Fjarðarpósturinn - 24.04.2013, Page 10
10 www.fjardarposturinn.is Miðvikudagur 24. apríl 2013
Fjarðarpósturinn
Vettvangur fyrir skoðanaskipti í Hafnarfirði
Smelltu á LIKE á www.facebook.com/fjardarposturinn
Lýður Árnason
Læknir og fyrrum
stjórnlagaráðsfulltrúi
Ástrós Signýjardóttir
Stjórnmálafræðingur og
fyrrum stjórnlagaráðsfulltrúi
www.xlvaktin.is
Viltu flokkana sem skópu hrunið aftur til starfa?
Viltu hafa stjórn fiskveiða áfram í höndum LÍU?
Viltu samfélag sem rekið er frá degi til dags?
Viltu loforðaflaum frekar en það sem sannara reynist?
Þá er Fjórflokkurinn málið.
Annars skaltu hugsa til okkar.
1 2
frambjóðendur í suðvesturkjördæmi
Heimilin eru grund vallar
eining hagkerfisins, undirstaða
þess og drifkraftur. Þung skulda
staða og erfið greiðslubyrði lána
samhliða skattahækkunum,
aukn um opinberum álögum og
hækkandi verðlagi hafa skert
ráðstöfunartekjur heimila enda
liggur sú staðreynd fyr
ir að um það bil helm
ingur heimila á Íslandi
á erfitt með að ná
endum saman. Stjórn
málaumræðan hverfist
því æ meir um þessa
erf iðu stöðu heimil
anna. Við í Framsókn
ar flokknum höfum tal
að skýrt og afgerandi
um það hvað við viljum
gera og sett það í for gang að
leysa þennan vanda. Forgangs
mál in eru skuldaleið rétting,
af nám verðtryggingar og efling
atvinnlífs.
Við höfum sagt að ekkert
réttlæti það að heimilin sitji ein
og óstudd uppi með þessar
afleiðingar efnahagshrunsins og
því þarf að leiðrétta stökkbreytt
húsnæðislán. Ekki er lengur deilt
um að svigrúm er til staðar í
formi afskrifta eða skattlagningar
á eignir erlendra kröfuhafa bank
anna. Þetta svigrúm viljum við
nýta til handa heimilunum.
Við viljum afnema verðtrygg
ingu á neytendalánum og tryggja
lántakendum um leið möguleika
á að breyta yfir í óverðtryggð
lán. Þar verður að útfæra nýtt
húsnæðislánakerfi þar sem
kostn aður er viðráð anlegur og
þekktur og áhættunni jafnað á
milli lántaka og lán
veit anda.
Hagkerfið er hringrás
verð mætasköpunar,
hring rás framleiðslu og
pen inga. Fyrirtækin eru
hin grunnefna hagsein
ingin, stoð atvinnu lífs
ins. Því viljum við
Fram sóknarmenn efla
atvinnulífið og gera
það með einföldun
reglu verks og lækkun skatta og
auka þannig framleiðni og hvata
til nýsköpunar og manna ráðn
inga.
Þannig eykst ráðstöfunargeta
heimilanna og fjárfestingargeta
fyrirtækjanna. Þannig virkar
efna hagshringrásin sem forsenda
vaxtar og velferðar.
Þannig virkar Framsókn fyrir
heimilin og atvinnulífið.
Höfundur er fjölskyldufaðir
og hagfræðingur skipar 2.
sæt ið á lista Framsóknar
flokks ins.
Framsókn fyrir heimilin!
Willum Þór
Þórsson
Horfurnar á Íslandi voru svartar
vorið 2009. Nú er ástandið gjör
breytt. Á þessu tímabili hefur verð
bólga farið úr 18% niður í 4%,
fjár lagahalli úr 230 milljörðum
niður í 3, vöruskiptajöfnuður hefur
ver ið hagstæður og
gjald eyristekjur hafa
aldrei verið hærri. En það
sem mestu varðar: þegar
þessi ríkisstjórn tók við
stefndi atvinnu leysi í
20%, er nú undir 5%.
Allt ofantalið gæti eitt
og sér réttlæt fyrir sögn
greinarinnar, en ekki er
allt upp talið. Skatt kerfið
hefur verið notað til að
auka jöfnuð á Íslandi. Sjálfbær
þróun sett í öndvegi. Mörg
mikilvæg mannréttindamál hafa
litið dagsins ljós, t.d. ný hjú
skaparlög fyrir alla og viður kenn
ing Palestínu. Jafnvel sjálft Geir
finnsmálið hefur í fyrsta sinn verið
tekið til gagnrýninnar skoð unar af
stjórnvöldum.
Og jafnvel þó að fólk sé ekki sátt
við árangurinn er hann samt stað
reynd. Þessi ríkisstjórn hefur gert
meira fyrir skulduga húsnæðis
eigendur en nokkur önnur ríkis
stjórn síðan 1979 (ríkisstjórn Sjálf
stæðis flokksins og Framsóknar
flokksins gerði nákvæmlega ekki
neitt við mjög svipaðar aðstæður).
En við ætlum okkur að koma
fleiri verkum í gegn, fá um við til
þess tæki færi. VG ætlar að koma í
gegn nýjum lögum um námslán
sem boða nýja hugsun í lánamálum
stú denta og svarar áratuga gamalli
kröfu um að breyta hluta af
lánunum í styrk. VG ætlar sér að
nota afgang sem skapast hefur í
ríkisfjármálum vegna aga við
stjórn efnahagsmála til að stórefla
á ný velferðarkerfið, menntakerfið
og heilbrigðiskerfið. Það
eru ekki innihaldslaus
loforð sem gagnast
fá um. Þvert á móti.
En árangurinn sem
hef ur náðst er ekki sjálf
sagður. Hvað hefði gerst
ef annað stjórnar mynstur
hefði verið hér seinustu
fjögur ár? Þá hefði verið
gengið hart fram í niður
skurði mennta og heil
brigðis kerfisins og líklega verður
það gert á næsta kjörtímabili ef
stjórnarandstaðan verður við völd.
Þá hefði fleiri ríkis stofnunum verið
lokað og framlög til menn ingarmála
skorin enn frekar niður.
En þrátt fyrir eftirtektarverðan
árangur, hafa ýmsir keppst við að
spá hér nýju hruni og kollsteypum.
Í þeim háværa hópi hafa formenn
stjórnarandstöðuflokkanna verið.
Strax í apríl 2009 spáði Sigmundur
Davíð Gunnlaugsson nýju alls
herjarhruni; „Niðurstaðan er sú að
matið á íslensku bönkunum og
stöðu íslenskra fyrirtækja er það að
hér sé að hefjast fullkomið kerfis
hrun. Allsherjarhrun íslensks efna
hagslífs,“ sagði hann þá, orðrétt.
En hvað varð af því? Hver var
innistæðan fyrir dómsdagsloforði
Sigmundar?
Ríkisstjórnin hefur nefnilega
staðið sig mjög vel við mjög erfið
ar aðstæður. Við betri aðstæður
hefði hún staðið sig enn betur:
fyrir velferðina, náttúruna,
mennta kerfið og heilbrigðiskerfið.
Þær aðstæður eru nú að skapast og
kjós endur þurfa að skoða stað
reyndirnar. Samfélaginu miðar nú
loks í rétta átt og þeim sem lögðu
þann nauðsynlega samfélagsgrunn
er best treystandi til að reisa bygg
inguna líka. Er það ekki?
Höfundur er á lista VG.
Velferðarstjórn virkar
Rósa Björk
Brynjólfsdóttir
Merkjum öll
bílastæði
Gerum tilboð
etmerking@simnet.is
sími 862 3002
Kaffisetur
Samfylkingarinnar 60+
í Hafnarfirði
Opið hús alla
fimmtudaga kl. 10-12
Strandgötu 43
Líflegar umræður um þjóðmál og
allt á milli himins og jarðar.
Sjáumst.
Samfylkingin.