Fjarðarpósturinn - 16.07.2009, Síða 8
Umfangsmikið íþróttastarf er
rekið í Hafnarfirði og hefur
bæjarfélagið verið í fararbroddi
þeirra sem styðja vel fjár hags -
lega við íþróttaiðkun en áætlað
er að um 1,3 milljarðar kr. fari
úr sjóðum bæjarins til æsku -
lýðs- og íþrótta mála á þessu ári
og þar af fari til íþróttamála um
900 millj. kr. Aukning til
íþrótta mála er um 14% á milli
ára.
Alls er úthlutað 71 þúsund
tímum í íþróttamannvirkjum
bæjarins á starfsárinu 2009-
2010 en samningar við íþrótta -
félögin í bænum vegna rekstrar,
húsaleigu og íþróttastarfs yngri
iðkenda hljóðar upp á 566
millj. kr. árlega.
Skv. ársreikningum íþrótta -
félag anna fyrir 2007 og skýrslu
ÍBH 2008 eru félagsmenn í
íþróttafélögunum um 14.500
og iðkendur eru 9.670 í 33
starfseiningum 17 íþróttafélaga
í 26 íþrótta greinum.
Tekjur félaganna 2007 voru
898,8 millj. kr. og útgjöldin
voru 898,5 millj. kr. en þar vega
stærst knattspyrnudeild FH
með 160 millj. kr. veltu og
Golfklúbburinn Keilir með 135
millj. kr. veltu. Eignir félaganna
er metnar á 1.520 millj. kr. en
skuldir eru 554 millj. kr. og
vega skuldir vegna fasteigna
195 millj. kr. en vegna annars
359 millj. kr. Skulda félögin
105 millj. kr. til Hafnarfjarðar -
bæjar vegna fasteigna. Stærstu
félögin, FH, Haukar og GK eru
með 95% skuldanna.
Fjárfestingar Hafnarfjarðar -
bæjar 2008 vegna íþróttamála
voru um 2 milljarðar kr. en
fjárfestingar þessa árs eru ekki
meðtaldar í yfirilitinu.
Á síðasta ári eignuðst Hafn -
firðingar 565 Íslands meist ara.
Þetta kemur fram í yfirliti frá
íþróttafulltrúa.
8 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 16. júlí 2009
Allir á
sumarnámskeið!
Kaffi og gómsætar kökur
Súpa og brauð o,m.fl.
Strandgötu 29 • 555 3401
Opið alla daga
Garðúðun
Meindýraeyðir
Sigurður Ingi
Sveinbjörnsson
897 5206
www.meindyraeydir.is
Með öll tilskylin leyfi
VÖNDUÐ VINNA
7% hækkun
Fjölskylduráð samþykkti á
fundi sínum8. júlí sl. að gjald -
skrár, sem heyra undir fjöl -
skyldu ráð, hækki um 7% að
jafn aði. Gjaldskrár vegna sum -
ar námskeiða eru þó undan -
skildar.
50% hækkun
Rafmagn boðið út
Vatn sem selt er skv. mæli
hækkar um 50% skv. ákörðunar
framkvæmdaráðs. Hækkar það
1. ágúst nk. úr 12 kr. tonnið í 18
kr. tonnið.
Þá var Framkvæmdasviði
heimilað að bjóða út tryggingar,
rafmagn, öryggisþjónustur,
eldsneyti, salt og holræsa -
hreins un. Áður hafði verið
ákveðið að bjóða út sorphirðu í
bænum vinnur Fram kvæmda -
svið nú að útboðinu.
Útgjöld vegna íþrótta mála hækka
um 14% á milli ára
Áfram öflugt íþróttastarf í Hafnarfirðiog mikið munar um nýja sundlaug
Frá pólóæfingu hjá Sundfélagi Hafnarfjarðar.
L
jó
s
m
.:
G
u
ð
n
i
G
ís
la
s
o
n
Fjárhagsáætlun Hafnarfjarðarbæjar - yfirlit v/ íþróttamála: 2008 2009
Rekstrar- og þjónustugjöld samkvæmt samningum við íþróttafélög 189.830 208.300
Ásvellir, Kaplakriki, Hvaleyri, Sörlastaðir, Þytur, ÍBH, DÍH, Kvartm.kl. AÍH ofl.
Húsaleigukostnaður vegna Íþróttabandalags Hafnarfjarðar 250.914 261.900
30 þúsund tímar á 23 starfsstöðum
Niðurgreiðslur og annar stuðningur - vegna íþróttastarfs 224.372 173.000
Bláfjöll, Afreksmannasjóður, Alcan samningur, tryggingar ofl.
Reksturskostnaður Íþróttamannvirkja í Hafnarfirði 742.298 987.500
Meðtalin innri húsaleiga
Le Dré eða sá síðasti er
nafnið á bát sem skipa smíða -
stöðin Trefjar afhenti frönskum
eigendum sínum á þriðjudaginn
í Hafnarfjarðarhöfn. Töluvert
hefur verið að gera í nýsmíði
hjá Trefjum að sögn Þrastar
Auð unssonar framkvæmda -
stjóra sem segir afhendinguna á
Le Dré vera tímamót því þrátt
fyrir nafnið sé þetta fyrsti
báturinn sem seldur er á
franskan markað. Fjölmargir
bátar hafa verið seldir til Bret -
lands og væntir Þröstur þess að
þessi sala geti opnað fyrir
aukna sölu til Frakklands.
Le Dré er af gerðinni Cleó -
patra Fisherman 33, 10 metra
bátur sem sérútbúinn er fyrir
netaveiðar skv. frönskum venj -
um. Þröstur segir smíði á svona
bát skapa mikla atvinnu og
fjölmörk hafnfirsk fyrirtæki
vinni ýmis sérhæfð verk og
mik ið af tækjabúnaði sé keypt -
ur hér í bæ. Stutt er síðan
fyrirtækið afhenti Cleópötru 31
á Rif og svipaðan bát til
Hornafjarðar en slíkum bát var
siglt á milli hafna á Íslandi og í
Færeyjun nýlega þar sem
báturinn var kynntur.
Trefjar selur bát til Frakklands
Sennilega fyrsta nýsmíðin sem seld er þangað
Þröstur Auðunsson við Le Dré í Hafnarfjarðarhöfn.
L
jó
s
m
.:
G
u
ð
n
i
G
ís
la
s
o
n
GN-eignir
tekur við
Nýsiseignum
Bæjarráð Hafnarfjarðar
samþykkti á fundi sínum í
síðustu viku að stofna hluta -
félag, GN-eignir til að taka yfir
eignir Nýsis sem bærinn hafði
á leigu skv. einka fram kvæmd -
ar samningum. Reyndar kemur
ekki fram á fundargerð að
tillagan hafi verið samþykkt en
gera má ráð fyrir því þar sem
undir næsta lið var samþykkt
að fela stjórn GN-eigna
(Gamla Nýsis eigna) að ganga
frá samningum og fjármögnun
í samræmi við umræður á
fundinum.
Það vekur eftirtekt að hvergi
í fundargerðinni kemur fram
hvernig atkvæði hafa verið
greidd.
Í stjórn hins nýja hlutafélags
sitja Lúðvík Geirsson for -
maður, Haraldur Þór Ólason,
Guðrún Ágústa Guð munds -
dóttir, Gerður Guðjónsdóttir
og Sigurður Haraldsson.
Tilheyrir
sögunni
Skipasmíðastöðin Dröfn er
eitt þeirra fyrirtækja sem heyrir
sögunni til og húsnæði hennar
mun eflaust víkja á næstu árum.
L
jó
s
m
.:
G
u
ð
n
i
G
ís
la
s
o
n