Fjarðarpósturinn - 11.04.2013, Side 4
4 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 11. apríl 2013
Laugardaginn 13. apríl n.k.
stendur Flensborgarkórinn fyrir
12 klukkustunda söngmaraþoni í
Hafnarfjarðarkirkju ásamt stjórn
anda sínum Hrafnhildi Blomster
berg og góðum gestum. Þessi
atburður er liður í fjáröflun kórs
ins vegna keppnisferðar til Linz í
Austurríki í lok maí.
Söngurinn hefst stundvíslega
kl. 9 á laugardagsmorgun og
mun standa án hlés til kl. 21 og
er öllum velkomið að líta við og
hlusta hvenær sem er. Kórinn
mun æfa og kynna keppnispró
gramið sem er óðum að taka á
sig endanlega mynd en þar að
auki mun önnur kórtónlist
hljóma.
Keppnin í Linz er kennd við
austurríska tónskáldið Anton
Bruckn er sem er eitt af uppáhalds
tónskáldum kórsins. Það er því
töluverð áhersa lögð á tónverk
eftir hann og önnur tónskáld frá
sama tímabili tónlistarsögunnar
en auk þeirra mun kórinn flytja
fjöl breytta íslenska og erlenda
kórtónlist.
Þetta er í annað skipti sem
Flensborgarkórinn tekur þátt í
alþjóðlegri kórakeppni. Sú fyrri
var í St. Pétursborg í Rússlandi
og kom hópurinn heim með
gullverðlaun í flokki blandaðra
kóra í farteskinu. Kórinn var
stofn aður árið 2008 af útskrif
uðum Flensborgurum sem áttu
erfitt með að sleppa takinu á kór
skólans. Á þeim fimm árum sem
kórinn hefur starfað hefur hann
vakið verðskuldaða athygli bæði
innan og utan landssteinanna
fyrir einstakan hljóm, fágað
lagaval og almenna lífsgleði.
Vandræði Sólvangs er dæmi
gerð birt ingarmynd þeirrar heil
brigðisstefnu sem rekin hefur
verið umliðin ár. Allur slag kraft
ur inn er lagður í eitt hús, hátækni
spítala, þang að er öllu for gangs
raðað, fjármagni og
þörf. Sem er alger lega
galið því yfir gnæf andi
fjöldi þeirra sam skipta
sem eiga sér stað í heil
brigðiskerfinu eru á
sviði grunn þjónustu og
öldrunar. Þar liggur
þörfin og þangað á að
forgangs raða því litla fé
sem haldbært er. En
því miður þrýsta læknar
mjög á nýtt, miðlægt sjúkrahús
og við þetta eltast stjórnvöld.
En ekki Lýðræðisvaktin. Þar á
bæ er skýrt kveðið á um nýjan
for gang í heil brigðis þjónustu.
Þjóð in eldist hratt og við því þarf
að bregðast. Grunnþjónustan
hrip lekur og þeirri þróun þarf að
snúa við. Lýðræð is vaktin vill
minni og manneskju legri ein
ingar og leggja áherslu á þjónustu
í heimabyggð. Lýð ræðisvaktin
vill blása nýju lífi í þann húsakost
sem til er og spara þannig kostn að
við ný bygg ingar. Frestun bygg
ingu nýs Landspítala er
lykilatriði varð andi
þetta því sú fram
kvæmd mun sjúga út úr
heil brigð is kerfinu til
tækt fé á næstu árum.
Slíkt mun ógna veru
lega annarri þjónustu.
Lýðræðisvaktin vill
því slá nýjum Land
spítala á frest og beina
sjúklingastreyminu
aftur heim í héruð. Samhliða vill
Lýð ræðis vaktin sjá arð af
þjóðar auð lindum renna til vel
ferðar kerf isins. Með þessu ger
um við okkar besta.
Höfundur er læknir og fram-
bjóðandi Lýðræðisvaktar-
innar í SV-kjördæmi.
Sólvangsheilkennið
Lýður
Árnason
Jafnaðarmenn vilja burt með
verðtryggingu og lægri vexti. Það
er ósanngjarnt að borga tvisvar og
hálfu sinni fyrir íbúð þegar Danir
borga fyrir eina og hálfa
íbúð. Þarna munar heilli
íbúð. Því segi jafnaðar
menn: burt með verð
trygginguna, lækk um
vextina og verð bólg
una. En hvernig eigum
við að gera það?
Verðbólgan
Verðbólgan skapast
vegna breytinga á gengi
krónunnar. Verð trygg
ingu var komið á 1980 til að
tryggja að pen ingarnir héldu
verð gildi sínu þrátt fyrir verð
bólgu. Þannig veldur verðbólgan
því að lánin hækka. Verðbólga á
Íslandi er þrisvar sinnum hærri en
innan Evru landa. Vextir á Íslandi
eru ríf lega tvisvar sinnum hærri
en í Evrópu.
Dýrari íbúðir
Þess vegna borgum við meira
fyrir íbúðirnar en aðrir Evrópu
búar. Þess vegna er erfiðara að ná
endum saman á Íslandi. Krónan
veldur hærri vöxtum og hærri
verðbólgu. Úr þessum vítahring
verður ekki komist
nema með upptöku
annarrar mynt ar því þá
lækka vextirnir og
verðbólgan.
20% niðurfelling?
Það væri gaman ef
við gætum lækkað
skuld ir allra. En í raun
myndi slíkt ekki breyta
miklu. Ef við hefðum til
dæmis lækkað skuldir
heimilanna árið 2009 um 20% og
40 milljón króna lán hefði þá
farið í 32 millj ónir – væri það lán
komið í 39 milljónir í dag – þökk
sé verð bólgunni. Á móti værum
við með 220 milljarða reikning
og þyrftum að hækka skatta eða
skera niður. Heimilin væru
þannig í verri stöðu fjórum árum
síðar.
Breytum kerfinu
Þess vegna er mikilvægt að
breyta kerfinu því annars verðum
við áfram föst og gerum ekki
annað en að ýta vandanum áfram
og yfir á börnin okkar. Það er
hins vegar til ein leið úr þessu
basli. Hún er sú að ljúka viðræð
um við ESB og ganga í myntsam
starf á næsta kjörtímabili.
Stöðugleiki evrunnar er ekki
langt undan. Ef þjóðin segir já við
ESB verður strax hægt að tengja
krónu við evru og flytja inn stöð
ug leikann, lægri vexti og lægri
verð bólgu. Það verður hægt á
næsta kjörtímabili.
27. apríl
Þannig er valið skýrt í næstu
kosningum. Annaðhvort breytum
við kerfinu eða ýtum vandanum á
undan okkur. Þess vegna telur
Samfylkingin mikilvægt að halda
áfram viðræðum við ESB.
Höfundur er frambjóðandi
Samfylkingarinnar.
Eigum við að losna við verðtryggingu ?
Magnús Orri
Schram
Bandalag Kvenna Hafnarfirði
Aðalfundur Bandalags Kvenna Hafnarfirði
Verður haldinn mánudaginn 22. apríl 2013
kl. 19.30
í Safnaðarheimili Víðistaðasóknar
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundastörf
Lagabreytingar.
Stjórn Bandalags Kvenna Hafnarfirði
Unnur Birna Magnúsdóttir og Unnur Sveinsdóttir.
12 tíma söngur í Hafnarfjarðarkirkju
Flensborgarkórinn safnar fyrir utanlandsferð
Þjónusta við aldraða í Hafnar
firði verður aukin með fjölgun
hjúkrunarrýma og nýjum dag
vistar rýmum á hjúkr unar
heimilinu Sólvangi. Þetta er liður
í aðgerðum til að bæta rekstrar
stöðu heimilisins. Jafnframt mun
heimilið afla aukinna sértekna
og hagrætt verður í rekstri.
Voru tillögur fulltrúa velferðar
ráðuneytisins og stjórnenda Sól
vangs, sem í megindráttum voru
kynntar í Fjarðarpóstinum sl.
fimmtu dag, kynntar fulltrúum
bæjarstjórnar Hafnarfjarðar sl.
föstudag.
Í tilkynningu frá ráðuneytinu
segir að Sólvangur fái heimild
fyrir þremur nýjum hjúkrunar
rýmum. Tvö þeirra ætluð fyrir
hvíldar innlagnir og eitt til varan
legrar dvalar. Jafnframt verður
opnuð dagdvöl fyrir átta aldraðra
einstaklinga. Þá mun heimilið
taka að sér matsölu til aldraðra í
þjónustumiðstöðinni Höfn og
afla þannig sértekna. Sýnt hefur
verið fram á að húsnæðis
kostnaður Sólvangs hefur verið
van metinn og mun velferðar
ráðu neytið taka tillit til þess með
viðbótarfjárheimildum. Starfs
manna hald á Sólvangi hefur
verið endurmetið. Niðurstöður
sýna að mönnun á heimilinu
hefur verið töluvert yfir meðaltali
mönn unar á sambærilegum
stofn unum og í því ljósi hefur
stöðugildum verið fækkað um
fjögur og hálft.
Vilji til að stækka
væntanlegt hjúkrunarheimili
í Skarðshlíð
Velferðarráðuneytið og Hafn
ar fjarðarkaupstaður gerðu með
sér samkomulag árið 2010 um
byggingu nýs 60 rýma hjúkrunar
heimilis í Skarðshlíð samkvæmt
svo kallaðri leiguleið og er því
ætlað að leysa af hólmi reksturinn
á Sólvangi. Upphaflegar áætlanir
gerðu ráð fyrir að heimilið yrði
tekið í notkun á þessu ári en ljóst
er að þau áform ganga ekki eftir.
„Velferðarráðuneytið og bæjar
yfir völd eru einhuga um mikil
vægi þess að grípa til ráðstafana
á Sólvangi til að rétta af rekstur
heimilisins og auka þjónustu við
aldraða í bæjarfélaginu en leggja
áherslu á að þetta eru tímabundn
ar ráðstafanir þar til nýtt
hjúkrunarheimili verður tekið í
notkun,“ segir í tilkynningunni
Á fundi bæjarstjórnar Hafnar
fjarðar og velferðarráðuneytisins
sl. föstudag kom fram ósk bæjar
yfirvalda um að við uppbyggingu
í Skarðshlíð verði byggt stærra
hjúkrunarheimili en áformað er
sam kvæmt gildandi áætlun.
Ráðu neytið telur góð rök fyrir
því að endurmeta fyrirhugaðar
fram kvæmdir með mögulega
fjölgun rýma að leiðarljósi til að
efla þjónustu við aldraða á
svæðinu.
Auknar sértekjur og hagræðing á Sólvangi
Á að bæta þjónustu og styrkja rekstrarstöðu
Forskólanám
Innritun í Forskóla fyrir börn fædd 2006
Um 60 nýir nemendur verða teknir inn.
Suzuki fiðlunám - byrjendur
Suzukifiðlunám fyrir 5 ára börn fædd 2008.
Teknir verða inn 10 nemendur í þennan hóp.
Innritun
Innritun fer fram dagana 15.-30. apríl í gegnum
Íbúagáttina á www.hafnarfjordur.is. Þar
skal valið Umsókn og síðan Tónlistarskóli,
námsvist. Merkja skal við námsgreinina
Forskóli eða Suzukinám.
Nánari upplýsingar er að fá á skrifstofu skólans
í síma 555 2704 frá kl. 9-12 og 13-17.
Skólastjóri
Tónlistarskóli
Hafnarfjarðar
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n