Fjarðarpósturinn - 24.04.2013, Qupperneq 18
18 www.fjardarposturinn.is Miðvikudagur 24. apríl 2013
Sjálfstæðir atvinnurekendur sem
reka lítil og meðalstór fyrirtæki,
einstaklingar sem leggja allt sitt
undir til að skapa sér og sínum
lífsviðurværi, þeir sem koma auga
á tækifærin til að framleiða nýja
vöru eða bjóða nýja
þjón ustu, þá á Sjálfstæði
flokkurinn að styðja til
dáða. Hvers vegna?
Vegna þess að þar liggur
krafturinn til framfara,
kraft urinn sem skapar
jarð veg fyrir ný störf og
auk in lífsgæði Þess
vegna þarf að hlúa að
þessum hópi með því að
ein falda skattkerfið,
lækka skatta og álögur og draga úr
flóknu regluverki. Það er nauð
synlegt fyrir þessi fyrirtæki sem
önnur að hér að verði stöðugleiki í
allri umgjörð fyrirtækja og settar
verði skýrar leikreglur til langrar
framtíðar.
Þá munu litlu og meðalstóru
fyrir tæki sjálfstæðu atvinnu rek
andanna verða í stakk búin til að
fjár festa frekar, ráða til sín fleiri
starfs menn, borga þeim betri laun
og veita þeim tækifæri til að taka
þátt í og njóta velmegunar. Sam
hliða munu tekjur ríkissjóðs aukast
vegna þess að fleiri fá vinnu, borga
skatta og þeim fækkar sem þurfa
að vera á atvinnuleysisbótum. Í
litlum og meðalstórum fyrir tækj
um liggja tækifærin, þau þarf að
nýta og Sjálfstæðis
flokk urinn mun stuðla
að því.
Verkefnin framundan
Það er flestum ljóst að
verkefnin framundan
eru mörg og viðamikil
en áherslu verður að
leggja á lækkun skulda
ríkis sjóðs, fram hjá því
getur enginn stjórn mála
flokkur litið. Við verðum
að mynda samstöðu og hafa skýra
sýn á nýjar leiðir í efnahagsmálum
þar sem megin áhersla verður á
stöðugleika og vöxt.
Við þurfum að setja okkur sam
eiginlega markmið um að loka
fjár lagagatinu, að bæta umhverfi
at vinnulífsins, skapa því umhverfi
sem leiðir af sér kjarabætur til
launa þega, kjarabætur sem haldast
í hendur við verðmætasköpun í
landinu þannig munum við komast
áfram.
Öflugt atvinnulíf er forsenda
velferðar og menntunar og for
senda þess að við getum tekið á
fjár hags – og lánavanda heimila í
land inu. Við vitum mæta vel að
hag ur heimilanna byggir á atvinnu
og öryggi, hvorki skuldavandanum
né hinum félagslega vanda verður
eytt nema fólk hafi vinnu, hafi
tekj ur til að greiða niður lánin og
ráðstöfunartekjur til að leyfa sér og
börnum sínum að vera virkir þátt
takendur í samfélaginu. Sjálfstæð
is flokkurinn ætlar að taka þátt í
þeirri vegferð með fólkinu í land
inu.
Leiðir að markmiðum
Það eru ýmsar leiðir til þess að
ná framan greindum markmiðum
en ég vil búa í samfélagi þar sem
ein staklingnum er treyst og honum
tryggt frelsi til athafna. Ég vil búa
í samfélagi þar sem atvinnulífinu
eru skapaðar aðstæður til að eflast
og þar sem fjölskyldan er horn
steinn samfélagsins. Þess vegna er
það er bjargföst skoðun mín að
grunn gildi sjálfstæðisstefnunnar
eigi nú sem aldrei fyrr brýnt erindi
við fólkið í landinu. Ef þú ert mér
sammála þá átt þú samleið með
Sjálf stæðisflokknum í kosn ing
unum þann 27. apríl næstkomandi.
Höfundur er þingmaður.
Sjálfstæði og kraftur
Ragnheiður
Ríkharðsdóttir
Menningar og ferða mála
nefnd Hafnarfjarðarbæjar af
henti sl. fimmtudag í Hafnar
borg styrki til lista og menn
ingarstarfsemi. Veittir voru 18
styrkir en alls voru styrk
umsóknirnar 42 og sótt var um
samtals 21,9 millj. kr.
Styrkfjárhæð var samtals
4.875.000 kr. Styrki hlutu:
Bókasafn Hafnarfjarðar:
500.000. vegna menningar
viðburða fyrir börn, erinda
raða og jólabókakynningar.
Halldór Árni Sveinsson:
500.000. til þess að ljúka
við heimildarmynd um
Bjarta daga.
Sveinssafn: 500.000. til
hönnunar og uppsetningu
sýningar.
Björg Magnúsdóttir:
450.000. vegna skrifa og
uppsetningar á örsögum í
Hafnarfirði.
Hollvinafélag Hellisgerði:
400.000. vegna dagskrár á
90 ára afmæli Hellisgerði.
Menningarfélag Hafnar
fjarð ar: 350.000. vegna
dagskrár fyr ir ungt fólk á
Björtum dög um.
Smjörkúpan – hópur
áhugaleikritaskálda:
350.000. vegna einleiks um
Rannveigu Sívertsen.
Fjarðarpósturinn: 300.000.
vegna yfirfærslu á eldri
eintökum á stafrænt form á
timarit.is.
Ólafur Beinteinsson:
275.000. vegna verkefni til
heiðurs Huldu Runólfsdóttur.
Bylgja Dís Gunnarsdóttir:
250.000. vegna tónleika í
Hafnarfirði.
Kristbergur Ó. Pétursson:
250.000. vegna sýningar á
Listasafni Reykjanesbæjar.
Soffía Sæmundsdóttir:
250.000. vegna listasmiðju
á Björtum dögum og
sumarnámskeiðs.
Saxófónkvartettinn: 200.000.
vegna tónleikahalds á
Björtum dögum,
Lúðrasveit Hafnarfjarðar:
150.000. m.a. vegna
nótnakaupa.
Björn Traustason: 100.000.
vegna listasýningar á
Björtum dögum.
Gaflarakórinn: 100.000.
rekstrarstyrkur.
Karlakór eldri Þrasta:
100.000. rekstrarstyrkur.
Hulda H. Sig: 50.000. vegna
listasýningar heima á palli á
Björtum dögum.
4,9 milljónir kr. í styrki til menningarmála
Styrkþegar menningar og ferðamálanefndar 2013 við afhendinguna sl. fimmtudag.
Hafsteinn Þráinsson
Lj
ós
m
.:
Fj
ar
ða
rp
ós
tu
rin
n
Næstkomandi laugardag göng
um við Íslendingar til kosninga,
óhætt er að segja að aðstæður eru
nú um margt óvenjulegar. Ekki
ein ungis hafa undanfarin ár verið
mörgum sársaukafull og erfið,
held ur stöndum við
einn ig frammi fyrir
stór um og mikil væg um
ákvörðunum um fram
tíð okkar sem þjóðar,
sjaldan hefur verið
mikil vægara að taka
skyn samlega ákvörð un
í kjörklef an um. Við
skul um muna að góðir
hlutir gerast hægt, –
eiga að gerast hægt,
ann ars förum við of hratt í beygj
urnar, hefðum betur haft það í
huga fyrir hrun.
Stundum er gripið til þess þeg
ar skammtímaminnið bregst að
tala um gullfiskaminni, – með
fullri virðingu fyrir gullfiskum,
ég hef þá trú að kjósendur í vor
muni ekki þjást af gullfiskaminni
þegar á hólminn er komið, heldur
þvert á móti, verði þeim í
FERSKU MINNI hvað átti sér
stað árin (áratugina) fyrir hrun,
hverjir þá stjórnuðu og með hvað
að leiðarljósi. Allavega ekki sér
stök áhersla á velferðarmálin og
hag hins venjulega borgara.
Vissulega væri freistandi að
krossa við nýjan valkost, ferskar
hugmyndir, ný andlit eða hvað ?
Reglulega í gegnum tíðina hafa
sprottið upp lítil framboð til þings
eða bæjar og sveitarstjórna,
sammerkt með þeim allflestum er
að þau eru nú gleymd, fáir eða
enginn man fyrir hvað
þau stóðu, sum þeirra
voru drifin áfram að
hugsjónafólki með
áherslur á afmörkuðum
málefnum, en í seinni
tíð þó frekar raunin að í
þeim væru einstaklingar
sem erfitt eiga með að
vinna með öðrum,
klofningsframboð sem
halda áfram að klofna
þegar og ef þau komast á þing, og
deyja svo drottni sínum.
Verðbólga, laun, kaupmáttur,
at vinnuleysi og hagvöxtur, allt
eru þetta hugtök sem eiga þátt í
að móta lífsgæði okkar, ég sagði
fyrir viku hér í Fjarðarpóstinum
að Samfylkingin legði verk sín í
dóm kjósenda, ég treysti þeim til
að mynda sér sjálfstæða skoðun á
hvernig til hefur tekist, þrátt fyrir
neikvæða forgjöf og talverðan
mótbyr, og velja samkvæmt því.
Kosningarétturinn er eitt það
dýrmætasta sem við eigum, för
um því vel með atkvæðin okkar.
Höfundur er formaður
Samfylkingarinnar í
Hafnarfirði.
Gef mér von!
Helena Mjöll
Jóhannsdóttir
Ársfundur
Vinafélags Krýsuvíkurkirkju
Vinafélag Krýsuvíkurkirkju heldur ársfund
fimmtudagskvöldið 2. maí 2013 kl. 20.00
í Hásölum Strandbergs, safnaðarheimilis
Hafnarfjarðarkirkju við Strandgötu.
Á fundinum verða venjubundin ársfundarstörf.
Katrín Gunnarsdóttir fornleifafræðingur hjá
Byggðasafni Hafnarfjarðar kynnir helstu niðurstöður
frumrannsóknar sem gerð var í grunni Krýsuvíkurkirkju
í október 2012.
Hrafnkell Marinósson deildarstjóri bygginga- og
mannvirkjagreina í Iðnskólanum í Hafnarfirði fjallar um
framvindu vinnunnar við nýja Krýsuvíkurkirkju.
Fundurinn er opinn öllum sem hafa áhuga á að
kynna sér starfsemi Vinafélags Krýsuvíkurkirkju.
Stjórn Vinafélags Krýsuvíkurkirkju
Almenn bókhaldsþjónusta – Stofnun félaga – Ársreikningar – Skattframtöl
Bæjarhrauni 2, Hafnarfirði – www.3skref.is – 3skref@3skref.is
Þín velgengni - okkar hagur