Fjarðarpósturinn - 03.02.2011, Qupperneq 12
12 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 3. febrúar 2011
Fasteignagjöld
5% afsláttur
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar
sam þykkti á fundi sínum í
síðustu viku að veita þeim sem
greiða fasteignagjöld sín í síð
asta lagi 3. mars nk. 5% stað
greiðsluafslátt en alla jafna eru
gjalddagar fasteigna gjald anna
tíu. Með þess getur Hafn ar
fjarðarbær náð sér í lausafé og
gjaldendur fengið afslátt sem er
verulega yfir bestu inn láns
vöxtum í bönkum.
Guðmundur Rúnar Árnason
bæjarstjóri segir skortur á
lausafé ekki hafa verið hvatann
að þessum afslætti. Hann hafi
komið til eftir fyrirspurnir og
samanburð við önnur sveitar
félög og einnig í framhaldi af
heimild til handa fjármálastjóra
að semja um vaxtagreiðslur
þeirra sem skulda fasteignagjöld
og vilja semja um greiðslur.
Hann segist ekkert vita hvað
margir nýti sér þessa leið en
hún geti verið mjög hagstæð
fyrir þá sem geta nýtt sér hana,
ekki síst fyrirtæki með stærri
eignir. Ekki fáist betri vextir í
bankakerfinu og báðir aðilar
njóti góðs af.
80 ára
1931-2011
Haukar – félagið mitt!
Tónlistarhelgistund
laugardaginn 5. febrúar kl. 17
í Víðistaðakirkju
Fjölmargir kórar úr Kjalarnessprófastsdæmi
sameinast í tónlistarflutningi og flytja afrakstur
æfinga á Kóradegi prófastsdæmisins.
Dr. Gunnar Kristjánsson prófastur,
þjónar og flytur hugleiðingu.
Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.
Laugardaginn 5. febrúar
í Haukahúsinu að Ásvöllum.
Húsið verður opnað kl. 12
Veislustjóri: Magnús Ingjaldsson
Gamanmál • Leynigestur • Happdrætti • Miðaverð kr. 5.000
Forsala aðgöngumiða í símum 862 4623 og 821 4560.
Kúttmaga- og
sjávarréttahlaðborð
Lionsklúbbs Hafnarfjarðar
Sjá líka grein Steinunnar Guðnadóttur um St. Jósefsspítala á
www.facebook.com/fjardarposturinn
Rúmlega 84 ára sögu St.
Jósefs spítala er lokið. Nú er
stofnunin rekin undir nafni
Landspítala og meginþorri
starfsemi spítalans verður lögð
niður. Skv. tillögum verkefnis
stjórnar sem hefur kynnt vel
ferðar ráðherra tillögur að fram
vindu og fyrirkomulagi við
sameininguna er gert ráð fyrir
að legudeild almennra lyflækn
inga verði áfram í húsnæði St.
Jósefsspítala. Ekkert hefur
verið ákveðið um aðra nýtinu á
húsnæðinu við Suðurgötu.
Gríðarleg óánægja er meðal
starfsmanna spítalans, íslenska
fánanum var flaggað í hálfa
stöng 1. febrúar og á vef
spítalans er síðasta fréttin með
yfirsögninni „Sorgardagur í
sögu St. Jósefsspítala“.
Enn er óvíst hvað verður um
stofur sérfræðinga í gamla
Kató, húsnæðinu gegnt spítal
anum en skv. heimildum
blaðsins er ósk þeirra að halda
þeim stofum áfram sem þeir
hafa haft á leigu í áratugi. Þó er
ljóst að aðgerðir sem þar hafa
verið framkvæmdar verða
fluttar annað.
Hjúkrunarheimilið Sólvangur
verður sjálfstæð stofnun fyrst
um sinn og hefur Árna Sverris
syni, fráfarandi forstjóra St.
Jósefs spítala, verið falið að
gegna starfi framkvæmdastjóra
hjúkrunarheimilisins Sólvangs.
Þegar nýtt hjúkrunarheimili á
Völlum verður tekið í notkun
verða heimilin að öllum líkind
um rekin undir einni stjórn.
Sorgardagur á
St. Jósefsspítala
Sólvangur sjálfstæð stofnun fyrst um sinn