starfi um kosn -
ingu eða með sam ráði
flokk anna þriggja.
Sú áskorun var ekki
sett fram í flýti né
„reiði“ vegna bók unar
minni hluta flokk anna
um hag ræð ing ar til lög ur
við endur skoðun fjár hagas áætl -
unar. Það var sam staða um hag -
ræðingar tillög urn ar og öll bæj -
arstjórnin stóð að gerð og af -
greiðslu þeirra. Áskor unin hafði
hins vegar áður komið fram efnis -
lega í umræðu og var til þess fall -
in að skapa svigrúm fyrir Vinstri
Græna og Sjálf stæð isflokkinn að
hugsa um skipt ingu í nefndir og
ráð m.a. í sam starfi við Sam fylk -
ingu til þess að hagræða.
Á þann hátt hefðu minni -
hlutaflokkarnir getað komið á
móts við þá hug mynd að sleppa
til nefningu áheyrnar full trúa, en
um leið tryggt að allir flokk arnir
þrír sem aðild eiga að bæjar -
stjórn, ættu fulltrúa í ráðum
bæjarins. Undir ritað ur var alfarið
tilbúinn til stuðnings
þeirri leið, jafnvel ef til
at kvæða greiðslu hefði
átt að koma, sem ekki
varð raunin. Það var
ekki brugð ist við þeirri
áskorun og það sem
eftir stendur er að nú
eru fulltrúar minni -
hluta flokk anna í ráð -
unum þrír í stað
tveggja. Full trúarnir eru jafn -
margir og full trúar Samfylk ing ar,
því á engan hátt er gert upp á
milli fulltrúanna í kostnaði og þar
með talið hagræðingu.
Einhver kynni að segja í stjórn -
málum sé ekki á allt kosið, allt
falli ekki eins og stafur að hurð,
hún sé skrítin tík þessi pólítík.
Það má taka undir slíkt sérlega í
ljósi þess vilja sem endurspeglaði
sig í niðurstöðu þessa máls. Hag -
ræða má á ýmsan hátt og oftar en
ekki í eigin ranni, minni hluta -
flokkar geta ekki verið stikkfrí í
Það sem eftir stendur...
Gunnar
Svavarsson
Hermann
Þórðarson
þeirri vegferð, sérlega þegar ekki
er tak mark aður að gangur þeirra
að hinum lýð ræðis lega vettvangi.
Lyft undir frekar en að hamla.
Áskorunin var sett fram til að
minni hluta flokkarnir gætu gert
hana að tillögu sinni, en til þess
var ekki nægur vilji. Viljinn var
allt sem þurfti. Það stendur eftir.
Höfundur er bæjarfulltrúi
Samfylkingarinnar