Prentarinn - 01.03.2000, Blaðsíða 3

Prentarinn - 01.03.2000, Blaðsíða 3
VILJIIM VIB Leiðari Þá er komið að aðalfundi í Félagi bókagerðarmanna. Hjá okkur er aðalfundurinn sá fundur sem mest vægi hefur þegar til ákvarðana- töku kemur. Þar eru teknar ákvarðanir um uppbyggingu félagsins og á aðalfundi eru tekn- ar ákvarðanir um lagabreytingar. Allt frá stofnun félagsins 1980 hefur FBM staðið utan heildar- samtaka launafólks, sem hefur þýtt að við höfum staðið einir í kjarabaráttu án samstarfs við önnur verkalýðsfélög. Ætlum við að hafa það þannig áfram eða viljum við gera breytingu á því? A sínum tíma höfnuðu félagsmenn aðild að Alþýðusambandi Islands í alls- herjaratkvæðagreiðslu, en síðan hefur mikið vatn runnið til sjávar og ekkert er eilíft. A undanföm- um ámm hefur mörgum félags- mönnum og þeim er starfa í stjóm og trúnaðarráði verið það æ ljósara að það hefur skaðað félagsmenn og félagið að standa utan heildarsamtaka. Berlega er ljóst við hverja samninga að rödd FBM heyrist hvergi innan hreyfingarinnar, þar sem við emm ekki aðilar að samstarfi innan ASI. Augljóst er að sá sem ekki vill starfa með öðmm getur Jakob Ég Ueröi aö petiingar yxu ekki á trjánum, en þeir yxu af vintiu. Nú leera tnenit aö þeir vaxi í veröbréfum. Hvaö er rétt? Spyr sá settt ekki veit. AHRIF? ekki ætlast til að sá hinn sami taki tillit til okkar óska. Það hefur skaðað okkar hagsmuni meir og meir að standa utan ASÍ. Því verður nú á aðalfundinum lögð fram tillaga um að FBM sæki um aðild að ASÍ og láti á það reyna hvort félagið fær inngöngu. Núverandi lög ASI segja að ekkert félag sem stendur utan landssambanda fái inngöngu, en við látum á það reyna hvort FBM verði samþykkt. Kjarasamningur okkar rann út 31. mars og á undanfömum vikum hafa verið viðræður við atvinnurekendur um nýjan kjara- samning. Þegar þessi pistill er skrifaður hafa verið nokkrir samningafundir er sáralitlu hafa skilað, því svörin hafa verið í hefðbundnum stíl, nei, þetta má athuga, skoða nánar, eða í þessari sérkröfu felst kostnaðarauki sem við treystum okkur ekki til að verða við. Meginkrafa félagsins er að kauptaxtar verði færðir að greiddu kaupi samkvæmt síðustu kjarakönnun ásamt 8% gmnn- kaupshækkun, starfsaldurshækk- anir, hækkun á vaktaálagi og ákvæðið um heimild til að taka upp 7 daga vaktir verði fellt út. Einnig fleiri orlofsdaga, framlag í séreignasjóði lífeyrissjóða, heimild til að taka aukavinnu út sem lfí og fleira. Kaupkrafan er byggð á kjarakönnunum og má því segja að með henni sé ekki verið að hækka kaup heldur viðurkenna raunlaun inn í kaup- taxta og viðurkenna staðreyndir. Mörg prentiðnaðarfyrirtæki em farin að vinna eftir alþjóðlegum stöðlum og samfara því hafa kröfur um hæfni og þekkingu aukist. Starfsfólk hefur mætt þessu með því að endurmennta sig jafnt og þétt. Þetta hefur skilað fyrirtækjunum auknum hagnaði, en félagsmenn hafa ekki fengið sanngjaman hlut í þeim hagnaði. Mjög mikilvægt er að hverjum félagsmanni sé ljóst að enginn árangur næst í kjara- samningum nema með samstöðu félagsmanna. Mars 2000. SÁ Helga Hobbs, ekkja Hafsteins Guðmundssonar, setjara og prentsmiðju- stjóra, fœrði safninu að gjöf, sk\>. ósk Hafsteins, allt fagbókasafn hans, alls um 60 bindi. Margar afþessum bókum eru sígild verk, sem munu nýtast safninu vel íframtíðinni. Sœmundur Ámason t.h. veitti gjöfinni viðtöku ífélagsheimili FBM. PRENTARINN ■ 3 prentnrinn ■ MÁLGAGN FÉLAGS BÓKAGERÐARMANNA Ritnefnd Prentarans: Georg Páll Skúlason, ritstjóri og ábyrgðarmaður. Jakob Viðar Guðmundsson, Kristín Helgadóttir, Sævar Hólm Pétursson, Þorkell S. Hilmarsson. Ábendingar og óskir lesenda um efni í blaðið eru vel þegnar. Leturgerðir ■ Prentaranum eru: Helvitíca Ultra Compness, Stone, Times, Garamond o.fl Blaðið er prentað á 135 g Ikonofix silk. Prentvinnsla: Filmuútkeyrsla: Engin. Prentvél: Heidelberg Quickmaster Dl 46-4 4ra lita. Svansprent ehf. Forsíðan Jón Þór Guðmundsson prentsmið- ur í Prentmet er hönnuður forsíð- unnar Blý. Hún lýsir gamla tíman- um eins og hann sér hann fyrir sér og fossinn í bakgrunninum lýsir því hve tímarnir hafa þróast með gríðarlegum hraða. Einnig ergólfið óendanlegt og táknar það að enn eigum við eftir að fara ótroðnar slóðir um framtíðina sem engan enda tekur. Textinn táknar blýið.

x

Prentarinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Prentarinn
https://timarit.is/publication/952

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.