Fjarðarpósturinn - 03.02.2011, Side 4
4 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 3. febrúar 2011
Trönuhrauni 3, 220 Hafnarfirði, sími 897 9736
Endurvinnslan hf.
hefur opnað nýja móttökustöð á einnota drykkjarumbúðum að
Trönuhrauni 3, Hafnarfirði
SPARIÐ TÍMA og komið með drykkjarumbúðir HEILAR (ekki krumpaðar)
og nýja talningavélinn okkar sér um að telja og flokka umbúðirnar.
Opið alla virka daga kl. 11-18.
VERIÐ VELKOMIN!
Starfsmenn St. Jósefsspítala
mótmæla þeim blekkingarleik sem
vel ferðar ráðherra hefur sett upp
með sk. sameiningu Land spítala
og St. Jósefsspítala. Okkur virðist
þetta hrein yfirtöka. Fulltrúar
Land spítala hafa frá fyrsta degi
„sam einingarviðræðna“ hafn að
öll um tillögum um starf semi í
Hafn arfirði nema hugs an lega
almennri lyfjadeild. Þessi af staða
kemur á óvart í ljósi fjöl miðla um
ræðu um mik ið pláss leysi á Land
spítala og að sjúklingar þurfi að
liggja á göng um spítal ans.
Ekki er vilji til að nýta skurð
stofur, speglunarstofur eða hús
næði tengt þeirri starf semi. Skurð
deild St. Jósefsspítala leggst því af
á næstu vikum og meltinga sjúk
dóma deild á næstu mánuðum.
Lækna stofur að Suðurgötu 44
verða lagðar niður, en þar hafa sér
fræðingar þjónað Hafnfirðingum í
u.þ.b. 25 ár. Það er því ljóst að ekki
verður þörf á að reka stoðdeildir
eins og rönt gen deild og rann
sóknastofu og því af ar hæpið að
grundvöllur verði fyr ir rekstri
lyfja deildar með óskil greint hlut
verk nema stuttan tíma.
Tæplega 80 stöðugildi munu
flytjast frá Hafnarfirði eða verða
lögð niður auk þess sem sjálfstætt
starfandi læknar flytja stofur sínar
ann að. 115 starfsmenn þurfa að
sækja vinnu til Reykjavíkur eða
verða atvinnulausir. Skjól stæð ing
um verður vísað til Reykjavíkur
m.a. á þegar yfirfulla bráðamóttöku
Land spítala.
Starfsmenn furða sig á sinnu
leysi meirihluta bæj ar stjórnar. Lítil
um ræða virðist hafa verið um mál
efni spítalans s.l. haust samkvæmt
fundargerðum á vef Hafnarfjarðar.
Bæjarstjórn Hafnar fjarðar var
kynntur gríðar leg ur, fyrirhugaður
niðurskurður á fjárlögum 2011 til
St. Jósefsspítala í október 2010,
fundargerðir þar að lútandi má lesa
á hafnarfjordur.is. Ein ályktun
virðist hafa verið sam þykkt í fjöl
skylduráði og sam hljóða ályktun í
bæjarstjórn í októ ber 2010, að
öðru leyti virðast mál efni spítalans
ekki hafa verið rædd í bæjarstjórn
fyrr en nú í janúar 2011 þegar á að
fara að loka honum. Þetta verður
að teljast ótrúlegt áhugaleysi á svo
stórum og sérhæfðum vinnustað,
hvað þá þjónustunni sem nú mun
hverfa úr bænum. Ættu þó að vera
hæg heima tökin að beita sér í
málefnum St. Jósefsspítala þar
sem bæjar stjórinn og vel ferðar ráð
herra eru samflokksmenn. Þing
menn kjör dæmisins hafa ekki sýnt
málinu meiri áhuga ef frá er talin
fyrir spurn Þorgerðar Katrínar á
þingi, ekki virðist hún þó hafa
fylgt því máli neitt eftir.
Hvernig má það vera að 115
manna vinnustaður sem þjónar
mörg þúsund skjólstæðingum
njóti ekki meiri pólitísks stuðn
ings? Eru menn búnir að gleyma
14.000 undirskriftum sem söfnuð
ust til stuðnings St. Jósefsspítala
árið 2009 þegar síðasta atlaga var
gerð að spítalanum undir forystu
Guðlaugs Þórs Þórðarsonar þá
Sameining spítala
Blekking í skjóli kreppu!
verandi heilbrigðisráðherra? Eða
skipta þær bara engu máli? Lokun
St. Jósefsspítala kemur illa við
þús undir skjólstæðinga, ekki bara
Hafnfirðinga því við höf um þjón
að öllu landinu. Við höf um m.a.
þró að sérhæfða þjón ustu sem
byggt hefur á frábærri samvinnu
allra deilda. Grindar botnsteymið
er t.d. það eina sinnar teg undar og
gott dæmi um sam starf sem sprett
ur af þörf, og mögu leikum lítilla
ein inga sem starfa þétt saman til að
þróa eitthvað nýtt.
Öll önnur bæjarfélög, með full
tingi sinna þingmanna stóðu vörð
um sínar heilbrigðisstofnanir og
höfðu betur í baráttunni. Þau þurfa
að taka á sig skerðingu upp á allt
að 12% á fjárlögum 2011, en það
hefð um við líka getað sætt okkur
við. Með getuleysi og/eða vilja
Framhald á bls. 10
Erum með mjög góð tilboð af Tigi vörum
Munið að panta
fermingargreiðsluna tímanlega
sími 565 4424
ÞóreyEyrún
Inga
EdithDúna Sirrý Rúna
Fj
ar
ða
rp
ós
tu
rin
n
11
02
–
©
H
ön
nu
na
rh
ús
ið
e
hf
.