Fjarðarpósturinn - 03.02.2011, Side 6
6 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 3. febrúar 2011
Þegar ég flutti ásamt fjölskyldu
minni á höfuðborgarsvæðið sum
ar ið 2009 var mesti höfuðverkurinn
að finna út hvar á svæðinu við
ættum að búa. Ég á tvo stráka á
skólaaldri og annar var að byrja í
fyrsta bekk en hinn í
þriðja. Í samtali við
vinkonu mína sem býr í
Hafnarfirði hvatti hún
mig eindregið að flytja í
Hafnarfjörð og sækja
um skólavist fyrir
drengina í Barnaskóla
Hjallastefnunnar sem
hún hafði góða reynslu
af. Ég vissi lítið um
stefnu skólans en leist
vel á það sem hún hafði að segja
sem varð ástæðan fyrir því að ég
valdi Hafnarfjörð fram yfir önnur
sveit arfélög á höfuðborgar svæðinu.
Strax hluti af hópnum
Þegar ný börn koma inn í bekki
Barnaskóla Hjallastefnunnar er
unnið sérstaklega með að koma
þeim inn í hópinn, enda mikil
áhersla lögð á vináttu, samstöðu
og kærleika. Öll börn og kennarar
eru í skólabúningum þannig að
það eitt að vera eins klæddur og
hinir gefur barni strax þá til finn
ingu að það sé hluti af hópnum. Á
skólasetningum áréttar skóla
stjórinn alltaf að ef eitthvað komi
upp á og foreldrar verði þess
áskynja að barninu líði illa í skól
anum þá verði að láta vita strax
svo hægt sé að vinna úr því. For
senda þess að börnum gangi vel í
námi er að þeim líði vel.
Kæri vinur, kæra vinkona
Hjallastefnunni er ætlað að
virða og viðurkenna ólíkar þarfir
einstaklinga og valfrelsi þeirra.
Eldri drengurinn minn er t.d. ekki
mikið gefinn fyrir fótbolta og ærsl,
líður betur að lesa í rólegheitunum.
Þessar þarfir eru virtar en kenn
arinn er duglegur að hvetja nem
endurna til að gera aðra hluti en
þeir eru vanir og æfa þannig kjark
þeirra.
Þrátt fyrir valfrelsi er mikill agi
og skýrar reglur í skólanum en
starfsfólki er ætlað að þjálfa aga
og hegðun á jákvæðan og hlýlegan
en um leið ákveðinn og
hreinskiptinn hátt.
Kennarar ávarpa nem
endur með því að segja
„kæri vinur“ og „kæra
vin kona“ hvort sem um
er að ræða óæskilega
hegðun eða ekki.
Nemendur fá náms
efni sem hæfir getu
hvers og eins. Stuðn
ings kennsla er felld inn í
námið og er fyrir börnunum jafn
sjálfsagt mál og að drekka vatn. Í
öllu starfi sem og á kaffistofu
starfs fólks er neikvæðni bönnuð.
Starfs fólki ber að tala vel hvert um
annað, börn og foreldra. Allt
leiðinda tal um kreppu, stjórnmál
og annað sem getur komið kenn
urum í uppnám er bannað til að
koma í veg fyrir að kennari komi
inn í kennslustund í tilfinningalegu
ójafnvægi.
Hlekkur í mikilvægri keðju
Í Hafnarfirði er fjölbreytt úrval
af góðum grunnskólum sem er
þýðingarmikill styrkleiki sveitar
félagsins til að hver einstaklingur
geti fundið það sem hentar. Barna
skóli Hjallastefnunnar er einn
hlekk urinn í þeirri mikilvægu
keðju og hefur reynst mörgum
nem endum vel sem vegna ýmissa
aðstæðna hafa átt erfitt uppdráttar
annarsstaðar.
Ekki eru gerðar miklar kröfur
um yfirbyggingu en samt sem
áður er skólinn nú húsnæðislaus
og starfið í óvissu meðan svo er.
Ég hvet bæjarstjórn Hafnarfjarðar
til að vinna að farsælli lausn á
þessu máli.
Höfundur er blaðamaður og
foreldri.
Fjölbreyttir grunnskólar
styrkleiki sveitarfélagins
Ragnhildur
AðalsteinsdóttirDeiglan - Fjölbreytt dagskrá í hverri viku
Opið mán., mið. og föstudaga kl. 10-14
Mánudagar
Fastir dagskrárliðir Deiglunnar
Miðvikudagar Gönguhópurinn Röltararnir kl.10 -12
Föstudagar Þjóðmálahópur kl.10 -12 Matarlist kl.12-14
Myndlist kl.10 -12 Handverkshópur kl.12-14
Deiglan Strandgötu 24 Sími: 565 1222 deiglan@redcross.is raudikrossinn.is/hafnarfjordur
Spennandi viðburðir á næstunni:
Á morgun, föstudaginn 4. febrúar kemur Edda Björgvins
í Þjóðmálahóp Deiglunnar kl. 10
Miðvikudaginn 9. febrúar verður Sigrún Erna Geirsdóttir
með Skapandi skrif
Föstudaginn 11. febrúar kemur Auður frá heilsukokki.com
og kynnir og leyfir okkur að smakka heilsufæði
Menningarhópur - Bækur, söfn og fl. Kl. 12-14
Spen andi við á næstu ni:
Á morgun, föstu daginn 4. feb. kl. 10 flytur Edda Björgvins
fyrirlestur „Húmor og gleði í leik og starfi – Dauðans alvara“
Miðvikudaginn 9. f igrún Erna Geirsdóttir
e i s rif
Föstudagin 1 . febrúar r frá heilsuko ki.com
Kynnir og leyfir okkur að smak a heils f i
20% afsláttur í Fjarðarkaupum
3.-10. febrúar
Tinktúrur fyrir:
➤➤ breytingaskeiðið
➤➤ blöðruhálskirtil
➤➤ bjúg
➤➤ exem➤og➤sóríasis
➤➤ meltingu
➤➤ kvef➤og➤flensu
Lífrænar➤snyrtivörur➤og➤smyrsl
engin➤paraben➤eða➤kemísk➤ilmefni
www.annarosa.is
20%
afslát
tur
Starf við atvinnuendurhæfingu
Starfsendurhæfing Hafnarfjarðar óskar eftir að ráða starfsmann
til þess að sinna ráðgjöf og eftirfylgd við þátttakendur.
Helstu verkefni:
Mat og greining á þörfum fólks sem vísað er í atvinnutengda endurhæfingu, gerð
endurhæfingaráætlana með þátttakendum, fræðsla, stuðningur og eftirfylgd.
Starfsmaðurinn er tengiliður þátttakenda við fagfólk í ýmsum þjónustu kerf um,
s.s. á sviði félags-, heilbrigðis- og menntamála og tekur þátt í að þróa þjónustu
Starfsendurhæfingar Hafnarfjarðar.
Hæfnis- og menntunarkröfur:
– Áhugi og þekking á atvinnutengdri endurhæfingu
– Heiðarleiki, ábyrgð og frumkvæði
– Jákvætt viðmót og samskiptahæfni
– Geta til að vinna sjálfstætt
– Háskólanám sem nýtist í starfi
– Reynsla af fjölfaglegu starfi er æskileg
Umsóknarfrestur er til 15. febrúar 2011
Nánari upplýsingar veitir Anna Guðný Eiríksdóttir, framkvæmdastjóri í síma 697-5867.
Umsókn ásamt ferilskrá sendist í pósti til Starfsendurhæfingar Hafnarfjarðar,
pósthólf 89, 222 Hafnarfjörður eða rafrænt á annagudny@stendur.is.
Æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst.
Starfsendurhæfing Hafnarfjarðar er sjálfseignarstofnun sem sinnir atvinnuendurhæfingu.
Heimasíða: www.stendur.is.
Það er margt að gerast í
Deiglunni þessa önnina. Til að
byrja með verður Edda Björg
vinsdóttir með fyrirlesturinn
„Húmor og gleði i leik
og starfi dauðans
alvara!“ á morgun,
föstudag kl. 10. Það
verð ur örugg lega
virki lega gaman að
heyra þennan fyrir
lestur hjá henni Eddu
og vonumst við til að
sem flestir láti sjá sig.
Nýtt í Deiglunni er
svo menn ingarhópur
inn á miðvikudögum á milli kl.
12 og 14. Hópurinn mun meðal
annars fara á söfn og við byrjum
auðvitað á að skoða söfnin í
Hafnarfirði. Fyrst skoðuðum
við Pakkhúsið og 2. febrúar er
stefnt að því að fara í Sívertsens
húsið og Siggubæ.
Við verðum einnig með bók
mánaðarins og bók febrú ar mán
að ar er Furðulegt
háttalag hunds um nótt
eftir Mark Haddon.
Miðvikudagana 9. og
23. febrúar verðum við
með leiðsögn í skap
andi skrifum og
leiðbeinandi er Sigrún
Erna Geirsdóttir. Mjög
áhugavert og skemmti
leg viðbót fyrir þá sem
að langar að læra að
skrifa sög ur. Og meðal margs
skemmti legs fram und an förum
við á lista sýningar og í heim
sóknir til listamanna svo fátt eitt
sé talið.
Líklegt í Deiglunni
Vettvangur fyrir atvinnuleitendur
Guðrún
Ólafsdóttir
Í matarlistaliðnum okkar
er um við oftast með þjóðlega
rétti en föstudaginn 11. febrúar
kemur til okkar hún hún Auður
frá heilsukokkur.com og kynnir
og leyfir okkur að smakka
heilsumat. Til að vega á móti
nú tíma hollustunni munum við
svo vera með íslenskan og holl
an þorramat frá fyrri tímum
föstu daginn 18. febrúar.
Það eru allir ávallt velkomnir
í Deigluna sem er vettvangur
fyrir atvinnuleitendur í Hafnar
firði.
Höfundur er verkefnisstjóri
Deiglunnar.