Fjarðarpósturinn - 03.02.2011, Síða 2
2 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 3. febrúar 2011
St. Jósefsspítali hefur verið lagður undir
Landspítalann. Engin sameining, aðeins yfir
taka. Eftir mun standa lyflækningadeild til að
taka á móti sjúklingum eftir meðferð í Reykjavík.
Öll stuðningsþjónusta mun hverfa og verða sótt
til Reykjavíkur. Enginn hefur séð skýrslur sem
sýnir nákvæmlega hvar sparnaðurinn verður til.
Halda á sama þjónustustigi! Sannleikurinn mun
sennilega aldrei koma í ljós enda verður
starfsemin sem nú er á St. Jósefsspítala fljótt horfin í hítina á Land
spítalanum. Þetta minnir óneitanlega á fyrstu tillögur ráðherra sem
vöktu upp gríðarlega reiði og fundahöld. Þá var heildarupphæð
sparnaðar fyrst ákveðin og síðan leitað leiða hvernig hægt væri að
skera niður. Þegar spurt var hvernig ætti að ná þessum sparnaði var
fátt um svör. Nú hefur verið gefið upp að sparnaður náist með að nýta
skurðstofur á Landspítalanum, lítið annað. Allir vita að það þarf að
spara. Tillögurnar verða að vera raunhæfar og sýna svart á hvítu að
aðgerðir leiði til sparnaðar. Þjónusta í Hafnarfirði minnkar til
frambúðar. Akstur á milli sveitarfélaga eykst. Óhagræðing íbúanna er
greinilega ekki metin neins. Á sama tíma eru fjármunir lagðir í hluti
sem vel geta beðið þegar illa árar og heilsa fólks er þar ekki sett að
veði. Greinilegt er að stjórnmálamenn hafa ekki haldið vel á
spilunum fyrir Hafnarfjörð á undanförnum áratugum. Hafnarfjörður
hefur verið útundan við uppbyggingu á ýmissi þjónustu á vegum
ríkisins á meðan opinberri þjónustu er dreift til hinna ólíklegustu
sveitarfélaga. Hafnfirskir stjórnmálamenn þurfa að huga meira að
hag Hafnarfjarðar og láta sveitarfélagið ekki verða útundan. Ekki
einu sinni söfn virðast þrífast hérna og víkingasafn fékk ekki einu
sinni brautargengi hér. Guðrún Ágústa: Hvar er Víkingastræti?
Guðni Gíslason
Útgefandi: Keilir ehf. kt. 480307-0380
Fjarðarpósturinn, Bæjarhrauni 2, 220 Hafnarfirði
Vinnsla: Hönnunarhúsið ehf., umbrot@fjardarposturinn.is
Ritstjóri og ábm.: Guðni Gíslason
Ritstjórn: 565 4513, 896 4613, ritstjorn@fjardarposturinn.is
Auglýsingar: 565 3066, auglysingar@fjardarposturinn.is
Prentun: Steinmark ehf. Dreifing: Íslandspóstur
ISSN 1670-4169 – Vefútgáfa: ISSN 1670-4193
www.fjardarposturinn.is
Loftnets og símaþjónusta
Viðgerðir og uppsetningar á
loftnetum, diskum, heimabíóum,
flatskjám. Síma- og tölvulagnir
Loftnetstaekni.is
sími 894 2460
F A T A B R E Y T I N G A R
& V I Ð G E R Ð I R
OPIÐ 12.30-17.00
Lokað miðvikudaga
Flókagata 3 • 220 Hafnarfjörður
Sími 84 746 84
Síðan 2001
Víðistaðakirkja
Sunnudagurinn 6. febrúar
Messa kl. 11:00
Kór Víðistaðasóknar syngur
undir stjórn Arngerðar Maríu Árnadóttur
Prestur: Sr. Kristín Þórunn Tómasdóttir,
héraðsprestur.
Kyrrðarstundir á miðvikudögum kl. 12.00
Súpa og brauð í safnaðarheimilinu á eftir.
www.vidistadakirkja.is
Ástjarnarkirkja
Kirkjuvöllum 1
Sunnudaginn 6. febrúar
Fjölskyldumessa kl. 11
Brúðuleikhús Helgu Steffensen kemur í heimsókn í
sunnudagaskólann og sýnir brúðuleikritið Vináttu.
Að sýningu lokinni fara börnin áfram í
sunnudagaskólanum en fullorðna fólkið heldur
áfram með 40 tilgangsríka daga. Prédikunarefnið er:
Sköpuð Guði til ánægju.
Helga Þórdís Guðmundsdóttir leiðir tónlistina ásamt
kór Ástjarnarkirkju.
Fimmtudagur 9. febrúar
40 tilgangsríkir dagar
Fullorðinsfræðsla á fimmtudaginn kl. 18-20
og fimm næstu fimmtudaga þar á eftir.
www.astjarnarkirkja.is
www.facebook.com/
fjardarposturinn
Gréta Hergils Valdimars
dóttir á hádegistónleikum
Gréta Hergils Valdimarsdóttir syng-
ur á fyrstu hádegistónleikum ársins
í Hafnarborg í dag fimmtudag kl.
12. Á dagskránni verð aríur eftir
Bellini, Donizetti, Verdi og jafnframt
veður dagskráratrið sem væntan-
lega kemur gestum á óvart.
Sýningar í Bæjarbíói
Á laugardaginn kl. 16 verður
endursýnd myndin Sans toit ni loi
eftir Agnesi Varda.
Á þriðjudag kl. 20 verður sýnd
franska myndin Les Plages
d’Agnès eftir Agnesi Varda.
Ragnar og Snorri sýna
Tveir helstu prakkarar íslenskrar
myndlistar, þeir Ragnar Kjartanson
og Snorri Ásmundsson, sýna í 002
Gallerí, Þúfubarði 17 um helgina.
Ragnar hefur málað náttúru-
stemmn ingar í anda gömlu meistar-
anna, en Snorri mun sýna málverk
af ballerínum. Sýningin er opin kl.
14-17 um helgina.
Opið hús hjá STVH
Opið hús er hjá Stangaveiðifélagi
Hafnarfjarðar í kvöld fimmtudag.
Joakim‘s vörukynning og heitt á
könnunni.
Fríkirkjan
Sunnudagur 6. febrúar
Sunnudagaskólinn kl. 11
Kvöldvaka kl. 20
Kór og hljómsveit kirkjunnar leiðir sönginn.
Foreldramorgnar
Samverustundir fyrir foreldra
ungra barna í safnaðarheimilinu
alla miðvikudagsmorgna kl. 10.
Allir velkomnir
í Fríkirkjuna!
www.frikirkja.is
Bókhaldsþjónusta
Ódýr og góð þjónusta
fyrir fyrirtæki, húsfélög
og einstaklinga.
Bókhald, VSK, laun,
framtöl, ársreikningar,
stofnun fyrirtækja.
cilian@simnet.is s.
555 7770/863 8110