Fjarðarpósturinn


Fjarðarpósturinn - 17.11.2011, Blaðsíða 2

Fjarðarpósturinn - 17.11.2011, Blaðsíða 2
2 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 17. nóvember 2011 Árið 2005 kom út saga Sparisjóðs Hafnarfjarðar í 100 ár en spari­ sjóðurinn var stofnaður árið 1902 á grunni Sparisjóðs Álfaneshrepps sem stofnaður var árið 1875 en þá náði hrepp urinn yfir Hafnarfjörð, Garðabæ og Bessastaðahrepp. Það voru ábyrgir menn sem stóðu að baki sjóðunum og sést vel á því að varasjóður fyrri sjóðsins var settur inn í Sparisjóð Hafnarfjarðar og hafnað var málaleitan um styrk úr sjóðnum eftir að starfsemin lagðist af. Allir vita hvernig græðgin felldi Sparisjóð Hafnarfjarðar fljótt eftir útgáfu bókarinnar og sá sem á eftir kom, Byr sparisjóður fór í raun sömu leið. Nú er beðið tilskilinna leyfa svo Íslandsbanki, áður Nýi Glitnir, áður Glitnir, áður Íslandsbanki sem til varð úr sameiningu Iðnaðarbankans, Alþýðubankans, Verzlunarbankans og Útvegsbankans, geti keypt Byr og sameinað hann starfsemi sinni. Verði að þessu er öruggt að útibúin í Hafnarfirði verði sameinuð og rýmkast þá í miðbænum sem kaupmenn vonandi nýta sér. Reyndar er Hafnarfjarðarbær að teygja sig inn í hluta jarðhæðar Byrs sem hefði getað orðið verslunarhúsnæði, svo ekki sé minnst á flokksskrifstofur Vinstri grænna í úrvals verslunarhúsnæði. Sama á við um félagsheimili Samfylkingarinnar sem líka er í verslunarhúsnæði og svo ræða fulltrúar þessara flokka hvernig auka megi verslunarrekstur í miðbænum! Ekki má heldur gleyma Sjálfstæðisflokknum sem kom sér fyrir í úrvals verslunarhúsnæði á Norðurbakkanum og ekki skrýtið að kaupmenn vilji ekki planta sér við hliðina á rými sem er mannlaust flesta daga. Sparisjóðurinn var stofnaður til að taka virkan þátt í eflingu atvinnu­ og athafnalífs í Hafnarfirði. Það væri óskandi að ábyrgir menn leiddu uppbyggingu í miðbæ Hafnarfjarðar með góðum stuðningi hinna nýju banka. Þá væru þeir ekki eftirbátar Sparisjóðs Hafnarfjarðar. Guðni Gíslason Hafnfirska fréttablaðið Útgefandi: Keilir ehf. kt. 480307-0380 Fjarðarpósturinn, Bæjarhrauni 2, 220 Hafnarfirði Vinnsla: Hönnunarhúsið ehf., umbrot@fjardarposturinn.is Ritstjóri og ábm.: Guðni Gíslason Ritstjórn: 565 4513, 896 4613, ritstjorn@fjardarposturinn.is Auglýsingar: 565 3066, auglysingar@fjardarposturinn.is Prentun: Steinmark ehf. Dreifing: Íslandspóstur ISSN 1670-4169 – Vefútgáfa: ISSN 1670-4193 www.fjardarposturinn.is leiðarinn Víðistaðakirkja Föstudagurinn 18. nóvember Hádegistónleikar kl. 12:00 Emil Friðfinnsson hornleikari flytur verk eftir Telemann, Messiaen, Dukas og Mendelsohn. Meðleikari: Örn Magnússon Tónleikar kr. 1.000,- / Tónleikar og súpa kr. 1.500,- Allur ágóði rennur í orgelsjóð kirkjunnar. Laugardagurinn 19. nóvember Kirkjuskóli kl. 11:00 Fjölbreytt og skemmtileg stund fyrir alla fjöslkylduna. Sunnudagurinn 20. nóvember Tónlistarguðsþjónusta kl. 11:00 Gaflarakórinn syngur undir stjórn Kristjönu Þ. Ásgeirsdóttur. Pétur Ásgeirsson frá Gídeonfélaginu prédikar. Prestur: Sr. Bragi J. Ingibergsson. www.vidistadakirkja.is ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR Kistur • Krossar • Sálmaskrár • Duftker • Blóm • Fáni • Gestabók • Erfidrykkja • Prestur Kirkja • Legstaður • Tónlist • Tilkynningar í fjölmiðla • Landsbyggðarþjónusta • Líkflutningar Sverrir Einarsson Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is Vaktsími: 565 5892 & 896 8242 Allan sólarhringinn Komum heim til aðstandenda ef óskað er Íslenskar og vistvænar líkkistur Jón G. Bjarnason Hermann Jónasson Kristín Ingólfsdóttir Það sem hafa ber í huga varðandi andlát og útför Áratuga reynsla Inger Steinsson Inger Rós Ólafsdóttir Ólafur Örn Pétursson Útfararþjónusta Vönduð og persónuleg þjónusta Strandgata 43 · Sími: 551 7080 · 691 0919 · athofn@athofn.is · www.athofn.is Sunnudaginn 20. nóvember Messa kl. 11 Sr. Guðbjörg Jóhannesdóttir þjónar. Barbörukórinn syngur við messuna undir stjórn og undirleik Guðmundar Sigurðssonar kantors. Molakaffi eftir messu. Sunnudagaskóli á sama tíma í safnaðarheimilinu. Morgunmessur alla miðvikudaga kl. 08.15 Tíðasöngur alla fimmtudaga kl. 10 www.hafnarfjardarkirkja.is. Við sendum um allt land, einnig til útlanda 35 ár Stolt að þjóna ykkur Bæjarhrauni 26 • Opið til kl. 21 öll kvöld Símar 555 0202 og 555 3848 • www.blomabudin.is Útfararskreytingar Við leggjum alúð og metnað í okkar vinnu kransar altarisvendir kistuskreytingar hjörtu Ástjarnarkirkja Kirkjuvöllum 1 Sunnudagur 20. nóvember Léttmessa kl. 11 Prestur sr. Ragnar Gunnarsson Kór Ástjarnarkirkju syngur undir stjórn Helgu Þórdísar Guðmundsdóttur. Sunnudagaskóli á sama tíma Föndur - Hressing og samfélag eftir messu. Bæna- og fyrirbænastund á miðvikudögum kl. 16.30-17. www.astjarnarkirkja.is www.frikirkja.is Fríkirkjan Sunnudagurinn 20. nóvember Sunnudagaskólinn kl. 11 Kvöldvaka kl. 20.30 Athugið breyttan tíma! Bergþór Pálsson söngvari flytur hugleiðingu kvöldsins. Kór og hljómsveit kirkjunnar leiðir sönginn. Vertu velkomin(n) í Fríkirkjuna!

x

Fjarðarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fjarðarpósturinn
https://timarit.is/publication/945

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.