Fjarðarpósturinn


Fjarðarpósturinn - 24.04.2013, Qupperneq 2

Fjarðarpósturinn - 24.04.2013, Qupperneq 2
2 www.fjardarposturinn.is Miðvikudagur 24. apríl 2013 Kistur • Krossar • Sálmaskrár • Duftker • Blóm • Fáni • Gestabók • Erfidrykkja • Prestur Kirkja • Legstaður • Tónlist • Tilkynningar í fjölmiðla • Landsbyggðarþjónusta • Líkflutningar Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is Vaktsími: 565 5892 & 896 8242 Allan sólarhringinn Komum heim til aðstandenda ef óskað erSverrir Einarsson Kristín Ingólfsdóttir Alúð - virðing - traust Áratuga reynsla ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR RAGNAR SCHEVING ÚTFARARÞJÓNUSTA ÓLÖF HELGADÓTTIR ÚTFARARÞJÓNUSTA HÁLFDÁN HÁLFDÁNARSON ÚTFARARSTJÓRI FRÍMANN ANDRÉSSON ÚTFARARSTJÓRI FJÖLSMÍÐ LÍKKISTUVINNUSTOFA Síðan 1993 Stapahraun 5 220 Hafnarfjörður www.uth.is uth@simnet.is 565-9775 Hafnfirska fréttablaðið Útgefandi: Keilir ehf. kt. 480307-0380 Fjarðarpósturinn, Bæjarhrauni 2, 220 Hafnarfirði Vinnsla: Hönnunarhúsið ehf. Ritstjóri: Guðni Gíslason Ábyrgðarmaður: Steingrímur Guðjónsson. Ritstjórn: 565 4513, 896 4613, ritstjorn@fjardarposturinn.is Auglýsingar: 565 3066, auglysingar@fjardarposturinn.is Prentun: Steinmark ehf. • Dreifing: Íslandspóstur ISSN 1670-4169 Vefútgáfa: ISSN 1670-4193 www.fjardarposturinn.is www.facebook.com/fjardarposturinn Nú er komið að því. Sumarið kemur á morgun! Það verður því á sumri sem við göngum til kosninga og veljum þá sem við viljum að stjórni landinu okkar. Við hér á SV­horninu fáum þó minna um það að segja en þeir á NV­landinu, því atkvæði þeirra vega miklu meira en okkar. Löngu er tímabært að gera landið að einu kjördæmi og gefa kjósendum raunhæfan kost á að endurraða á lista. Aðeins einn Hafnfirðingur er í fyrsta sæti á lista. Enginn í 2. sæti og tveir í 3. sæti. Auðvitað á það ekki að skipta máli en við sjáum hvernig til tókst með St. Jósefs­ spítala, þar vantaði fólk til að tala máli Hafnfirðinga og annarra sem þekktu og kunnu að meta þá þjónustu sem þar var veitt. Er ásættanlegt að leggja niður þjónustu sem vel gengur og flytja í ríkisspítalann sem svo býður lakari þjónustu? Í stjórnmálum er mikilvægt að sjá heildarmyndina og það er ekki alltaf létt verk. Töfralausnir og gyllitilboð eiga ekki að sjást í kosningabaráttunni og komi slíkt fram eiga menn að vera duglegir að reikna út og sýna fram á afleiðingarnar. Allir vilja betra þjóðfélag og þeir stjórnmálaflokkar sem bjóða fram eiga að sýna okkur fram á það hvernig þeir telja að hægt sé að gera þjóðfélagið betra með þeim áherslum sem þeir hafa. Það verður eflaust ekki létt fyrir fólk að velja flokk til að kjósa, sumir eru sannfærðir en aðrir þurfa eflaust að velja illskársta kostinn. Það er vilji kjósenda sem telur á laugardaginn – ekki niðurstöður úr skoðanakönnunum! Skátar hafa haldið upp á sumardaginn fyrsta í marga áratugi, dregið bæjarbúa með sér í skrúðgöngu um bæinn og boðið upp á skemmtun. Bæjarbúar eru hvattir til að taka þátt í skrúðgöngu skátanna og ekki síður skemmtun þeirra á Thorsplani á eftir. Guðni Gíslason ritstjóri. leiðarinn HelgiHald í söfnuðum Þjóðkirkjunnar í Hafnarfirði Ástjarnarkirkja Hafnarfjarðarkirkja Víðistaðakirkja www.astjarnarkirkja.is www.hafnarfjardarkirkja.is www.vidistadakirkja.is Sunnudagur 28. apríl Messa og barnastarf kl. 11 Sameiginlegt upphaf. Leiðtogi barnastarfs er Nína Björg Vilhelmsdóttir djákni. Henni til aðstoðar er Margrét Heba sem er nýútskrifuð úr Farskóla Þjóðkirkjunnar. Félagar úr Barbörukórnum syngja. Organisti er Guðmundur Sigurðsson. Prestur er sr. Þórhildur Ólafs. Kaffi, kex og djús í Ljósbroti Strandbergs, safnaðarheimilis Hafnarfjarðarkirkju. Sumardagurinn fyrsti, 25. apríl Skátamessa kl. 13.00 Prestur: Sr. Bragi J. Ingibergsson. Hugvekju flytur Una Guðlaug Sveinsdóttir, félagsforingi Hraunbúa Skátar sjá um tónlistarflutning og lesa ritningarlestra. Gleðilegt sumar! Sunnudagur 28. apríl Sunnudagsskóli kl. 11 í umsjá Fríðu og Bryndísar. Þema dagsins er bænin. Dægurlagamessa kl. 20 Kór Ástjarnarkirkju syngur þekktar dægarperlur og ýmsir kórfélagar syngja einsöng. Stjórnandi: Helga Þórdís Guðmundsdóttir. Prestur er sr. Kjartan Jónsson Heitt á könnunni og samfélag á eftir. 35 ár Stolt að þjóna ykkur Útfararskreytingar kransar, altarisvendir, kistuskreytingar, hjörtu Bæjarhrauni 26 Opið til kl. 21 öll kvöld Símar 555 0202 og 555 3848 www.blomabudin.is Sunnudagur 21 apríl: Barna- og fjölskyldu- guðsþjónusta kl. 11 www.frikirkja.is Skátamessa, skrúð ganga og skemmti dagskrá Eins og venjan er sjá skátarnir úr Hraubúum að stórum hluta um hátíðarhöld sumardagsins fyrsta og verða áberandi eins og undafarin ár. Skátamessa Hátíðarhöldin hefjast á skátamessu í Víðistaðakirkju kl. 13 þar sem skátarnir stjórna tónlist og söng og lesa ritningalestra. Una Guðlaug Sveinsdóttir félagsforingi flytur hugvekju. Skrúðganga Eftir skátamessuna verður skrúðganga sem hefst við Víðistaðakirkju. Gengið verður eftir Garðavegi og Hraunbrún niður að Flókagötu, Vesturgötuna, inn Strandgötu og að Thorsplani. Lúðrasveit Tónlistar skól­ ans spilar í göngunni. Skemmtidagskrá Á Thorsplani verður skemmtidagskrá á sviði kl. 14 til 16 en auk þess ýmis skátaskemmtun, kassaklifur, andlitsmálningu, candy­floss, pylsu­ og sælgætissala og mart fleira. 14.00 Lúðrasveit Tónlistarskóla Hafnarfjarðar 14.15 Kór Flensborgarskóla 14.30 Jón Víðis töframaður 15.00 Ingó veðurguð með kassagítarinn 15.20 Siguratriði úr söngkeppni grunnskóla Hafnarfjarðar 15.30 Danshópurinn Gríslingarnir frá Listdansskóla Hafnarfjarðar. Kynnir á sviði verður Arnar Dan Kristjánsson, leikari.

x

Fjarðarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjarðarpósturinn
https://timarit.is/publication/945

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.