Prentarinn - 01.03.2000, Blaðsíða 25
eykur á stöðuspennu
framhandleggsvöðva.
Við góða samhæfingu
verða hreyfingar
afslappaðri og líkams-
staða betri. Því er hægt
að hugsa sér að góð
fingrasetning minnki
lrkumar á álagsein-
kennum við tölvu-
vinnu. Algengt er að
ekki sé nægilegt rými
fyrir músina við hlið-
ina á lyklaborðinu og
því lendir hún oft fyrir
ofan það eða til hliðar
í töluverðri fjarlægð.
Starfsmaðurinn nær
ekki að vinna í af-
slappaðri stöðu með
axlir og handleggi og
stöðug spenna verður í
herða- og handleggja-
vöðvum sem með tím-
stöðu en þegar staðið er. Þetta
ætti að vera okkur hvatning til að
standa reglulega upp úr stólnum
og hreyfa okkur. Aukið framboð
er orðið á borðum sem hægt er
að standa við við tölvuvinnu og
gefa þannig starfsmanni mögu-
leika á að standa og sitja til skipt-
is við vinnu sína. Þessi gerð
tölvuborða á örugglega eftir að
verða æ algengari í ffamtíðinni
og er það jákvætt.
Lýsing
Þegar unnið er við tölvu er
mikilvægt að huga að lýsingu.
Staðsetja skal skjáinn þannig að
birta frá gluggum eða ljósum
skíni ekki beint í augun eða end-
urkastist frá skjánum. Betra er að
hafa ljósan skjá og er þá hæfileg
loftlýsing um 500-700 lux sem
henta einnig við venjulega skrif-
borðsvinnu. Röng birtuskilyrði
geta leitt til augnþreytu, höfuð-
verkja eða vöðvaverkja í háls- og
herðavöðvum.
Fjölbreytni er mikilvæg
Þar sem tölvuvinna getur verið
bæði líkamlega og andlega erfið
er mikilvægt að stuðla að góðu
vinnuumhverfi, góðum vinnu-
stellingum en ekki síst fjöl-
breyttum verkefnum og góðum
starfsanda. Víst er að það dregur
verulega úr álagseinkennum. Oft
reynist erfitt að greina á milli or-
saka álags og því ber að stuðla að
öllum þáttum jafnt til að gera
vinnustaðinn að góðum og
heilsusamlegum stað.
Ástæða er til að hvetja vinnu-
veitendur og starfsmenn til að
taka höndum saman og koma á
markvissri vinnuvemdarstefnu í
sínu fyrirtæki og finna leiðir til
að bæta líðan og heilsu starfs-
manna. Sýnt hefur verið að ár-
angurinn verður heilbrigðari og
ánægðari starfsmenn, færri fjar-
vistir og betri afkoma fyrirtækja.
Vísað er til reglugerðar um
skjávinnu nr. 498 frá 1994 og
leiðbeiningaritsins Vinna við
tölvu sem gefíð var út af Vinnu-
eftirliti ríkisins 1995 en þar er
tekið á þeim þáttum er lúta að
vinnu við tölvu.
anum getur leitt til
bólgu í vöðvum og
sinum, oft er talað um
„músaveiki“.
Vegna uppbyggingar lykla-
borðsins er oft heppilegra að hafa
músina vinstra megin við
hnappaborðið, þannig næst af-
slappaðri staða á handlegg. Ef
mikið er unnið með tölvumús er
æskilegt að nota vinstri og hægri
höndina til skiptis. Hægt er að
minnka músavinnuna mikið með
því að temja sér notkun flýti-
lykla.
Vinnustóllinn þarf að vera auð-
stillanlegur. Það er á ábyrgð not-
andans að læra að stilla vinnu-
stólinn sinn og nýta sér þá mögu-
leika sem stóllinn gefur til fjöl-
breyttra stellinga. Góður vinnu-
stóll nýtist best ef notandinn still-
ir hann oft á dag. Stóllinn þarf að
gefa góðan stuðning við bak.
Hann þarf að vera með hæðar-
stillanlegu baki og setu. Æskilegt
er að geta stillt bakið fram og aft-
ur og hallastillt setuna. Stundum
getur verið nauðsynlegt að nota
fótskemil til hvíldar eða vegna
þess að starfsmaðurinn er lágvax-
inn. Mikil kyrrseta reynir mikið á
bakið. Sýnt hefur verið fram á að
þrýstingur í neðstu brjóskþófum
mjóbaks er mun meiri í sitjandi
prentorinn
El MÁLGAGN FÉLAGS BOKAGERÐARMANNA
Á NETiniU
SLÚÐIIU ER:
www.fbin.is
Sfélag
bókagerðar-
manna
I I 4 4 0 0 *
1*4*000
* 4 4 0 0 m m
4 0 0 m m m m
0 0 0 m m m s
0 m • m s s s
■ ■ a * s s \
g print media messe
drupa
DRUPA 2000
Drupa, stærsta og viða-
mesta prentsýning í heimin-
um, verður haldin í Dús-
seldorf dagana 18.-31. maí
n.k. Prentarinn verður að
sjálfsögðu á staðnum og
mun skýra frá því helsta í
máli og myndum. Einnig er
rétt að benda á Netið fyrir
áhugasama, en þar er fjöld-
inn allur af heimasfðum sem
fjalla um sýninguna á einn
eða annan hátt.
PRENTARINN ■ 25