Fjarðarpósturinn


Fjarðarpósturinn - 11.04.2013, Qupperneq 6

Fjarðarpósturinn - 11.04.2013, Qupperneq 6
6 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 11. apríl 2013 Stofnað 1982 Dalshrauni 24 • Sími 555 4855 steinmark@steinmark.is Reikningar • Nafnspjöld Umslög • Bæklingar Fréttabréf Bréfsefni Og fleira Félögum og hópum stendur nú til boða að taka að sér umsjón með hreinsun á þrettán skilgreindum svæðum í Hafnarfirði. Bænum hefur verið skipt í þrettán svæði og mun einn hópur sjá um hvert svæði. Hvert svæði skal hreinsað 4 sinnum á árinu og er áhersla lögð á hreinsun opinna svæði, sameignar bæjarbúa. Fyrir framlag sitt og þátttöku fá hópar styrk til starf­ seminnar. Verkefnið er opið öllum félögum, samtökum og hópum. Leitast verður við að velja hópa með fjölbreytilega starfsemi til verksins. Frekari upplýsingar og kort af svæðunum er að finna á www.hafnarfjordur.is/umhverfisvaktin. Frestur til að skila inn umsóknum er til 24. apríl 2013. Umsóknir skal senda á netfangið ishmael@ hafnarfjordur.is Vilt þú Vera á UmHVerFisVaktinni? Það er staðreynd að Banda ríkja­ dalur er í mjög sérstakri stöðu með því að vera notaður í yfir 90% heimsviðskiptanna og vera vara gjaldeyrisforði flestra ríkja ver ald ar. Einnig er að mesti partur skulda íslenska ríkisins og stórfyrirtækja er í Banda ríkja dölum. XG ­ Hægri grænir, flokk ur fólksins, vill taka hér upp nýjan íslenskan lögeyri, sem hann kallar ríkisdal og tengja hann við Bandaríkjadal, dal á móti dal. Gengið gagnvart öðrum gjald ­ miðlum fylgdi þá gengi Banda­ ríkja dals, en með þessu öðluðumst við æski leg an gengisstöðug leika og héldum á sama tíma eig in stjórn pen inga mála. Með slíkri nýrri íslenskri mynt gæfist sveigjan leiki til ýmissa hag felldra að gerða eins og afnáms verð­ bólgumark miða Seðla bankans, af náms al mennrar verð trygg ingar neyslu, hús næðis og námslána og á endanum gjaldeyrishafta og minnkun láns gjaldeyrisvaraforða Seðlabankans, sem að kostar stórfé í vexti. Stjórn á stýri vöxtum væri þá ennþá hjá okkur, en hefði nú virkileg áhrif með því að koma samhliða á stór aukinni bindiskyldu og útlána­ þaki á viðskiptabankana og ná þá stjórn á peningamagni í umferð. Þannig hefði Seðlabanki Íslands í fyrsta sinn í sögunni þau tæki og tól, sem hann þarf til þess að hafa fulla stjórn á peningamálum þ.m. til að takast á við verðbólguna með árangri. Með þessu ættu bæði verð bólga og vextir að lækka veru lega. Snjóhengjur og vogunar sjóð ir – Samningsstaða og ábati Með hinum nýja íslenska lögeyri þyrftu eigendur íslenskra króna erlendis að koma með þær heim til að skipta yfir í ríkisdalinn ellegar týna þeim. Þrotabúum föllnu bankanna, eigendum aflands krónanna og erlendu hræ­ gammasjóðunum væri hægt að bjóða tvær leiðir til að losna úr viðjum gjald eyr is haftanna: a) að skipta yfir í ríkisdal með 95% afföllum, eða b) skipta á aflandskrónu gengi í 30 ára afborgana laust skuldabréf, útgefnu í bandaríkjadölum á 1,5% vöxtum. Annars yrðu erlendu hræ gamma sjóðirnir rukk aðir um 6% vexti á innistæðum sínum fyrir allt umstangið við gömlu krónuna. Þetta sparar tugi milljarða króna á ári í vaxta kostn­ að. Peningana, sem koma í ríkis­ sjóð með þessum aðgerðum, á að nota til þess að borga upp það sem hægt er og skuldbreyta svo því, sem út af sendur af skuldum ríkissjóðs og fara í nauðsynlegar arðbærar fjárfestingar og skatta­ lækkanir hér á landi og hlúa að öldruðum, fötluðum og fátækum. Líta verður á aflandskrónurnar og niðurstöðu Icesave dómsins um greiðslur í íslenskum krónum sem sérstakt tækifæri í þessum efnum og snúa verður taflinu við og veita erlendum hrægammasjóðum mak leg málagjöld. Þarf nokkuð að velta þessu máli fyrir sér frekar? Höfundur er varaformaður Hægri grænna, flokks fólksins. Ný íslensk mynt Stórir ávinningar fyrir land og þjóð Kjartan Örn Kjartansson Ellefu sóttu um stöðu prests Ellefu sóttu um embætti prests í Hafnarfjarðarprestakalli, Kjal­ ar nesspró astsdæmi. Frest ur til að sækja um rann út þann 18. febrúar s.l. Umsækjendur eru: Cand. theol. Arndís G. Bernharðsdóttir Linn Sr. Bryndís Valbjarnardóttir Cand. theol. Davíð Þór Jónsson Cand. theol. Eva Björk Valdimarsdóttir Sr. Gunnar Jóhannesson Cand. theol. Jóhanna Erla Birgisdóttir Sr. Jón Helgi Þórarinsson Sr. Jóna Lovísa Jónsdóttir Sr. Kristín Þórunn Tómasdóttir Mag. theol. Sveinn Alfreðsson Sr. Þórhildur Ólafs Biskup Íslands skipar í em ­ bættið að fenginni umsögn val­ nefndar. Valnefnd skipa níu manns úr prestakallinu auk pró­ fasts í Kjalarnessprófasts dæmi. Nýtt hjúkrunarheimili var vígt í Sjá landi í Garðabæ síðastliðinn föstu dag. Hjúkrunarheimilið er byggt samkvæmt nýjustu stöðlum og öll rýmin eru einkarými og þann­ ig úr garði gerð að heim­ ilis menn geta eftir hentug­ leik um tekið á móti að ­ standendum sínum í eigin rými. Heimilinu er skipt í litlar einingar sem skapa heimilislegt andrúmsloft og sú hugmyndafræði sem lögð er til grundvallar er að heimilismenn hafi sem sjálfstæðasta búsetu með möguleika á virkni og þjálfun eftir heilsu, getu og áhuga hvers og eins. Þá er á jarðhæð heim­ ilisins 1.500 fermetra félagsaðstaða fyrir heimilismenn og aðra eldri borg ara í Garðabæ og í boði er dagþjálfun, sjúkraþjálfun og ýmis dægradvöl. Ennfremur hefur verið opnað bakarí á jarðhæðinni sem þjóna mun hverfinu öllu og skapar að auki líf og skemmtilega stemm­ ingu í húsið. Garðabær rekur hið nýja hjúkrunarheimili sem fengið hefur nafnið Ísafold, daggjöld eru greidd af ríkinu samkvæmt samn­ ingi, en þjónusta hjúkrunarheimila sem byggð eru samkvæmt svokall­ aðri leiguleið skal vera samkvæmt lögum nr. 125/1999, með síðari breyt ingum og lögum um heil­ brigðis þjónustu, nr. 40/2007. Tafir við byggingu nýs hjúkrun ar heimils í Hafnarfirði Það er fagnaðarefni að vel hefur tekist til í Garðabæ en á sama tíma miður að hér Hafnarfirði hafa fram­ kvæmdir við byggingu nýs hjúkrunarheimilis taf­ ist fram úr hófi. Fyrir hefur legið samkomulag frá árinu 2009 eins og í Garðabæ, en forval vegna verkefnissins fór fram árið 2010. Forvalið var dæmt ólöglegt en það hefur legið fyrir í tvö ár að minnsta kosti og fulltrúar sjálfstæðisflokksins í bæjarstjórn hafa ítrekað ýtt á að undirbúningsferlið yrði hafið að nýju og hófst það loks í lok síðasta árs. Í ljósi þess að að verkefnið hefur legið niðri í nokkur ár er skynsamlegt að endurmeta þær forsendur sem lagðar voru til grundvallar í upphafi og því góðar fréttir að viðræður eru hafnar við velferðarráðuneytið um endurmat verkefnisins með mögu ­ lega fjölgun rýma að leiðar ljósi. Mikilvægt að tryggja rekstr ar ­ forsendur og þjónustuframboð Miðað við þær kröfur sem ríkisvaldið gerir til reksturs nýrra hjúkrunarheimila, varðandi rekstur og þjónustuframboð er mikilvægt að endurskoða fleiri þætti sem máli skipta varðandi rekstur og þjónustu og meta forsendur í ljósi þróunar annars staðar. Ljóst er að nægilegt rými er á Sólvangsreitnum fyrir nýtt hjúkrunarheimili og með þeirri staðsetningu gæti núverandi bygging nýst fyrir stoðþjónustu, svo sem dagþjálfun, dægradvöl, sjúkra þjálf­ un, ofl auk þess sem nálægð við Heilsu gæsluna skiptir miklu máli. Þetta er sú leið sem flest önnur sveitar félög hafa farið, þ.e. að tengja nýtt hjúkrunarheimili við núverandi starfssemi til að tryggja hagræði í rekstri og fjölbreytni í stoðþjónustu auk sem sem nálægð við þjónustu­ íbúðir skiptir miklu máli. Stöndum vörð um Sólvang og tryggjum framtíð svæðisins Aðstandendur heimilismanna á Sólvangi vita hversu þrengt hefur að starfseminni á undanförnum árum og nýjustu fréttir um fjölgun vist­ manna á sama tíma og stöðugildum er fækkað um 4,5 valda mörgum sem til þekkja ugg í brjósti. Það er nöturlegt að þjónusta við heimilis­ menn á Sólvangi skuli þannig skert og bæjarbúar hafa miklar og rétt­ mætar áhyggjur af framtíð Sólvangs enda ljóst að þegar nýtt hjúkrunar­ heimili rís mun samningur um Sólvang renna út að óbreyttu. Ekki er hægt að aðskilja þessi tvö mál enda eru þau nátengd þar sem nýtt hjúkrunarheimili mun leysa af hólmi núverandi starfsemi Sólvangs. Höfundur er bæjarfulltrúi. Garðabær fær nýtt hjúkrunarheimili Helga Ingólfsdóttir Við Vinstri græn teljum að endurskoða þurfi húsnæðiskerfið með það fyrir augum að auka fjölbreytni og bjóða upp á fleiri raunhæfa búsetukosti. Við tökum þannig undir með til að mynda Alþýðusambandinu sem hefur lagt fram at ­ hygl isverðar hug mynd­ ir um aukna fjöl breytni á húsnæðismarkaði og að byggja hér að nýju upp félagslegt hús­ næðis kerfi. Kannski getum við lært af frænd um vorum á Norð urlöndum í þessu sambandi. Þetta þýðir alls ekki að okkur sé uppsigað við að fólk eignist sitt eigið húsnæði. Þvert á móti, við viljum einmitt leita raunhæfra leiða til að gera fólkinu í landinu kleift að eignast þak yfir höfuðið og búa þar síðan við öryggi og stöðugleika. En séreignarstefnan hentar ekki öllum. Valkostirnir þurfa því að vera fleiri, meðal annars til þess að ungt fólk og barnafjölskyldur geti með sæmilega góðu móti fengið þak yfir höfuðið. Ríkisstjórn Vinstri grænna og Samfylkingarinnar hefur gripið til fjölmargra ráðstafana til að koma fólki í skuldavanda til hjálpar. Komið var á fót embætti umboðsmanns skuldara, þak var sett á dráttarvexti og síðast en ekki síst hafa vaxtabætur verið hækkaðar stórlega. Það hefur lækkað vaxtakostnað heimilanna um 10­45 prósent, mest hjá þeim sem lægstar hafa tekjurnar. Þannig hefur skattkerfinu verið beitt með réttlátum hætti til að jafna lífs­ kjör. Betur má þó ef duga skal í mörgum tilvikum og við verðum að halda áfram að leita lausna á vanda þeirra sem eru í mesta greiðslu vand­ anum, jafnt þeirra sem eiga og þeirra sem leigja. Það er ekki endi­ lega töfralausn að afnema verðtrygg ingu en hún stenst ekki í óbreyttri mynd. Henni verður að setja skorður til að verja fólk fyrir áföll um og kollsteypum. Að sama skapi gengur ekki að fólk leggi í fjárhagslegar óvissuferðir til áratuga þótt lánin séu óverð­ tryggð. Öryggi og stöðugleiki eru lykilorðin í þessu sambandi. Húsnæðismál og endurskoðun hús næðislána verða eitt mikil­ vægasta verkefni stjórnvalda á næstu árum. Þar horfum við í VG til framtíðar um leið og við leitum raunhæfra lausna á þeim fortíðarvanda sem blasir við okkur. Höfundur er frambjóðandi Vinstri Grænna. Fleiri valkosti á húsnæðismarkaði Garðar H. Guðjónsson

x

Fjarðarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjarðarpósturinn
https://timarit.is/publication/945

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.