Fjarðarpósturinn


Fjarðarpósturinn - 24.04.2013, Page 8

Fjarðarpósturinn - 24.04.2013, Page 8
8 www.fjardarposturinn.is Miðvikudagur 24. apríl 2013 ÖGMUNDUR JÓNASSON 1. SÆTI SUÐVESTURKJÖRDÆMI Ég hef ávallt barist fyrir jöfnuði og hagsmunum heimila. Ég legg sérstaka áherslu á að auka veg beins lýðræðis. Berst fyrir náttúruvernd og að tryggja innlend yfirráð yfir íslensku landi. Ég vil auðlindir í þjóðareign. FYRIR FÓLKIÐ Í LANDINU JÖFNUÐUR, LÝÐRÆÐI OG NÁTTÚRUVERND Veitingastaðurinn Saffran var opnaður fyrir rúmri viku og á fimmtudaginn var kynntur nýr velgjörðarsjóður, Vilja styrk ur, sem veitingastaðurinn stendur að. Sjóðurinn er fyrir unga og efnilega afreksmenn í íþróttum. Fólk sem hefur sýnt góðan árangur en sem stefnir hærra. Úthlutunin nemur í heildina 5 milljónum króna í ár, en hægt verður sækja um í sjóðinn á hverju ári og fagráð tekur ákvörðun um hverjir njóti styrkjanna hvert ár. Það er von aðstandenda Viljastyrks að fleiri styðji við unga íþrótta­ menn, sem séu öðru ungu fólki mikilvæg fyrirmynd. Fimm íþróttamenn fengu út hlutað úr sjóðnum í nýjum veit­ ingastað Saffran við Bæjar hraun: Kári Steinn Karlsson, hlaup Ásdís Hjálmsdóttir, spjótkast Þorbjörg Ágústsdóttir, skylmingar Jón Margeir Sverrisson, sund Vignir Sverrisson, þríþraut. Góðar viðtökur Hafnfirðingurinn Oddur Smári Rafnsson er fram kvæmda stjóri Saffran og yfir kokkur. Hann sagðist hæst ánægð ur með við­ tökurnar í Hafnar firði og gaman að geta opnað stað í heima­ bænum. Serrano er ætlað að brúa bilið á milli hefðbundinni heilsu­ veitingastaða og skyndibitastaða og höfða til breiðs hóps fólks. 5 milljónum kr. veitt úr Viljastyrk Nýr velgjörðarsjóður Saffran Oddur Smári Rafnsson framkvæmdastjóri Saffran. F.v. Ásdís Hjálmsdóttir, Kári Steinn Karlsson, Vignir Sverrisson, Þorbjörg Ágústsdóttir og Jón Margeir Sverrisson. Styrkþegarnir brugðu á leik með borðtennisbolta. Þó Jón Margeir hafi sýnt góð tilþrif dugði það skammt því Ásdís sigraði glæsilega. Lj ós m .: G uð ni G ís la so n Lj ós m .: G uð ni G ís la so n Lj ós m .: G uð ni G ís la so n Á laugardaginn göngum við öll að kjörborðinu og fáum að marka stjórnmálastefnu næstu fjögurra ára. Ég bið þig um að styðja Samfylkinguna. Samfylkingin hefur setið í ríkisstjórn á þessu kjörtímabili. Okk ur tókst margt vel og annað hefðum við getað gert betur. Við hefð um getað átt betra samtal við þjóðina og haft hana betur í liði með okkur í erfiðum verkum. Við skiljum þau skilaboð sem okkur hafa verið send og viljum gjarnan læra af mistökum. En við horfðumst í augu við vandann sem við blasti og við tókum á honum. Með sama hætti horfumst við núna í augu við tækifærin sem bíða og viljum nýta þau. Tækifærin eru hvar­ vetna og sköpunarkrafti okkar eru lítil takmörk sett. Við þurfum að leyfa atvinnu­ lífinu að blómstra og tryggja að fyrirtæki geti greitt góð laun og fjölgað starfsfólki. Með því sköpum við ný verðmæti. Það er líka nauðsynlegt til að vinna á vanda heimilanna því einungis meiri verðmætasköpun getur gert okkur kleift að ná endum saman. Bitur reynsla seg­ ir okkur að skuldir hverfi seint, þótt allra handa töfrabrögðum sé beitt. Eina örugga leiðin til að vinna á þeim er með auknum tekjum. Við verðum líka að treysta þjóð inni að kjósa um aðild að Evrópu­ sam bandinu. Annað væri ábyrgðar leysi. Við eig um ekki að loka leiðum að óþörfu og verðum að halda öllum dyrum opn um sem geta gert okkur auðveldara að halda í okkar besta fólk og fyrirtæki. Jafnaðarmenn og félags­ hyggjufólk veit að atkvæði þeirra lifir, kjósi það Samfylk inguna. Áhugafólk um jafnrétti, um ­ hverfisvernd, frjálsa sam keppni og opið hagkerfi veit að Sam­ fylk ingin mun áfram verða höfuð stoð fjölbreytni og samtals á forsendum almannahagsmuna. Við þurfum að tryggja jafnaðar­ mönnum öfluga rödd á næsta kjörtímabili. Það er mikið í húfi. Sjaldan hefur jafn mikill þrýst­ ingur á að málum verði hagað í þágu sérhagsmuna afmarkaðra sam félagshópa. Jafnaðarmenn hafa alltaf staðið gegn slíku og barist fyrir almannahagsmunum. Við munum gera það ótrauð áfram, en til þess þurfum við afl. Höfundur er formaður Samfylkingarinnar. Nýtum tækifærin! Árni Páll Árnason Hefur þú kíkt á www.facebook.com/fjardarposturinn?

x

Fjarðarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fjarðarpósturinn
https://timarit.is/publication/945

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.