Prentarinn - 01.03.2000, Blaðsíða 6
VISTVÆN PRENTSMIDJA
jakob Viðar
Cuðmundsson
NORRÆNA
UMHVERFIS-
MERKIÐ
FYRST
ÍSLENSKRA
PRENT-
SMIÐJA
Þann 17. febrúar s.l. veitti stjóm
umhverfismerkjaráðs prentsmiðj-
unni GuðjónÓ norræna umhverf-
ismerkið, fyrstri íslenskra prent-
smiðja, og afhenti Siv Friðleifs-
dóttir umhverfisráðherra stjóm-
endum hennar viðurkenningar-
skjal af því tilefni. Svanurinn, en
svo nefnist hið norræna unthverf-
ismerki veitir þeim rétt til að
merkja allar vömr sínar með
þessu merki.
Lúðrasveitin Svanurinn kyrjaði á tröppum prentsmiðjunnar í 9 gráða
frosti í tilefni dagsins.
Siv Friðleifsdóttir
umhveifisráðherra
afhendir eigendum
GuðjónÓ skírteinið,
f.v. Þórleifur V.
Friðriksson, Sigurður
Þorláksson og Ólafur
Stolzenwald.
En hvað þýðir þetta? Markmið
norræna umhverfismerkisins er að
veita neytendum leiðsögn við val
á vömm og þjónustu, sem skapa
minnsta hættu fyrir umhverfið, úr
því mikla úrvali sem er á mark-
aðnum, og hvetja til vömþróunar
er byggist á umhverfisvemd. A
fyrirtækin em settar miklar kröfur
og í þessu tilfelli, þar sem um
prentsmiðju er að ræða, vom sett-
ar fram kröfur um losun á þung-
málmum við filmu- og prentfram-
leiðslu. Strangar reglur em settar
varðandi notkun á prentlitum og
hreinsiefnum þ.e. þau mega ekki
innihalda rokgjöm leysiefni né
þungmálma. Einnig er sett tak-
mörkun á notkun leysiefna og
önnur hjálparefni við framleiðslu
prentaðrar vöm. Allan úrgang
sem myndast við framleiðslu
prentaðrar vöm þarf að flokka og
koma í endurvinnslu eða rétta leið
fyrir förgun. Prentsmiðjan þarf að
halda nákvæmt bókhald yfir alla
þætti sem notaðir em í prentferl-
inum, bæði innkaup á hráefnum,
notkun á orku og vatni og öllum
úrgangsefnum sem prentsmiðjan
sendir frá sér. Hlutfallið milli úr-
gangsefna og framleiðslu vömnn-
ar verður einnig að vera innan
ákveðinna marka og prentsmiðj-
unni ber að minnka það hlutfall af
úrgangsefnum sem fer til förgun-
ar.
Að sögn Ólafs Stolzenwald
prentsmiðjustjóra hjá GuðjónÓ þá
voru stærstu þættimir hjá þeim að
hreinsa út öll jarðolíuefni, þannig
að nú em eingöngu notuð hjá
þeim jurtafarvar og jurtahreinsi-
efni og allur pappír sem þeir nota
er svansmerktur sem þýðir að
hann er framleiddur undir sér-
stökum staðli þar sem klórmagn í
honum er í algjöru lágmarki og
myllumar sem hann framleiða
verða að planta þremur til fimm
trjám fyrir hvert eitt sem þær
fella. „Einnig má nefna að allt
okkar efni má endurvinna eða því
má eyða á vistvænan hátt. Þessu
er fylgt eftir með nákvæmri
skýrslugerð um hvað fer frá okk-
ur og hvað kemur inn í hús. Við
þurfum að gera grein fyrir spilli-
efnunum, öllu því sorpi sem við
látum frá okkur. Við þurfum að
grein fyrir hvað við notum mikið
alkohol, hreinsiefni, og jurtaolíur.
Það er tekið á öllum þáttum og
má segja að það sé búið að nafla-
skoða hvert einasta atriði. Þessi
skýrslugerð gefur okkur yfirsýn
yfir efnin og við reynum að
minnka óæskileg efni eins mikið
og hægt er. Hollustuvemd ríkisins
hefur aðgang að þessum skýrslum
hvenær sem er. Síðast en ekki síst
má geta um viðhorf starfsfólksins,
en það sýndi þessu mikinn áhuga
og skilning enda þess hagur,
miklu betra andrúmsloft, bæði
andlega og líkamlega og eins er,
að þegar fólk fer að pæla alvar-
lega í umhverfismálum þá fer það
að líta á það sem borgaralega
skyldu sína að ganga vel um um-
hverfið," sagði Ólafur að lokum.
Það er vissulega ástæða til að
óska stjóm og starfsmönnum
GuðjónsÓ til hamingju með
þennan merka áfanga. Þeir eru
komnir í fremstu röð í umhverfis-
málum hér á landi. I ljósi þess að
umræða og aðgerðir í umhverfis-
málum aukast sífellt þá mun
Prentarinn fylgjast með og fjalla
um og vonandi verða þær greinar
sem flestar.
6 ■ PRENTARINN