Fjarðarpósturinn - 24.04.2013, Page 28
28 www.fjardarposturinn.is Miðvikudagur 24. apríl 2013
1966 - 2011
45
ÁRA
styrkir barna og unglingastarf SH
Sundstund
gefur gull í mund
30 ára
Stofnuð 1983
Viðgerðir
fyrir öll
tryggingafélög
Suðurhrauni 2
Garðabæ
sími 554 4060, fax 554 4061
versus@simnet.is
Bílaspítalinn · Kaplahrauni 1 · Hafnarfirði · Sími: 565 4332 · bsp@bsp.is
tjónaskoðun
TÍMAREIMAR • BREMSUR • BILANAGREINING • OLÍUSKIPTI
ásamt öllum almennum bílaviðgerðum
Tjónaviðgerðir
fyrir öll
tryggingafélögin
Fulltrúar Samfylkingar og
Vinstri grænna í þriggja manna
menningar og ferðamálanefnd
bæjarins leggja til að gengið
verði til viðræðna við Gaflara
leikhúsið um áfram haldandi
samstarf við Hafnar fjarðarbæ
um rekstur leikhúss og leik
listar tengdrar starfsemi. Þau
nýmæli eru að fulltrúarnir vilja
að samið verði við Gaflara
leikhúsið um afnot og umsjón
með húsnæði Bæjar bíós. Full
trúar Samfylkingar og Vinstri
grænna mæla því ekki með
fram lengingu samnings við
Kvikmyndasafn Íslands um
umsjón Bæjarbíós, en leggja
áherslu á safninu verði tryggð
afnot af aðstöðu í húsinu til
sýningarhalds.
Fulltrúi Sjálfstæðisflokksins
sat hjá og lagði fram bókun þar
sem kom fram að fulltrúinn
telur tillöguna ótímabæra þar
sem hvorki liggi fyrir raunhæf
kostnaðaráætlun né sam komu
lag við núverandi notendur
húss ins, Kvikmyndasafn Ís
lands. Nefndin er hins vegar
einhuga um að gengið skuli til
samninga um áframhaldandi
sam starf við Gaflaraleikhúsið
um rekstur leikhúss og leik
listar starfsemi í Hafnarfirði.
Menningar og ferða mála
nefnd vísaði þessari tillögu til
bæjarráðs til umfjöllunar.
Er lendur Sveinsson, for
stöðu maður Kvikmyndasafns
Íslands sagði í samtali við
Fjarð ar póstinn að þessar til
lögur komi honum verulega á
óvart eftir þá fundi sem hann
hafi átt með nefndinni. Sagði
hann sína skoðun að leiklistar
starfsemi fari ekki saman með
kvikmynda sýn ingum og það
hafi verið haft í huga í upphafi.
Bæjarbíó er ekki í góðu
ástandi, húsið lekur, aðstaða
bak sviðs er í mjög löku ástandi.
Staða kvikmyndasýninga er
því í óvissu í Hafnarfirði en
málið á eftir að fara fyrir
bæjarráð í næstu viku.
Vilja taka Bæjarbíó af Kvikmyndasafninu
Vilja þó tryggja safninu áframhaldandi sýningartíma í bíóinu
Þórarinn Guðnason fyrrum forstöðumaður og Erlendur Sveins son
núverandi forstöðumaður Kvikmyndasafns Íslands í Bæjarbíói.
30 milljónir í
gang stéttir
Þar sem álagning fasteigna
skatts var hærri en gert var ráð
fyrir í fjárhagsáætlun 2013
hefur svigrúm myndast í fjár
mögnun við gerð og frágangs
stétta á Völlum 6 og Áslandi II
I og framkvæmdum við þær
verður flýtt inn á þetta ár.
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n