Fjarðarpósturinn - 24.04.2013, Side 6
6 www.fjardarposturinn.is Miðvikudagur 24. apríl 2013
Það virðist vera þannig að
margir ef ekki flestir líti svo á að
starfsmenn félagsmiðstöðva séu
að leika sér allan daginn. Það
sem fólk veit ekki, er að á bakvið
leikinn liggur skipulag, þjálfun
og félagsfræðilegar pælingar til
grundvallar því starfi sem unnið
er í félagsmiðstöðum.
Vissulega leika starfs
menn sér með krökk
unum en tómstunda
starfið er í raun eins og
gríma sem við felum
okk ur á bakvið því
undir niðri eru að gerast
magn aðir hlutir sem
fæstir skilja nema þeir
sem hafa fengið að sjá
hvað er fyrir bakvið
grímuna.
Í felum á bakvið grímuna er að
verða til öflugt og fært starfsfólk
sem er ekki einungis vel búið
und ir það að taka á móti færum
borðtennisspilara heldur veit það
hvernig á að svara spurningunum
sem eru of vandræðalegar til að
spyrja pabba og mömmu. Starfs
fólkið er opið fyrir því að ræða
um allt sem brennur á vörum
barnanna og vegna trúnaðar
skyldu starfsmanna er auðvelt
fyrir krakkana að treysta þeim
fyrir erfiðum leyndarmálum.
En afhverju ættu krakkarnir að
koma til starfsmanna félagsmið
stöðva til að segja frá?
Ég sagði áðan að starfsmenn
fela sig á bakvið grímu en í
gegnum borðtennis, billiard og
alla dagskrána sem við gerum
með krökkunum erum við að
spjalla við þau um allt á
milli him ins og jarðar.
Krakkarnir fá að henda
á starfsmennina spurn
ingum og hugmyndum
til að fá svörun og
skoða viðbrögðin. Við
dæm um ekki, skömm
um ekki og verðum
ekki reið þegar þau
segja okkur slæma
hluti heldur reynum að
vera til staðar til að hlusta og
leiðbeina og þess vegna koma
þau til okkar til að tala um erfiðu
hlutina sem þau treysta engum
öðrum fyrir. Þegar að þessum
punkti er komið byrjar í raun
starfsemin á bakvið grím una og
með þverfaglegu sam starfi við
aðrar stofnanir tengdar börnum
komast málin alltaf í réttan
farveg.
Höfundur er í námi í tóm
stunda og félagsmálafræði
við HÍ.
Starfsemi félagsmiðstöðva
John Friðrik Bond
Grétarsson
Eitt af afrekum ríkisstjórnar
Jóhönnu Sigurðardóttur og
Steingríms J. Sigfússonar var að
loka St. Jósefsspítala í Hafnar
firði. Ríkisstjórn sem vildi í upp
hafi kenna sig við
norræna velferð taldi
rétt að skella í lás og
aug lýsa húsnæðið til
sölu.
Arfleifð „norrænu
vel ferðarstjórnarinnar“,
sam steypu Sam fylk
ingar og Vinstri
grænna, er sú að
ís lenskt heilbrigðiskerfi
er í alvarlegri stöðu.
For gangsröðun ríkisstjórnarinnar
hefur ekki verið að tryggja heil
brigðisþjónustu.
Í kjölfar bankahrunsins haustið
2008 lögðum við sjálfstæðismenn
af stað með áætlanir sem miðuðu
að því að halda upp þjónustu
stiginu í heilbrigðismálum á
Íslandi. Við höfnuðum flötum
niðurskurði enda er hann ávísun
á mikla þjónustuskerðingu. Þess
í stað lögðum við upp
með skipu lagsbreyt
ing ar.
Í þessu samhengi er
vert að rifja upp hvað
Sjálf stæðis flokk urinn
vildi gera í málefnum
St. Jósefs spítala:
1. St. Jósefsspítali
verði sér hæfður í öldr
un arlækn ingum með
áherslu á hvíldar inn
lagnir. Þetta hefði þýtt að nú
væri St. Jósefs spítali í rekstri
með þjónustu sem kæmi Hafn
firð ingum afar vel. Nú er þessi
þjónusta veitt annars staðar á
höfðuborgarsvæðinu.
2. Verktökum á St. Jósefsspítala
stóð til boða að færa starfssemi
sína yfir á nýjar skurðstofur í
Reykjanesbæ. Það hefði þýtt að
nýjustu og bestu skurðstofur á
landinu væru nýttar en stæðu
ekki ónotaðar eins og nú er. Það
skal tekið fram að aðgerðir eru í
dag framkvæmdar á hinum ýmsu
skurðstofum í Reykjavík.
3. Göngudeild meltinga sjúk
dóma og lyflækningar St. Jósefs
spítala yrðu færðar í samstarfi
við LSH.Það hefur gengið eftir.
4. Meltingasjúkdómadeild yrði
flutt í breytt húsnæði LSH og
starfsmenn deildarinnar tækju
þátt í þeirri þjónustu. Það gekk
ekki eftir.
Því miður var ekki farið að
tillögum okkar sjálfstæðismanna
og þess vegna stendur St. Jósefs
spítali auður og yfirgefinn.
Hafnfirðingar eiga betra skilið.
Höfundur er alþingismaður.
St. Jósefsspítali
Guðlaugur Þór
Þórðarson
U N
bókhald ehf
Almenn
bókhaldsþjónusta
Stofnun félaga
Skattframtöl fyrir
einstaklinga og fyrirtæki
Allt á einum stað
UN Bókhald ehf • Reykjavíkurvegi 64, Hafnarfirði
568 5730 • unbokhald.is • unbokhald@unbokhald.is
Skokkhópur Hauka ásamt
fjöl mörgum samstarfsaðilum
efnir til eins af fyrstu utan vega
hlaupum sumarsins 2013.
Hlaup ið verður um uppland
Hafnar fjarðar annan í hvíta
sunnu, þann 20. maí. Mikil
vinna hefur verið lögð í hlaupið
og er markmiðið að eitt af
glæsilegustu utanvegarhlaupum
á Íslandi verði haldið í Hafnar
firði – en hlaupið er haldið í
fyrsta sinn nú í ár. Hlaupaleiðin
liggur um einstaka náttúruperlu
Hafnarfjarðar í nágrenni Hval
eyrarvatns og hefur hlauparinn
stórkostlegt útsýni allt frá því
að hann leggur af stað og þar til
hann kemur í mark.
Hlaupið er 17,5 km að lengd
og er lagt af stað frá Ásvöllum.
Hlaupið er um svæði skógræktar
við Ástjörn, Hvaleyrarvatn og
Stórhöfða. Þorri leiðarinnar
ligg ur um góða stíga. Tvær
drykkjar stöðvar verða á leiðinni
þar sem boðið verður upp á
íþróttadrykk.
Opnuð hefur verið heimasíða
fyrir hlaupið www.hvitasunnu
hlauphauka.com. Einnig má
finna hlaupið á facebook undir
„Utanvegarhlaup á hvíta
sunnu“. Eitt af markmiðum
að standenda hlaupsins er að út
úr hlaupinu fáist jákvæð kynn
ing á Hafnarfirði og því sem að
bæjarfélagið hefur upp á að
bjóða.
Skráning í hlaupið er hafin á
www.hlaup.is og er skrán
ingagjald 2.500 kr. fyrir þá sem
skrá sig fyrir 10. maí . Af þeim
þátttakendum sem skrá sig fyrir
10. maí verður einn dreginn út
af handahófi og mun sá vinna
sér inn hlaupaskó frá Brooks.
Allir þátttakendur hlaupsins
eiga kost á að vinna sér inn
út dráttarvinninga að hlaupi
loknu.
Utanvegahlaup um
upplandið um hvítasunnu
Orlofsnefnd Húsmæðra í Hafnarfirði
Auglýsir kynningar og skráningarfund í orlofsferðir á árinu 2013
Fundurinn verður haldinn í húsnæði Bandalags Kvenna í Hafnarfirði
í Dverg v/ Brekkugötu. Þriðjudaginn 30. apríl kl. 17.30
Farið verður í: ferð um Strandir 28.-30. júní
Siglingu um Eystrasaltið 11.-16. október
Rétt til þess að sækja um orlofsferð hefur sérhver kona sem veitir eða
hefur veitt heimili forstöðu án launagreiðslu fyrir það starf.
Orlofsnefndin
Áhyggjur fólks af afkomu
sinni, vonleysi þess um lausnir
frá Alþingi og skortur á trausti
bera þess vitni að stjórnvöld hafa
brugðist almenningi.
Bætum tjónið
Við í Dögun viljum ná
fram réttlæti. Þjóðin þarf
á aðstoð að halda eftir að
stjórnvöld létu hana bera
þungann af hruninu.
Bankar og fjármálastofn
anir verða að fjármagna
leiðréttingu stökkbreyttra
lána. Það er réttlætismál
sem verður að ná fram
að ganga ef við ætlum að
ná sátt í samfélaginu. Höfn um
sér íslensku leiðinni sem gengur
út á að heimilin borgi.
Burt með forréttindin
Úthlutum veiðileyfum á jafn
ræðisgrundvelli. Tryggjum
frjáls ar handfæraveiðar og setj
um allan fisk á markað. Fáum
meira líf á bryggjuna. Það verður
einnig að lækka tryggingagjald
sem er að sliga lítil og meðalstór
fyrirtæki.
Stöðvum nauðungarsölur
Á meðan óvissa ríkir um lög
mæti verðtryggðra lána þarf að
stöðva nauðungarsölur. Það eru
tvö dómsmál í gangi núna um
lögmæti verðtryggingar. Það
þarf flýtimeðferð á þeim. Að
meðal tali þrjár fjölskyldur á dag
eru að missa heimili sín. Eftir að
dómar eru fallnir þarf að fylgja
því eftir að fjármálastofnanir
virði dómsniðurstöður. Þróum í
kjölfarið óverðtryggt húsnæðis
lánakerfi með vaxtaþaki.
Aukum kaupmátt
Skattleysismörkin verður að
hækka. Það verður að lögfesta
lág marksframfærsluviðmið
þann ig að engin laun, lífeyrir eða
bætur séu lægri en sem þeim
nemur. Þeir sem eru með lægstu
tekjurnar eiga ekki að greiða
tekju skatt.
Peningarnir
Fjármunirnir eru til. Hvalreka
skattur á hagnað bankanna eftir
hrun, útgönguskattur á snjó
hengjuna, frestun byggingu
há skóla sjúkrahúss, breytt fjár
munastýring og forgangs röðun
hins opinbera eru aðeins nokkrar
af færum leiðum til fjármögnunar.
Viljinn er allt sem þarf.
Kjósum réttlæti
Það eiga allir rétt á mann sæm
andi lífi. Samfélagið er skapað af
okkur sjálfum. Það er okkar að
breyta því. Sýnum kjark og kjós
um xT.
Höfundar eru í efstu tveimur
sætum Dögunar.
Vont er þeirra ranglæti, verra þeirra réttlæti
Álfheiður
Eymarsdóttir
Margrét
Tryggvadóttir
Fjarðarpósturinn, bæjarblað Hafnfirðinga
vettvangur fyrir skoðanaskipti bæjarbúa • www.fjardarposturinn.is
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n