Prentarinn - 01.03.2000, Blaðsíða 21

Prentarinn - 01.03.2000, Blaðsíða 21
þyrfti því að stofna kvenna-eitt- hvað innan félagsins. Mér var tekið þar eins og einum af oss eða þannig. Þú varst ein afþeitn sem endurvöktu Prentnemafé- lagið 1957, ert m.a. kosin varaformaður. Var gott fé- lagslíf ttieðal prentnema á þessum árutn? Já, það má segja það. Minn ár- gangur var sá fyrsti til að sækja verklegt nám í prentiðnum í iðn- skólanum. I faginu hafði bara verið bóklegt nám áður en þess- ari deild var komið upp með full- tingi prentsmiðjustjóranna til að jafna aðstöðumun lærlinganna sem voru í mjög mismunandi prentsmiðjum. Við vorum um tvo mánuði á vetri í skóla og þótt við þekktumst flest eitthvað áður en þangað kom var farið að ræða um að stofna félag fyrst hópurinn hafði tækifæri til þess - æfa okk- ur í að vera félagslynd, halda ræður og fundi. Þama voru menn eins og Sæmundur Amason og Hrafn Sæmundsson, Finnbjöm Hjartarson, Eyjólfur Sigurðsson og fleiri. Við vomm sautján sem útskrifuðumst saman. Þetta var mjög gaman og ærslast heilmikið en alvaran blandaðist líka inn í því einn úr hópnum dó, það var mjög sorglegt. Svo ferðu að vinna sem sveinn. Ég vann í Hólum í tvö ár sem vélsetjari eftir að ég lauk sveins- próftnu en það þurfti að læra sér- staklega og var lfka betur borgað en að vera handsetjari. Svo fór ég heim að eiga böm og sjá um þau og manninn og heimilið og líkaði það bara vel. Tíminn leið og bömin stækkuðu og þá var ég al- veg viss um að ég myndi ekkert fara í fagið aftur. Nýjar vélar og ný tækni vom að ryðja sér til rúms og allir svo flinkir við að koma texta á strimla og gata- borða. Alls staðar vom komnar fingraliprar stúlkur sem slógu inn texta svo það hvarflaði ekki að mér að fara aftur í prentsmiðju. Þó fór það svo að ég fór í tæpt ár x Edduna og nokkm seinna í Hagprent í nokkur ár, þar vantaði vélsetjara í hálfa stöðu. Seinna vann ég aftur í Eddunni í nokkur ár eftir að fyrirtækið fluttist í Kópavog. Svo ferðu að kenna. í Eddunni vann ég við sams konar tölvu og bókiðnadeild IR hafði keypt en hún var með leiserútkeyrslu sem þá var nýj- ung. Þeim sem kenndi setningu í skólanum, Ólafi Inga, hafði boð- ist staða sem prentsmiðjustjóri hjá DV. Ég réð mig þama til að leysa hann af en hann hafði feng- ið ársleyfi. Svo vildi hann ekki koma aftur en ég ílentist í skólan- um. Ég fór í Kennaraháskólann og lauk þaðan námi 1986 og bætti seinna við norrænu fram- haldsnámi fyrir verkmenntakenn- ara sem var mjög skemmtilegt. Eins og við vitum þá hefur engin iðngrein tekið eins miklum breyt- ingum á undanfömum áratugum og prentiðnin. Hvernig er að vera kennari á svona tttiklum umbrota- tímum? Þetta er náttúrulega spennandi og síbreytilegt og það þarf alltaf að vera að lesa og fylgjast með því sem er að gerast. Það má segja að það séu miklar breyting- ar í öllum iðngreinum. Ætli það séu ekki bara málaragreinin og hárgreiðslan sem ekki em komn- ar í tölvur? Annars er kennsla ekki lengur þannig að kennarinn sitji á palli og horfi yfir nemend- ur og ausi sínum fróðleik inn í þeirra höfuð í einstefnumiðlun heldur má segja að hver miðli öðmm og kennarinn setur rammann og stýringuna utan um ferlið. Breytingamar gerast svo hratt að ef einhver fréttir eitthvað eða lærir eitthvað nýtt og gagn- legt verður hann að miðla því strax, sama hvort það er nemandi eða kennari eða einhver utanað- komandi. Hvernig hefur skólinn stað- ið sig, hefur hann fengið þau tœki sem hattn hefur PRENTARINN ■ 21 Þóra Elfa Björnsson prentsmíða- kennari þurft eða hefur hann liðið fyrir fjárskort? Að sumu leyti, já, og sumu leyti ekki. Það er ekki allt fengið með peningum en samt hefði mátt endumýja sumt örar, en það eru margar vélar þarna alveg ágætar. Heldur skólinn alveg í við það sem er að gerast? Skólinn getur aldrei átt öll tæki sem em f gangi enda engin ástæða til þess. Hann getur hins vegar þjálfað fólk í því að vera vakandi í því að læra meira og vera viðbúið því að þurfa að bæta við sig í sífellu og bregðast við breytingum á jákvæðan hátt fyrir sjálft sig og fyrirtækið. Það má ekki gleyma uppeldislegu gildi skólans, það er ekki bara verið að fást við forrit og hugtök og verk- efni heldur fer fram bein og óbein mótun einstaklingsins til vinnu og helst einnig vellíðunar í ákveðinni iðngrein. Hvernig er ásókn nýnetna í þetta ttátn?

x

Prentarinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Prentarinn
https://timarit.is/publication/952

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.