Fjarðarpósturinn


Fjarðarpósturinn - 24.04.2013, Síða 22

Fjarðarpósturinn - 24.04.2013, Síða 22
22 www.fjardarposturinn.is Miðvikudagur 24. apríl 2013 Árið 1996 hóf æskulýðs­ og tómstundaráð að gera kannanir á aðgengi unglinga að tóbaki. Tilefnið var augljóst því þrátt fyrir lög um bann við sölu tóbaks til ungl inga undir 16 ára aldri (síðar 18 ára með breyttum lög um síðla árs 2003) áttu börn og ungmenni af ar auðvelt með að kaupa tóbak. Við okkur sem þá störfuðu hjá ÆTH höfðu margir for­ eldrar samband og undr­ uðust þetta. Sömu við­ horf komu fram á fund­ um með foreldrum í bæn um. Í viðtölum við ung menn in kom fram að það var ekki nokk urt einasta mál að kaup tóbak að þeirra mati. Okkar varð ljóst að með einhverjum hætti þyrftum við að kanna raunverulegt ástand og bregðast við því en þessi mál voru í al gerum ólestri. Fyrstu hugmyndir okkar voru að gera formlega könn un meðal kaup­ manna um sölu tó baks til ung­ menna. Eftir eitt eða tvö könnunar­ viðtöl varð okkur al gerlega ljóst að slík aðferð væri með öllu ónothæf. Okkar varð í upphafi ljóst að svona mál vinnast á almennum viðhorf­ um fremur en með kærum og dómsmálum. Við sem unnum að forvarna mál­ um í bæjarfélaginu á þessum tíma vissum að foreldrasamfélagið vildi og gerði beinlínis kröfur um að tó baks sölubannið yrði virt. Í þessu ljósi er ákveðið að kanna umfang tó baksölu með því að senda ungl­ ing/unglinga með formlegu sam­ þykki forráðamanna þess ásamt starfs mönnum ÆTH og freista þess að kaupa tóbak og fá þar með sannanlega vitneskju um ástandið. Ungl ingarnir tóku aldrei þátt nema í einni könnun, viðkomandi ung­ menni komu að engu öðru leyti ná lægt þessum könnunum og auk þess voru ungmennin oftast ekki bú sett í bæjar­ félaginu Niðurstöður kannana í upphafi voru mikil von brigði, 94% verslana seldi ungmenn­ unum tó bak í þeirri fyrstu og 96% verslana í þeirri næstu (1996). Eigandi Dalsnestis hef ur farið mikinn í bar­ áttu gegn því að umfang þessa vanda sé kannaður með þeim hætti sem gert hefur verið hér í bæ og reyndar víðar og í þeim efnum talað ótt og títt um tálbeitur og vitnað til merkra lög manna um ólögmæti þessara kann ana. Slíkt var að sjálfsögðu kannað á sínum tíma og eins og áður sagði hafa þessar kannanir ÆTH nú ÍTH aldrei verði lagðar upp eða til þeirra stofnað sem grunnur að ákæru í dómsmáli með tilheyrandi um stangi eins og ku vera alsiða í venjulegu „löggu og bófastandi“ . Hin ágæta stofnun ITH sem vinnur m.a að velferð hafnfirskrar æsku og forvörnum hefur ekki ákæruvald hvorki í þessu máli né öðrum. Kann anirnar eru því fyrst og fremst gerðar í því skyni að gera al menn­ ingi grein fyrir því hvernig ástandið er raunverulega með kynn ingum á niðurstöðum og í þeim tilfellum þá er bara birtur listi þeirra sem ekki seldu. Niðurstöður eru algerlega óumdeilanlegar og framkvæmd með þeim hætti að við komandi ungmenni njóta full kom innar verndar. Ef menn kjósa að nefna slíkt form kannana „tál beitur“ þá er samhengið af allt öðr um meiði en í lögfræðilegum skilning eins og Sigurður gerir að að al atriði og gæti þá alveg eins með sömu rökum nefnt þá sem starfa að verðlagseftirliti ASÍ tál beitur. Aðalatriðið er það að kannanir sýna fram á það ár eftir ár, með óyggjandi hætti, að framkvæmd á banni við sölu tóbaks til ungmenna er óviðunandi (samkvæmt síðustu könnunum í 20­30% tilfella) þrátt fyrir rúman „15 ára aðlögunartíma“. Það hlýtur því að vera viðfangsefni aðila í verslun að kippa þessu í lag í stað þess að agnúast yfir fram­ kvæmd kannana, eins og að sala komist í betra horf við að afleggja kannanir ? Það er í raun undarlegt að nú enn þann dag í dag eigi ýmsir verslunarmenn í hinu mesta basli með að selja tóbak með sómasam­ leg um hætti. Þetta sýnir a.m.k. þeim sem þetta ritar að það er með öllu vonlaust að ætla verslunum að selja áfengi eins og Samtök versl­ unnar og þjónustu sækja fast um þessar mundir. Þetta mál er alfarið í höndum kaupmanna og besta leiðin er að hætta að selja börnum og ungmennum tóbak þá er könn­ unum einnig sjálfhætt – börnum og ungmennum til heilla og ýmsum verslunarmanninum til gleði. Vildi koma þessu á framfæri þar sem mér er málið að nokkru leiti skylt sem fyrrverandi æskulýðs­ og tóm­ stunda fulltrúi í okkar ágæta bæjar­ félagi. Höfundur er félagsuppeldisfræðingur. Einfaldasta leiðin er að hætta að selja börnum og ungmennum tóbak Árni Guðmundsson Bæjarstjórn Hafnarfjarðar hef­ ur allt frá árinu 2006 unnið sam­ eiginlega að því mikilvæga verk­ efni að byggja upp nýtt hjúkr­ unar heimili í Hafnarfirði sam­ kvæmt samningi við ríkið þar um. Einnig hefur ríkt samstaða um að Sól­ vang ur skuli áfram gegna hlutverki mið­ stöðvar öldrunar þjón­ ustu í bæjarfélaginu. Fulltrúar Sjálfstæðis­ flokks ins hafa í gegn­ um árin tekið fullan þátt í þeim undirbúningi öllum og hvergi hvikað þar frá. Bæjarfulltrúar flokksins hafa átt og eiga enn fulltrúa í þeim ráðum og starfshópum sem um málið fjallar. Ekkert hefur þar komið fram um stefnubreytingu flokks­ ins í þeim efnum. Þótt bæjar­ fulltrúar eins og aðrir bæjarbúar vilji að skoðaðir séu allir kostir í stöðunni, eins og hún blasir við nú árið 2013 og sumir þeirra hafi viðrað það sjónarmið sitt opin­ berlega, hefur engin stefnu­ breyting orðið hér á. Því vekur grein bæjarstjórans fyrr verandi, Lúðvík Geirssonar í Fjarðar­ póstinum í síðustu viku upp spurningarnar: Hvað er í gangi? Hver er að þyrla upp pólitísku moldviðri? Hver er að setja málið í farveg átakastjórn mála? Meirihlutinn tafið byggingu hjúkrunarheimilis Hreinar rangfærslur um sinna­ skipti og svokallaða u­beygju meirihluta bæjarfulltrúa Sjálf­ stæðisflokksins eins og bæjar­ stjórinn fyrrverandi ritar í grein sinni eru algjörlega staðlausir stafir og á undirrituð erfitt með að átta sig á hvað honum gengur til. En honum fyrirgefast slík reiðiskrif í ljósi þeirrar nauð­ varnar sem meirihlutinn er komin í. Það er að vonum erfitt að geta ekki svarað bæjarbúum því hvað verður um Sólvang, ekki síst þeg­ ar litið er til þess hvern­ ig fór fyrir St. Jósefs­ spítala á vakt Samfylk­ ingar og sam starfs­ flokksins Vinstri grænna. Einmitt vegna þess að enn er ekkert fast í hendi varð andi starfsemi á Sólvangi er ekki óeðlilegt að Hafnfirðingar vilji hafa allt uppi á borðum og að allir mögulegir kostir í uppbygg ingu öldrunar þjónustu í bænum séu skoðaðir gaum­ gæfilega. Málið hefur tafist í a.m.k. tvö ár eftir að forval vegna fyrir­ hugaðrar byggingar var úrskurð­ að ólöglegt. Síðan hefur það verið „ofan í skúffu“ bæjarstjóra þar til nú fyrir skemmstu. Nú ver­ andi meirihluti ber því fulla ábyrgð á því að uppbygg ingin er ekki löngu hafin og skiljanlegt að menn séu viðkvæmir fyrir því að vera gagnrýndir fyrir að hafa „dregið lappirnar“ í málinu. En rétt skal vera rétt. Og vona ég að bæjarfulltrúar geti haldið sam­ stöð unni áfram og unnið að þessu mikilvæga máli án póli­ tísks upphlaups og gífuryrða. Höfundur er bæjarfulltrúi. Pólitískt moldviðri og rangfærslur um Sólvangsmálið Rósa Guðbjartsdóttir Kvennakór Hafnarfjarðar heldur sína árlegu vortónleika laugardaginn 4. maí undir yfirskriftinni Litir vorsins. Líkt og aðrir vorboðar sem gleðja okkur með söng sínum hyggst kórinn fagna komu vorsins með litríkri söngdagskrá. Vetrarstarf kórsins hefur verið öflugt og markast af því að í byrjun júní heldur kórinn í tónleikaferðalag til Portoroz og Bled í Slóveníu þar sem hann mun kynna þarlendum sönglist íslenskra kvennakóra. Æfingar hafa verið strangar og vel vandað til lagavals en jafnframt hefur verið haldið úti öflugri fjáröflun með kökubösurum og flóamörkuðum. Vilja kórkonur þakka öllum sem stutt hafa starf kórsins og lagt honum lið við fjáröflunina. Dagskrá vortón­ leikanna að þessu sinni litast að einhverju leyti af væntanlegri utanför kórsins þar sem kirkjuleg tónlist og íslensk þjóðlög verða í forgrunni. Að auki verða á efnisskrá vortón­ leikanna íslensk og erlend söng­ og dægurlög og ættu því allir að finna eitthvað við sitt hæfi. Stjórnandi Kvennakórs Hafn­ ar fjarðar er Erna Guð munds dót­ tir og undirleik annast Antonia Hevesi. Tónleikarnir verða í Há sölum Hafnarfjarðarkirkju og hefjast kl. 16. Miðaverð er 2500 krónur og fást hjá kór­ konum og við innganginn. Gest um er boðið að þiggja kaffi og konfekt í tónleikahléi. Litir vorsins á tónleikum Kvennakórs Hafnarfjarðar Lj ós m .: G uð ni G ís la so n Ástjarnarsókn verður brátt stærsta kirkjusókn í Hafnarfirði en hefur aðeins skúra sem breytt hefur verið í kirkju og þjónar engan veginn þörfum safnað­ arins. Nú horfa menn fram til kirkjubyggingar þó ekkert sé í hendi hvenær bygg ingarfram­ kvæmdir hefjast en á mánudag var lóðar samningur undirritaður þar sem Hafnar fjarðarbær af henti kirkjunni lóð undir kirkju byggingu við hlið Ásvalla­ laugar. Sagði bæjar stjóri við það tilefni að það væri skylda sveitar­ félagsins að leggja til lóð undir kirkju byggingu og nefndi að verð mæti lóðarinnar væri 87 millj ónir kr. Biskup Íslands vísiteraði Ás tjarnarsókn eins og aðrar sókn ir í Hafnarfirði og heimsótti m.a. íþróttafélögin Hauka, SH og Fjörð auk þess að heimsæja Ásvallaskóla og Hraunvalla­ skóla. Fundaði biskupinn með sóknarnefndinni sem m.a. ítrek­ aði óskir um aukinn stuðn ing við þessa stóru sókn og nauð syn þess að fá a.m.k. hálfa stöðu prests til viðbótar til að sinna nauð synlegum verk um. Ástjarnarkirkja fékk 87 millj. kr. lóð Lóðarsamningur undirritaður með biskupinn sem vott Biskup Íslands, sr. Agnes M. Sigurðardóttir, Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir bæjarstjóri, Geir Jónsson formaður sóknar­ nefndar og sr. Kjartan Jónsson prestur kirkjunnar. Bæjarstjóri og formaður sóknarnefndar undirrita lóðarsamninginn. Kirkjan mun standa í glæsilegu hrauninu. Lj ós m .: G uð ni G ís la so n Lj ós m .: G uð ni G ís la so n Lj ós m .: G uð ni G ís la so n

x

Fjarðarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjarðarpósturinn
https://timarit.is/publication/945

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.