Fjarðarpósturinn - 24.04.2013, Blaðsíða 12
12 www.fjardarposturinn.is Miðvikudagur 24. apríl 2013
Heilsa og þekking eru risastór
mál, sem þó eru alltof sjaldan sett
á oddinn í stjórnmála um ræðu.
Í ljósi þessa er rétt að biðjast
afsökunar á að af greiða tvö risa
vaxin mál í 300 orða grein, en
plássið er þröngt og tím
inn stuttur, svo ég læt
slag standa. Bendi á
bjort framtid.is og býð
fram beint samtal ef
nán ari upplýsinga er
óskað.
Heilbrigði
Björt framtíð vill
jafn an aðgang lands
manna að heilbrigðis
þjónustu og efla til
muna nærþjónustu. Annars veg
ar í heilsugæslunni með því m.a.
að fleiri heilbrigðisstéttir eigi þar
fastan sess. Hins vegar með
öruggri sjúkrahúsþjónustu, ann
arri en þeirrar sérhæfðu sem
sinnt er á Landspítala, í heima
héraði.
Í öllum tegundum heilbrigðis
þjónustu þarf hlutur forvarna að
aukast. Því fyrr sem gripið er inn,
þeim mun minna þarf að reiða
sig á hátækni og neyðarþjónustu.
Í þessu samhengi er forvarnar
hug takið víðtækt, t.d. hvað varð
ar undirbúning fyrir valkvæðar
skurðaðgerðir. Góður undirbún
ingur eykur líkurnar á góðum og
hröðum bata og styttir sjúkra
húslegu. Efla þarf sam ræmingu
innan heilbrigðis geir ans, „kerf
in“ þurfa að tala saman þannig
að sjúklingar sitji ekki uppi með
vandann við að halda utan um
eigin mál.
Menntun
Að koma börnum til
manns er kjarna starf
semi þjóðfélagsins.
Fjöl breytni og val
mögu leikar á öllum
sviðum mennta kerfis
ins með vellíðan og
náms ánægju að leiðar
ljósi, eru mikilvæg frá
leik skóla og uppúr.
Virði ngu fyrir störfum
kennara þarf að auka og launa
kjör að bæta, þetta fólk geymir
fjöregg okkar allra.
Brottfall úr framhaldsskólum
er að verða klisja, lögum það
áður en þolinmæði fyrir þeirri
umræðu hverfur.
Fjöldi námsára að fyrstu há
skóla gráðu er meiri hér en í
viðmiðunarlöndum, hann þolir
endurskoðun.
Þekking er lykill að framþróun
í atvinnulífinu, sérstaklega m.t.t.
starfa sem ekki byggja á aukinni
nýtingu náttúruauðlinda.
Framtíðin er löng, höfum hana
bjarta.
Höfundur skipar 3. sæti á
lista Bjartrar framtíðar.
Heilbrigði og menntun
– grundvöllur Bjartrar framtíðar
Guðlaug
Kristjánsdóttir
Við Vinstri græn vildum gjarna
að svigrúm væri til þess að lækka
skatta og útilokum þann kost alls
ekki skapist að stæður til þess. Þær
aðstæður eru bara ekki uppi nú
þótt Sjálf stæðisflokkurinn og
fleiri vilji telja okkur trú um annað
í vin sældabaráttunni fyrir kosn
ingar. Talsmenn þess að
lækka skatta á þá sem
hæstar hafa tekj urnar
gæta þess auð vitað vel
að gera okk ur enga
grein fyrir því hvar á að
skera niður til að mæta
tekju tapi ríkissjóðs.
Enda má nú ekki ganga
lengra í niður skurði í
velferðarkerfinu. Þvert
á móti er mikilvægt að
við not um skattkerfið áfram til
þess að jafna lífskjör og hefja nýja
sókn í velferðarmálum.
Ríkisstjórn Vinstri grænna og
Samfylkingarinnar tókst að ná
tökum á ríkisfjármálum með því
að beita blandaðri leið skatta
hækkana og niðurskurðar. Um
leið breyttum við skatt kerfinu
þannig að það þjónar mark mið
um okkar um jöfnun lífskjara.
Við vörðum velferðar kerfið eftir
megni en þó reyndist óhjá
kvæmilegt að draga úr kostn aði
þar eins og annars staðar.
En nú er sem betur fer útlit
fyrir að við getum snúið vörn í
sókn. Árangur ríkisstjórnarinnar
í efnahagsmálum gefur okkur
færi á að sækja fram í heil brigð
ismálum, menntun og velferð.
Það er kjarninn í stefnu Vinstri
grænna.
Við erum reyndar komin í
sókn nú þegar. Til dæmis með
stór auknu framlagi til tækja
kaupa á Landspítalanum á þessu
ári. Það verður forgangs verkefni
okkar á næsta kjör tímabili að
bæta Landspítalanum og öðrum
heilbrigðisstofnunum skaðann
sem þessar grunnstoðir
sam félags ins hafa
orðið fyr ir. Við þurfum
líka að efla heilsu
gæsluna og tryggja
jafn ara og betra
að gengi að þjón ustu
tann lækna og sál fræð
inga.
Við sjáum fram á
svig rúm. Við viljum
nota það til þess að efla
heilbrigðiskerfið, halda áfram að
greiða niður skuldir ríkis sjóðs og
setja málefni aldraðra, öryrkja,
barna fjöl skyldna, láglaunafólks
og náms manna í forgang.
Ég geri mér grein fyrir að í
hug um þeirra sem nú fljóta með
loforðaflaumi hrunflokkanna um
skattalækkanir og lausn á hvers
manns skuldavanda hljóta þessi
áform okkar Vinstri grænna að
stappa nærri hreinum leið indum.
En það er bara í eðli okkar vinstri
manna að taka ábyrga afstöðu
þegar almanna hagsmunir eru í
húfi, hvort sem litið er til
efnahagsmála, vel ferðar eða
umhverfismála. Við getum ekki
annað. Enda hefur það jafnan
reynst best þegar til lengri tíma
er litið. XV!
Höfundur er í 5. sæti á
Vlistanum.
Sækjum fram í velferðarmálum
Garðar H.
Guðjónsson Hafnfirðingar kveðja veturinn í dag, síðasta vetrardag með því
að 7000 manns, nemendur og
starfsfólk í leik, grunn og
framhaldsskólum bæjarins
sam einast í hreyfingu og hittast
í heilsueflandi verkefnum.
Bænum er skipt niður í sjö
svæði þar sem nemendur hittast
og taka þátt í sameiginlegri
dagskrá kl. 10.30 til 11 þar sem
söngur og hreyfing eru í
aðalhlutverki. Þessi svæði eru:
Áslandsskóli, Hraunvallaskóli,
Hvaleyrarskóli, Lækjarskóli,
Setbergsskóli, Víðistaðaskóli
(Víðistaðatún og Engidalur) og
Öldutúnsskóli. Á hverjum stað
verða 5001000 nemendur auk
starfsfólks.
Áður en nemendur og starfs
fólk skólanna hittast á svæð
unum átta munu þeir fara í
gönguferð um nágrenni skól
anna og dagurinn í heild verður
tileinkaður hreyfingu í skólum
bæjarins.
Hafnarfjörður á iði er heiti
verkefnisins og tilgangur þess
er að minna á miklilvægi
hreyfingar á hverjum degi fyrir
heilbrigt líf. Verkefnið er liður í
heilsueflingu í skólastarfi þar
sem sumir leik, grunn og
framhaldsskólar í Hafnarfirði
eru formlegir þátttakendur í
lýðheilsueflandi verkefnum á
vegum embættis landlæknis.
7000 Hafnfirðingar á iði
Nemendur og starfsfólk skólanna syngja og dansa í dag
Góð þátttaka var í verkefninu á síðasta ári.
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n
Vilja tryggja aðstæður eldra fólks
Stjórn FEBH vill brýna bæjar
yfirvöld og ríkisvald á því að
tryggja að aðstæður eldra fólks í
Hafnarfirði verði ekki lakari en á
hjúkrunarheimilum í nágranna
sveitarfélögunum s.s. Kópavogi,
Garðabæ og Mosfellsbæ. Það
kem ur fram í samþykkt sem
stjórn in hefur sent frá sér.
Í nýjum stöðlum er gert ráð
fyrir að hver vistmaður á hjúkr
unarheimili hafi rúmlega 30 m².
Stjórn in hvetur til þess að
byggð verði ný álma við Sólvang
með 30 rýmum og leggur til að
núverandi húsnæði verði notað
fyrir sjúklinga sem eru að jafna
sig eftir sjúkrahúsdvöl, hvíldar
innlagnir, dagvistun og fyrir mið
stöð öldrunarþjónustu. Jafnframt
bend ir stjórnin á að stoðdeildir eru
þar til staðar eins og eldhús,
þvotta hús og fleira sem nýtast
mun vel við stækkun Sól vangs.
Auk þess hvetur stjórnin til þess
að hafist verði sem fyrst handa við
byggingu hjúkr unar heimilis við
Hádegisskarð með rými fyrir 80
vistmenn til þess að mæta vaxandi
þörf fyrir hjúkr unar rými vegna
fjölgunar eldri borgara í bænum
og á landsvísu.
Þá vill stjórnin vekja athygli á
högum þeirra sem heima búa.
Með því að auka og efla heima
þjónustu og heimahjúkrun gerir
það öldruðum mögulegt að búa
lengur heima.
Þrátt fyrir einstakt met í fjölda
fram boða þetta árið þá hefur póli
tísk umræða í fjölmiðlum einblínt
mjög á eitt mál, skuldavanda heim
ilanna. Stærð og alvarleiki þess
vanda er engum vafa undirorpinn
en fyrirferð málaflokksins í fjöl
miðlum endurspeglar ef til vill
aldur og stöðu fjölmiðla
fólks sem stýrir umræð
unni hér á landi.
Þetta er í fyrsta skipti
sem ég er í framboði fyr
ir Sjálfstæðisflokkinn og
það hefur verið alveg
frá bær lífsreynsla. Við
frambjóðendurnir höfum
heimsótt skóla, fyrirtæki
og stofnanir í nafni
flokks ins ásamt því að
baka pönnukökur í verslunar mið
stöðv um og hringja í kjósendur.
Ein hvern veginn hafði ég gefið
mér að það yrði erfiðara að nálgast
fólk og að orðræðan gæti orðið
leið inleg. En reynslan hefur hins
veg ar verið ótrúlega ánægjuleg,
kjós endur eru almennt tilbúnir að
deila reynslusögum sínum til að
benda á það sem betur mætti fara í
sam félaginu og kjósendur Sjálf
stæðis flokksins jafnt sem annarra
flokka hafa tekið okkur opnum
örm um.
Ég hef reyndar á tilfinningunni
að með fjölgun framboða og nýj
um kynslóðum hafi orðræðan
breyst til hins betra og að kjósendur
hafi almennt meiri skilning á mis
munandi afstöðu fólks. Þessu til
stuðnings vil ég nefna að ungt fólk
hefur verið mjög opinskátt um
skoðanir sínar og hvað það hefur
kosið á meðan algengt er að eldri
borg arar bregði upp skot heldum
pókersvip og seg ist aldrei hafa
gefið nokkrum manni nokkuð upp
um skoðanir sínar.
Menntun
Til að sporna gegn
brottfalli á fram halds
skólastigi viljum við
leita leiða til að stytta
meðal náms tíma til stú
dentsprófs. Kynna þarf
nem endum í grunn
skólum ólíka starfs og
námskosti mun fyrr en
al mennt er gert og gæta
að því að ekki halli á iðn, verk, og
starfs nám. Styrkja þarf stoðir
grunn skólans til þess að allir nem
endur komi vel undirbúnir til
frekara náms. Við teljum einnig
mikil vægt að gefa nemendum
tæki færi til að útskrifast úr fram
haldsskólanámi með fjölbreyttari
hætti en nú er gert, til dæmis með
auk inni stig skiptingu náms þar
sem ákveðnum áfanga er náð í lok
hvers stigs. Við teljum að það geti
haft hvetjandi áhrif og geri einnig
þeim sem horfið hafa frá námi
auðveldara um vik að snúa aftur.
Endurskoða þarf lánakerfi og
úthlutunarreglur LÍN. Hvetja þarf
til þess að nemendur ljúki námi á
tilskyldum tíma. Líta þarf til þess
hvort viðmiðunarmörk tekjuteng
ing ar séu of lág, ekki síst vegna
hækkandi skólagjalda og breyttrar
stöðu í þjóðfélaginu, meðal annars
hjá þeim sem lent hafa í greiðslu
erfiðleikum eða gjaldþroti. Við telj
um einnig mikilvægt að þeir sem
eru að endurgreiða námslán sitji
við sama borð hvað endur greiðsl ur
varðar en mikill munur er á
greiðslu byrði eftir því hvenær
lánin voru tekin.
Húsnæði
Sjálfstæðisflokkurinn vill auð
velda ungu fólki fyrstu hús næðis
kaup in með því að veita þeim sem
eru að spara fyrir íbúð allt að
40.000 kr. skattaafslátt á mánuði af
því sem lagt er fyrir. Þetta fyrir
komulag mun hjálpa kaupendum
til að eignast stærri hlut í sinni
fyrstu íbúð og þannig draga úr þörf
fyrir há lán.
Nýtum tækifærin
Hér er aðeins tæpt á örfáum
málum og því má ekki gleyma að
þjóðarsátt um stöðugleika til að
auka lífsgæði, tryggja öryggi og
atvinnu er grundvöllur nýs
framfaraskeiðs. Nýta þarf hvert
tækifæri og hafa kjark til nauð
synlegra aðgerða. Ég treysti stefnu
og forystu Sjálfstæðisflokksins
undir stjórn Bjarna Benediktssonar
til að sækja fram með ábyrgum
hætti og með umhyggju fyrir
íslensku þjóðinni að leiðarljósi.
Bryndís er frambjóðandi
Sjálfstæðisflokksins.
Ábyrg stefna fyrir ungt fólk
Bryndís
Loftsdóttir
..eina bæjarblaðið í Hafnarfirði
Hafnfirska
fréttablaðið