Fjarðarpósturinn


Fjarðarpósturinn - 11.04.2013, Side 8

Fjarðarpósturinn - 11.04.2013, Side 8
8 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 11. apríl 2013 Björt framtíð hefur kynnt kosninga áherslur sínar undir orðunum Bráðum kemur betri tíð. Þær má lesa á vefnum bjortframtid.is. Áherslurnar lýsa sýn Bjartrar framtíðar á gott þjóðfélag. Við tölum ekki í loforðum. Við tölum í mark miðum. Björt framtíð vill stöðugt þjóð félag þar sem fólk getur gert áætlanir og atvinnulíf getur dafn að. Í stöðugu þjóðfélagi þarf enga verðtryggingu. Leiðin að þessu er m.a. að klára viðræður við ESB og fara í gjaldmiðils samstarf við evrópska seðla bankann. Það þarf líka að fara vel með opinbert fé og auka útflutn ingsverðmæti. Til þess þarf að auka fjölbreytni í atvinnulífinu. Blása þarf til uppbyggingar skapandi greina, tækni­ og hugverka iðnaðar og ferðaþjónustu. BF vill fjöl breytni á öllum sviðum mannlífsins, líka í heilbrigðiskerfinu og skóla­ kerfinu. Það hjálpar svo til við að ná einu markmiðinu enn sem er að bæta nýtingu á tíma, hæfi­ leikum og fjármunum. Á Íslandi er of lítil framleiðni. Það sýna úttektir. Við fáum of lítið fyrir vinnu okkar og fjárfestingar. Tíma, hæfileikum og vinnu er sóað. Við viljum minnka það. Í áherslum BF helst allt í hendur. Fjölbreytni í atvinnu­ lífinu stuðlar að því að fleiri geta unnið við það sem þeir gera best. Framleiðni eykst. Verð­ mæti aukast. Sveigjan­ leiki og fjöl breyti leiki í heilbrigðis kerfinu stuðl ar að því að fleira fólk fær úrræði sem hæfa betur. Peningar nýtast þá líka betur. Brottfall úr skólum er dæmi um aðra tegund af sóun, sem við eigum að taka alvarlega og mæta með fjöl breyttari náms­ leiðum, sem henta ungu fólki betur. Þá fáum við líka fleira menntað fólk, sem aft ur eykur verðmæti í hagkerfinu sem eykur stöðugleika. Kosningastefna Bjartrar fram­ tíðar samanstendur af mark­ miðum sem margir telja vafalítið sjálfsögð. En þessum mark mið­ um hefur ekki verið náð. Það er mein ið. Þess vegna var Björt framtíð stofnuð. Hún var stofnuð til þess að bjóða upp á plan A, í stað þess að vera endalaust að ræða plan B. Höfundur er frambjóðandi Bjartrar framtíðar. Veljum plan A Guðmundur Steingrímsson Ein mesta ógnin við mögulegan vöxt íslensks efnahags og versta afleiðing efna hags hrunsins er land­ flóttinn, mannauðstapið. Frá árinu 2009 hefur um 2,7% þjóð arinnar flutt af landi brott sem er gífurlega hátt hlutfall af ekki stærri eyþjóð. Alltof margir hafa ákveðið að hag sín­ um sé bet ur borgið ann­ ars staðar. Sumir fóru vegna þess að þeir sáu ekki fram úr skuldum, misstu vinnuna, lækk uðu í tekjum, vegna versn­ andi vinnu um hverfis og síðast en ekki síst höfðu ekki trú á aðgerðum stjórn valda til þess að byggja hér upp trúverðuga framtíð. Við vitum af hryllilegum staðreyndum þess efn is að hér séu heilu stéttirnar að hverfa úr landi, nefni hér sérfræði­ lækna sérstaklega. Ríkisstjórnin hefur útskýrt þetta sem minnkandi atvinnuleysi á Íslandi. Ég útskýri þetta sem sjúkt atvinnulíf og blóð­ töku sem ekki verður unað við öllu lengur. Ég tel að þessir brottfluttu Íslend ingar eigi það meira og minna sameiginlegt að bíða eftir því að aðstæður breytist ,,heima“ svo þeir geti snúið aftur. Hér vill fólk eiga heima og bera sín bein. Hér bíðum við eftir því að fá ástvinina okkar heim. Til þess þurfa að stæð ur að breytast. Hér þarf fjárfesting að fara af stað svo að atvinnu tæki­ færum fjölgi og síðast en ekki síst atvinnuöryggi auk ist. Eins og staðan er í dag eru mörg fyrirtæki orðinn þreytt á óhóflegri skattastefnu ríkisins og því skekkta samkeppnis­ umhverfi sem hér ríkir vegna afskrifta tiltekinna fyrirtækja. Það er ekki sjálfgefið að einstakl ing ar séu í atvinnurekstri því ábyrgðin sem því fylgir er ekki fyrir hvern sem er og oft vanmetin. Sjálfstæðiflokkurinn hefur kom­ ið með raunhæfar lausnir fyrir einstaklinga og heimili. Við ætlum líkt og aðrir flokkar, ekki gefa tommu eftir í samningaviðræðum við vogunarsjóðina. Ef þetta svig­ rúm myndast sem fólk er vonast eftir munum við að sjálfsögðu nýta það til góðra verka heimilunum og samfélaginu öllu til góða. Ekki skortir hugmyndirnar um nauð­ synleg verkefni sem þarf að ráðast í. Við gefum okkur niðurstöðuna samt sem áður ekki fyrirfram þar sem að það er einfaldlega óábyrgt. Okkur er sérstaklega hugsað til unga fólksins og þeirra sem ekki eru enn komnir í eigið húsnæði, hóp ur sem gleymist alltof oft. Með sparnaði í formi skattaafslátts get­ um við gert fólki kleift að safna sér fyrir heimili. Hægt er að fá skattaafslátt allt að 40.000 krónum á mánuði og að fjórum árum liðn­ um getur sá sparnaður verið orðið 6,7 milljónir auk vaxta. Það munar um slíkt þegar hugað er að fast­ eigna kaupum. Við megum ekki gleyma þessum hópi í umræðunni um skuldsett heimili. Vissulega eiga margir um sárt að binda og forsendubrestur hefur orðið á lánastöðu lántakenda. Við tökum stöðu með okkar fólki, við ætlum að berjast fyrir trúverðugri framtíð á Íslandi. Við höfum lausnirnar, skilninginn og getuna til þess að taka nauðsynleg skref út úr efna­ hags kreppnunni á Íslandi. Ekkert hik, kjósum Sjálfstæðisflokkinn. Höfundur er frambjóðandi í SV-kjördæmi. Landflóttinn ­ mest ógnin Karen Elísabet Halldórsdóttir Ég efast ekki um, að hver einasti maður, sem vettlingi getur valdið, hafi á einn eða annan hátt áhuga að vinna eða taka þátt í einhverskonar athöfnum. Það er okkur Íslend­ ingum eðlislægt að vera starfsöm og taka þátt í að byggja upp gott samfélag. Það er því ömurlegt að horfa upp á fullfrískt fólk flýja land til að afla sér framfæris, missa heimili sín eða ganga um at ­ vinnu laust. Ég á mér þann draum að sjá atvinnu og fjöl­ skyldulíf dafna á Íslandi. Að sjá atvinnutækifæri fyrir alla þá, sem hafa áhuga að vinna eða taka þátt í einhverskonar starfsemi. Að sjá alla íslenska borg ara hafa tækifæri að eignast sitt eigið húsnæði. Að sjá alla hafa aðgang að góðri heilbrigðisþjónustu og menntakerfi. Enginn á að þurfa að líða skort á Íslandi og við eigum að geta séð vel fyrir þeim, sem ganga ekki heilir til skógar. Mig dreymir um, að þegar ég verð orðinn gamall, þá búi ég í landi þar sem öldruðum verður veitt áhyggju laust ævikvöld. Þessi draumur getur hæglega náð fram að ganga ef gæðum lands ins er réttlátlega skipt, þar sem enginn er skilinn útundan. Hægri grænir, flokkur fólksins hefur sett fram metnaðarfulla stefnu sem miðar að því að upp fylla þennan draum, sem við eigum svo mörg sameiginlega. Við erum fámenn þjóð í litlu landi og það er algjör ónauð syn að hygla einum þjóðfélagshópi á kostnað annars, einum landshluta á kostnað hins eða einu fyrirtæki á kostnað þess næsta. Við getum öll haft það gott og það eina sem við þurfum að gera er að vera sam heldin og yrkja samvinnu. Það kost ar ekki neitt, en uppsker ríku­ lega. Ég veit að flest ykkar, sem vitið ekki hvernig hægt er að ná endum saman, vitið ekki hver samastaður ykkar verður á morgun, þið, sem sjáið ekkert nema svartnættið, von­ leysi og uppgjöf framundan, hafið auðvitað ríka þrá í hjarta ykkar um betra líf. Draumur minn er, að ég geti vakið í brjósti ykkar vonina, vonina um betra líf, gleði og bjarta framtíð í stað reiði fortíðarinnar. Í einlægni langar mig að fá tækifæri með framboði mínu, að vinna að því að Ísland verði fyrirmyndarríki og veiti hverjum og einum tækifæri til að lifa því lífi sem honum hent­ ar. Vandamálin, sem við þurfum að leysa, verða að vera leyst á pólit­ ískum vettvangi. Með breyttu og já kvæðu hugarfari, samheldni, samvinnu og skynsemi getum við breytt þessu samfélagi, sem hefur fram til þessa einkennst um of af sérhagsmunagæslu á kostnað skattborgaranna og almennings. Þannig óska ég þess að við öll fáum tækifæri til að láta draumana rætast og það mun takast með því að við kjósum Hægri græna, flokk fólksins til Alþingis í vor. Leyfum sumrinu að koma með nývöxtinn og hlýjuna. Hægri grænir skreytir sig ekki turtildúfum, frægum eða þekktum andlitum, heldur ein­ göngu venjulegu íslensku fólki, sem þráir drauminn um betra hlut­ skipti. Með atkvæði þínu til Hægri grænna kemur þú þessum draumi skrefinu nær því að verða að veruleika. Höfundur er viðskiptafræð ing- ur og frambjóðandi í 1. sæti Hægri grænna í SV-kjördæmi. Draumalandið Sigurjón Haraldsson „Ég vildi fyrst tryggja fjöl­ skyldunni öruggt húsnæði. Lagði því allt mitt spari fé í það. Mark mið ið var svo að nýta eigið fé í húsnæðinu til að fara af stað með fyrirtæki.“ sagði maður við mig nýlega. „Ég hélt að þetta væri skyn sama leiðin. Í dag á ég ekki neitt, allt mitt fé er farið og ég er ekki að stofna neitt fyrirtæki, hvorki í dag né á næstu árum.“ Þennan unga mann hitti ég fyrir utan verslun í kjördæminu. Ein föld frásögn hans rammaði betur inn en nokkuð það sem ég hafði fram að færa af hverju við fram sóknarmenn leggjum jafn mikla áherslu á skulda­ leiðréttingu og raun ber vitni. Í dag virðast flestir viðurkenna mikilvægi þess að grípa til að gerða fyrir heimilin. Leiðtogar flokkanna við ur kenna einnig nauðsyn þess að sam hliða uppgjöri föllnu bank anna og afléttingu gjald eyrishaftanna verði að færa niður krónueignir. Við það getur mynd ast ákveðið svigrúm til að koma til móts við heimili lands ins. Við teljum rétt að nýta það svigrúm til handa heimilum lands ins, á sanngjarnan og rétt­ látan máta. Aðrir vilja nýta svig­ rúmið til að lækka skuldir ríkis­ sjóðs og telja það jafnvel skaðlegt að aðstoða heimili þessa lands á almennan hátt. Ef grípa eigi til aðgerða eigi frekar að velja úr ákveðna hópa. Um grundvallarmun er að ræða í nálgun á efnahagsvanda okkar Íslendinga. Frá 2009 hafa framsóknarmenn talað fyrir almennri skuldaleið­ réttingu til að koma efnahags­ lífinu af stað. Heimilin eru gangverk efnahagslífsins og hornsteinninn sem allt byggir á. Ef þau eru að drukkna í skuldum, eru þau ekki að kaupa vöru og þjónustu. Afleiðingin er að fyrirtæki geta ekki ráðið starfs­ menn, hækkað laun eða ráðist í nýjar fjárfestingar. Tekjur ríkis­ sjóðs standa þá í stað eða dragast saman og við getum ekki tryggt velferðina. Nákvæmlega eins og ungi maðurinn lýsti. Við viljum snúa þessari þróun við. Til þess höfum við kjark, þor og staðfestu. Sækjum fram fyrir heimilin. Höfundur er þingmaður Framsóknar. Sækjum fram fyrir heimilin Eygló Harðardóttir Forskólanám Innritun í Forskóla fyrir börn fædd 2006 Um 60 nýir nemendur verða teknir inn. Suzuki fiðlunám - byrjendur Suzukifiðlunám fyrir 5 ára börn fædd 2008. Teknir verða inn 10 nemendur í þennan hóp. Innritun Innritun fer fram dagana 15.-30. apríl í gegnum Íbúagáttina á www.hafnarfjordur.is. Þar skal valið Umsókn og síðan Tónlistarskóli, námsvist. Merkja skal við námsgreinina Forskóli eða Suzukinám. Nánari upplýsingar er að fá á skrifstofu skólans í síma 555 2704 frá kl. 9-12 og 13-17. Skólastjóri Tónlistarskóli Hafnarfjarðar www.facebook.com/ fjardarposturinn Ertu búin/n að Líka við?

x

Fjarðarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjarðarpósturinn
https://timarit.is/publication/945

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.