Fjarðarpósturinn


Fjarðarpósturinn - 11.04.2013, Side 12

Fjarðarpósturinn - 11.04.2013, Side 12
12 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 11. apríl 2013 Aðalfundur Krabbameinsfélag Hafnarfjarðar boðar til aðalfundar í safnaðarheimili Hafnarfjarðarkirkju við Strandgötu þriðjudaginn 16. apríl 2013 kl. 18.00. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Önnur mál. Stjórnin. Fundarboð Aðalsafnaðarfundur Ástjarnarkirkju verður haldinn að lokinni guðsþjónustu þann 14. apríl næstkomandi. Hefst guðsþjónustan kl. 11. Dagskrá fundarins: 1. Greint frá starfsemi og rekstri sóknarinnar á liðnu starfsári. 2. Endurskoðaðir reikningar sóknar og kirkjugarðs fyrir s.l. ár. 3. Greint frá starfsemi héraðsnefndar og héraðsfundi. 4. Ákvörðun um meiriháttar framkvæmdir og framtíðarskuldbindingar. 5. Kosning sóknarnefndarmanna og jafnmargra varamanna til 4ra ára. 6. Kosning tveggja skoðunarmanna eða endurskoðanda sóknar auk fulltrúa í stjórn kirkjugarðs og varamanna þeirra til árs í senn. 7. Kosning í aðrar nefndir og ráð. 8. Önnur mál. Sóknarbörn eru hvött til að mæta og leggja sitt af mörkum til uppbyggingar góðs samfélags í sókninni. Sóknarnefnd www.astjarnarkirkja.is Ástjarnarkirkja Kirkjuvöllum 1 U N bókhald ehf Almenn bókhaldsþjónusta Stofnun félaga Skattframtöl fyrir einstaklinga og fyrirtæki Allt á einum stað UN Bókhald ehf • Reykjavíkurvegi 64, Hafnarfirði 568 5730 • unbokhald.is • unbokhald@unbokhald.is Kosningabarátta fyrir Alþingis­ kosningar er nú sem óðast að taka á sig mynd og virðist ætla að verða með athyglisverðara móti. Fram­ bjóðendur Framsóknar flokks ins hafa lagt höfuðáherslu á að kynna helstu baráttumál flokks­ ins um leiðréttingar á stökk breyttum lánum heim ila og að leggja nið­ ur verð tryggingu á neyt­ enda lánum. Andstæðingar Fram­ sókn ar flokksins hafa hins vegar lagt sérstaka áherslu á að ræða um Framsóknarflokkinn. Úr herbúðum andstæð ing­ anna koma engar tillög ur, engin stefna, aðeins aumk unar vert sífur um svokölluð yfirboð Framsóknar. Eru ámátlegustu sót raft ar dregnir á flot til að kyrja þennan söng með útúrsnúninga og svekkelsi að vopni. Mest eru þetta sömu raddir og vildu skjálfandi gangast undir Icesave klafa á sínum tíma, alveg sama hvað það átti að kosta. Með sífri sínu taka andstæðingar Framsóknarflokksins nú stöðu með vogunarsjóðum gegn íslensk um heimilum og eru jafn skjálf andi á beinunum gagnvart sjóðun um og Icesave skuldareigendum forðum. Eru margir til kallaðir, jafnvel menn sem hafa gefið sig út fyrir að vera verkalýðsleiðtogar. Það er eftirtektarvert að þessir aðilar hafa uppi svipuð rök fyrir hræðslu ­ kenndri afstöðu sinni nú og fyrir vilja sínum til að sam þykkja Icesave á sín­ um tíma. Hafa sem sagt engu gleymt og ekkert lært. Athyglisverðust og mest upplýsandi hlýtur þessi umræða þó að að vera fyrir þá sem ekki hafa enn gert upp hug sinn um hvað þeir hyggjast kjósa. Það hlýtur að vera umhugsunarvert fyrir fólk sem berst harðri baráttu með dugnað og heiðarleika að vopni fyrir heimilum sínum og af ­ komu þeirra hvort þeir sem lyppast niður við fyrsta mótlæti eru trausts­ ins verðir. Það hlýtur að vera umhugsunarvert fyrir fólk sem leitar lausna fyrir sig og fjölskyldur sínar hvort rétt sé að færa fjöregg þeirra í hendur fólki sem kyrjar einum rómi: ,,Þetta er ekki hægt.” Framsóknarmenn láta ekki úr tölu raddir nokkurra kjarkleys­ ingja hrekja sig af leið í baráttunni fyrir réttlætinu. Þvert á móti herð­ umst við í baráttu okkar fyrir réttlátri leiðréttingu til handa íslensk um heimilum. Töluvert hefur verið rætt um kostnað af boðuðum aðgerðum Framsóknar. Víst er að aðgerðirnar munu kosta sitt, en stefna Fram sóknar er sú að vogunar­ og verð bréfa sjóðir sem fengu kröfur föllnu bankanna afhentar á silfurfati beri stærstan kostnað af aðgerð unum og skili með því íslenskum almenningi hluta þess ofurgróða sem þeir hafa nú þegar innleyst af ,,fjárfestingu” sinni. Við Framsóknarmenn trúum því nefnilega að í hverri áskorun felist tækifæri. Við trúum því að raun­ verulega sé hægt að ráðast til atlögu við vogunarsjóði og aðra kröfu­ eigendur með málstað réttl ætisins að vopni. Við trúum því að réttlætið muni hafa sigur! Höfundur skipar 3. sæti Framsóknarflokksins. Réttlæti Þrosteinn Sæmundsson Málefni Sólvangs hafa verið í umræðunni síðustu daga og sendu velferðarráðuneytið og stjórnendur Sólvangs frá sér sameiginlega fréttatilkynningu fyrir helgi þar sem fram kemur að gerð hafi verið áætl­ un til að snúa við mikl­ um og viðvarandi halla sem verið hefur á rekstri hjúkrunar heim­ il isins. Niðurstöður úr sam­ eigin legri vinnu stjórn­ enda Sólvangs og vel­ ferð ar ráðuneytisins hafa verið kynntar fyrir starfsfólki Sólvangs og voru kynntar fulltrúum úr bæjarráði síðastliðinn föstudag. Sólvangur fær heimild fyrir þremur nýjum hjúkrunarrýmum, tvö þeirra ætluð fyrir hvíldar­ innlagnir og eitt til varanlegrar dvalar. Jafnframt verður opnuð dagdvöl fyrir átta aldraða ein­ staklinga. Þá mun Sólvangur taka að sér matsölu fyrir Öldrun­ ar samtökin Höfn. Sýnt hefur verið fram á að hús­ næðiskostnaður Sólvangs hefur verið vanmetinn og mun velferðarráðu neyt ið taka tillit til þess með viðbótarfjár heim ild um. Starfs manna hald á Sólvangi hefur einnig verið end ur metið í ljósi þess að mönnun á heimilinu hef ur verið yfir meðal tali á sam­ bærilegum stofnunum. Á fundinum með ráðu neytinu óskuðum við eftir því að í Skarðs hlíð verði byggt stærra hjúkrunarheimili en áformað er. Ráðuneytið tók vel í þá ósk okkar og verið er að skoða hvort hægt sé að að endurmeta fyrirhugaðar fram­ kvæmdir með mögulega fjölgun rýma að leiðarljósi. Árið 2010 var gert sam komu­ lag um byggingu nýs 60 rýma hjúkrunarheimilis í Skarðshlíð og var því ætlað að leysa af hólmi reksturinn á Sólvangi. Vinn an í málefnum aldraðra byggir ekki síst á víðtækri stefnu­ mótun sem unnin var og gefin út í viðamikilli skýrslu um stefnu Hafnarfjarðar í málefnum aldr­ aðra árið 2006. Verkefnin framundan eru því að byggja nýtt hjúkrunarheimili í Skarðshlíð, fjölga hjúkrunar­ rýmum þar úr 60 í 80 og tryggja að Sólvangur og Sólvangstorfan fái það hlutverk sem þeim ber sem miðstöð öldrunarþjónustu í Hafnarfirði í samræmi við skýrsl una frá árinu 2006. Á www.hafnarfjordur.is er hægt að lesa fréttatilkynninguna í heild sinni og skjá skýrsluna sem vísað er til. Höfundur er bæjarstjóri. Hlutverk Sólvangstorfunnar og nýtt hjúkrunarheimili í Skarðahlíð Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir Allt frá árinu 1937, þegar Friðrik Bjarnason og Guðlaug Pétursdóttir færðu Karlakórnum Þröstum að gjöf, lagið og ljóðið „Hafnarfjörður“; hefur það verið héraðssöngur okkar Hafnfirð inga. En skyldu aðrir bæir, sveitir og héruð landsins ekki eiga sér slíkar tónsmíðar; þar sem kynt er jákvætt undir dálítinn hrepparíg og heimabyggðinni hossað? Þrestir hafa kannað málið og nú viðað að sér fjölda bæja­, sveita­ og héraðssöngva. Þetta er þema vortónleika Karlakórsins Þrasta á 101. starfsárinu. Farin verður hring ferð um landið í söng­ og tón máli, norður um Vesturland, austur eftir Norður landi, suður um Austurland og vestur um Suðurland; uns komið verður heim aftur, því „heima er best“! Tónsmíðarnar eru bæði innlendar og erlendar, en öll ljóð og textar auðvitað á íslensku. Þrestir kalla þetta Landalögin! Þegar lagt er upp í slíka langferð með Landalögin, er betra að vera með góðan mann með sér sem ratar um landið og hver er betri til leiðsagnar en einmitt Gísli Einarsson Landa­ stjóri af RÚV? Sagt er að Gísli eigi næstum þrjátíu mismunandi lopapeysur og hver veit nema tónleikagestir fái að berja þær augum á tónleikunum? Stjórnandi Þrasta er Jón Krist­ inn Cortez og sér til aðstoðar hefur hann píanóleikarann Jónas Þóri og bassafiðluleikarann Richard Korn. Vortónleikar Þrasta verða a.m.k. tvennir að þessu sinni, fimmtu daginn 18. apríl kl. 20 í Víðistaðakirkju og laugardaginn 20. apríl kl. 16, einnig í Víði­ staða kirkju. Miðasala verður við innganginn, en styrktarfélagar kórsins, sem eru búnir að greiða félagsgjaldið, ættu þegar að vera komnir með sína míða í hendur. Landalögin á vortónleikum Þrasta Gísli Einarsson

x

Fjarðarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjarðarpósturinn
https://timarit.is/publication/945

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.