Fjarðarpósturinn


Fjarðarpósturinn - 11.04.2013, Page 11

Fjarðarpósturinn - 11.04.2013, Page 11
www.fjardarposturinn.is 11 Fimmtudagur 11. apríl 2013 Langar þig að reima á þig hlaupaskóna og hreyfa þig úti í sumar? Þá gefst þér tækifæri til að vera hluti af frábær um hlaupahóp en Hlaupahópur FH ætlar að fara af stað með 8 vikna byrjendanámskeið mánudaginn 29. apríl, kl. 17.30 í anddyri Kaplakrika Sérstök æfingaáætlun er í boði og stefnt er að því að allir í hópnum geti hlaupið 5 km samfellt í lok námskeiðs. Æfingar verða á eftirfarandi tímum: Mánudaga kl. 17.30 í Kaplakrika Miðvikudaga kl. 17.30 í Kaplakrika Laugardaga kl. 10.00 í Suðurbæjarlaug Nánari upplýsingar veita: hronn@lsr.is, petur@ironviking.is og ingolfur.111@gmail.com www.hhfh.is Lið Flensborgarskólans og Verslunarskóla Íslands keppa til úrslita í Mælsku­ og rökræðu­ keppninni, Morfís í Hörpu annað kvöld. Flensborgarliðið sigraði lið Menntaskólans í Hamrahlíð í undanúrslitum í í Flensborg með 24 stiga mun. Ræðumaður kvöldsins var Atli Jasonarson í MH. Í liði Flensborgarskólans eru þau Aron Kristján Sigur­ jóns son liðsstjóri, Katrín Ósk Ásgeirsdóttir frummælandi, Berg þór Þorvaldsson með­ mælandi og Jón Gunnar Ingólfs son stuðningsmaður. Í keppninni eru þrír dómarar og voru þeir ekki allir sammála um úrslit keppninnar. Þakið á troðfullum Hamarsal var nærri því að rifna af, þegar Brynjar Guðnason einn af dómurum keppninnar tilkynnti um sigur­ vegara. ,,Þetta er gjörsamlega geggj­ að,“ sagði Bergþór Þor valds son meðmælandi í Flensborgar­ liðinu við fréttavef Flensborgar­ skólans, gaflari.is. Þetta verður í fyrsta sinn sem Flensborgarskólinn keppir í úrslitum Morfís. Morfíslið Flensborgar­ skólans keppir til úrslita

x

Fjarðarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fjarðarpósturinn
https://timarit.is/publication/945

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.