Fjarðarpósturinn - 17.11.2011, Blaðsíða 12
12 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 17. nóvember 2011
8 BITA SUSHI BAKKI FRÁ OSUSHI
NÝTT ALLA FIMMTUDAGA,
FÖSTUDAGA OG LAUGARDAGA
Hafnarfjarðarbær vekur athygli á rétti fólks til að
sækja um styrki skv. 27. grein laga nr. 59/1992
um málefni fatlaðs fólks.
Hafnarfjarðarbæ er heimilt að veita styrk til
greiðslu námskostnaðar sem ekki er greiddur
sam kvæmt ákvæðum annarra laga, enda teljist
námið hafa gildi sem hæfing eða endurhæfing.
Einnig er heimilt að veita þeim sem eru 18 ára og
eldri styrk til verkfæra- og tækjakaupa í sambandi
við heimavinnu eða sjálfstæða starfsemi, enda
teljist starfsemin hafa gildi sem félagsleg hæfing
eða endurhæfing sem miði að því að auðvelda
fötluðu fólki að skapa sér atvinnu.
Eyðublaðið er fyllt út á vef bæjarins www.
hafnarfjordur.is.
Umsóknarfrestur er til með 30. nóvember 2011.
Félagsþjónusta Hafnarfjarðar
Strandgötu 33
220 Hafnarfjörður
Styrkir vegna
námSkoStnaðar og
verkFæra- og tækja-
kaupa FatlaðS FólkS
Náttúrufræðistofnun Íslands
fékk í dag höfðinglega gjöf
þegar Hafnfirðingurinn Sigurð
ur Sig urðar son frá Vatnsdal í
Vest manna eyjum, færði Nátt
úru fræðistofnun Íslands höfð
ing lega gjöf í síðustu viku. Þetta
er útskorið trélistaverk sem
kallast Fantasía um komu
HrafnaFlóka Vilgerðarsonar og
félaga á Hvaleyri sumarið 870.
Sigurður Sigurðarson er húsa
smíðameistari og skipa smiður
en eftir að hann lét af störfum
hefur áhugi hans beinst að
Íslendingasögum og Land
námu, auk þess sem hann stund
ar útskurð. Áhugamálin tvö
sameinar hann þegar hann sker
sögurnar út í við. Lista verkið
sem Sigurður færði Nátt úru
fræðistofnun Íslands er skorið út
í lindartré og sýnir þann atburð í
Íslandssögunni þeg ar Flóki
Vilgerðarson, HrafnaFlóki, og
félagar hans fundu rekinn búr
hval á eyri út frá Hafnarfirði,
sem síðan hefur verið kölluð
Hvaleyri.
Í Landnámu segir frá því að
Flóki hafi upphaflega haldið af
stað frá Noregi vestur um haf til
að leita lands sem fréttir höfðu
borist af. Hann ætlaði að setjast
þar að og þess vegna voru með
í för fjölskylda hans og frændlið,
auk búfénaðar. Af förunautum
Flóka eru nefndir þeir Herjólfur,
Þórólfur og Faxi. Flóki hafði
með sér þrjá hrafna sem hann
hafði blótað í Noregi og lét þá
vísa sér leið til Íslands. Hann
sleppti fyrst einum og flaug sá
aftur um stafn í átt til Færeyja,
sá næsti flaug í loft upp og aftur
til skips en sá þriðji flaug fram
um stafn í þá átt sem Flóki og
félagar fundu landið. Þeir komu
að Horni eystra, síðan sigldu
þeir suður og vestur fyrir land
og námu land í Vatnsfirði á
Barða strönd. Vatnsfjörður mun
hafa verið fullur af fiski og
ný búarnir stunduðu veiðar svo
stíft að ekkert varð úr heyskap
og öðrum nauðsynlegum undir
búningi fyrir íslenskan vetur.
Þess vegna drapst allt kvikféð
um veturinn. Vorið var heldur
kalt og þá gekk Flóki upp á fjall
eitt hátt og sá fyrir norðan fjöllin
fjörð, líklega Arnarfjörð, fullan
af hafís. Því kölluðu þeir landið
Ísland sem það hefur síðan
heitið.
Flóki og fylgdarlið hans
ákváðu að fara burt og héldu úr
Vatns firði þegar langt var liðið á
sumar. Þeir náðu ekki að sigla
fyrir Reykjanes og urðu Flóki
og Herjólfur viðskila í mynni
Faxaflóa. Herjólfur kom að
landi í Herjólfshöfn en Flóki
hafði vetursetu í Borgarfirði.
Næsta sumar kom Flóki í Hafn
ar fjörð og þar fundust þeir
Herjólf ur. Þá erum við komin að
þeim stað í sögunni sem tengir
okkur við trélistaverk Sigurðar
því á þessum tíma fundu Flóki
og félagar hans hvalinn á eyrinni
sem þeir kölluðu þá Hvaleyri.
Menn hafa leitt að því getum að
Herjólfshöfn sé Hvaleyrartjörn
en hún var höfnin í Hafnarfirði
sem fjörðurinn dregur nafn sitt
af.
Hrafn einkennismerki
Þess má geta að hrafn er ein
kennismerki Náttúrufræði stofn
unar Íslands og ástæðan fyrir
því að hann varð fyrir valinu var
með al annars sú að hann er
áber andi í íslenskri náttúru og
teng ist landnámi Íslands og
HrafnaFlóka.
Hafnfirskur hvalur í Garðabæinn
Gaf Náttúrufræðistofnun trélistaverk um komu Hrafna-Flóka
Sigurður Sigurðarson afhendir Jóni Gunnarri Ottóssyni, forstjóra
Náttúrufræðistofnunar Íslands trélistaverkið.
Lj
ós
m
.:
M
ar
ía
H
ar
ða
rd
ót
tir
Kjötkompaní nýtur vaxandi
vinsælda sem gæða kjötverslun
og þangað liggur gjarnan leið
þeirra sem vilja gera sér glaðan
dag í mat. Jón Örn og félagar í
Kjötkompaníinu undirbúa nú
jólin og bjóða fólki að kom á
morgun, föstudag kl. 1418 að
smakka það sem verður í boði
fyrir jólin. Þetta ætti að geta
verð hjálp fyrir þá sem eru að
velta því fyrir sér hvað eigi að
hafa á boðstólum um jólin.
Fyrir skömmu fagnaði Kjöt
kompaní 2 ára afmæli sínu og
þá var stöðugur straum ur fólks
sem þáði góðgæti í versluninni.
Hvað á að hafa í jólamatinn?
Kjötkompaní býður fólki að smakka!
Enn af fundar
gerðum
„10. 1105361 - Tónlistar-
nám, samkomulag
Lagt fram bréf frá Jöfnunar
sjóði sveitarfélaga þar sem
tilkynnt er um framlag sjóðsins
til Hafnarfjarðar vegna tón
listar nema í framahaldsnámi í
Tónlistarskóla Hafnarfjarðar.
Niðurstaða fundar:“
Er til of mikils ætlast að
upplýst sé um framlagið í
fundargerð fræðsluráðs?
Er það hlutverk stjórnsýsl
unnar að fela?Ljós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n
Enginn er og gamall til að
geta geymt barnið í hjart sér
og það sýndu eldri borgarar á
skemmtun í Hraunseli.
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n