Fjarðarpósturinn


Fjarðarpósturinn - 11.04.2013, Síða 3

Fjarðarpósturinn - 11.04.2013, Síða 3
www.fjardarposturinn.is 3 Fimmtudagur 11. apríl 2013 Sjálfstæðisflokkurinn í Suðvesturkjördæmi NÁNAR Á 2013.XD.IS Ragnheiður Ríkharðsdóttir opnar skrifstofuna og flytur ávarp. Bjarni Benediktsson ræðir við kjósendur. Verið velkomin í alvöru amerískan Brunch og kynnist því hvernig Ísland getur tekið nýja stefnu eftir kosningar. Kíktu í heimsókn Við opnum kosningamiðstöðina okkar að Norðurbakka 1a,Hafnarfirði. Laugardag 13. apríl kl. 10. • Djúpsteiktar rækjur í súrsætri sósu • Steiktar núðlur m/ kjúklingi og grænmeti • Kínverskar vorrúllur • Canton svínakjöt Frábært tilboð! Reykjavíkurvegi 68 • sími 555 6999 • www.kinaferdir.is ...kínverskur veitingastaður síðan 2001 aðeins 1.390 kr. DAGSKRÁ Föstudagur 12. apríl: Kl. 16-22 Fyrstu umferðir mótsins Laugardagur 13. apríl: Kl. 9-16 8 liða úrslit Kl. 16-20 Undanúrslit í öllum flokkum Sunnudagur 14. apríl: Kl. 9-12 Úrslitaleikir í A, B og öldungaflokkum Kl. 13:50 Úrslitaleikir í meistaraflokki Áhorfendur eiga möguleika á að vinna glæsilega vinninga sem verða dregnir út á meðan á keppni stendur á laugardag og sunnudag. Aðgangur ókeypis Veitingasala á staðnum NÁNARI UPPLÝSINGAR Á BADMINTON.IS Úrskurðarnefnd útboðsmála hefur fellt úr gildi ákvörðun Hafnarfjarðarbæjar að semja við lægstbjóðanda, Íslenska gámafélagið ehf., eftir úboð um sorphirðu í Hafnarfirði 2013­ 2021. Skv. úrskurðinum upp­ fyllti lægstbjóðandi ekki ákvæði um eiginfjárstöðu við opn un tilboða og ekki var heimilt að taka tillit til þess að fyrirækið uppfyllti ákvæðin eftir opnun tilboðanna. Íslenska gámaþjónustan bauð lægst, 64% af kostnaðaráætlun, Kubbur ehf. á Ísafirði bauð 80% af kostnaðaráætlun og Gáma þjónustan bauð 89% af kostnaðar áætlun. Kubbur á að taka við sorp­ hirðunni 1. maí nk. en samn­ inga átti að undirrita í gær. Að sögn Helgu Stefánsdóttur á sú dagsetning að standast og nýir soprbílar eiga að vera komnir til landsins þá. Fyrirtækið var stofnað árið 2006 og hét þá VE kranar ehf. og hefur sinnt sorp­ hirðu á Ísafirði og í Vestmanna­ eyjum og eru með einn sorpbíl á hvorum stað. Einnig rekur fyrirtækið steypustöð. Ekki náðist í framkvæmda stjóra Kubbs við vinnslu fréttar innar. Úrskurðurinn kostar Hafnar­ fjarðarbæ um 20,6 millj. kr. á ári auk þess þess sem bærinn þarf að greiða kæranda, Kubbi ehf. 350 þús. kr. í málskostnað. Ísfirskt fyrirtæki tæmir ruslatunn­ urnar í Hafnarfirði frá 1. maí Hafnarfjarðarbær fékk ekki að semja við lægstbjóðanda Castor-félagarnir sigurreifir. Skátar úr ds. Castor sigruðu í DS. Vitleysu Um helgina héldu 50 drótt­ skátar á vit ævintýranna í viðburði sem nefnist DS. Vit­ leysa, þar sem ýmsar skemmti­ legar skáta þrautir eru unnar af 13­15 ára dróttskátum á fyrirfram ákveð inni gönguleið. Skátarnir hittust á föstudags­ kvöldi við skáta skálann Lækjar­ botna, rétt við Lögbergsbrekku. Gist var í tjöldum en daginn eftir var gengið í skátaskálann Dala­ kot, gegnt skíðaskálanum í Hvera dölum, en skálinn var upp­ runalega reistur af Skíða­ og skautafélagi Hafnarfjarðar. Þegar allir höfðu skilað sér í Dalakot var sam eigin legur kvöldmatur og hressi leg kvöldvaka. Þrátt fyrir snjó og frost ákváðu margir að sofa aftur í tjöldum, en aðrir gistu í skálan um. Það lið sem stóð uppúr sem sigurvegarar í keppninni var DS. Castor frá skáta félaginu Hraun búum í Hafn ar firði.

x

Fjarðarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjarðarpósturinn
https://timarit.is/publication/945

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.