Prentarinn - 01.03.2000, Side 7
Límmiðaprentun
Árið 1999 var viðburðaríkt ár hjá
Miðaprentun. Við fórum á prent-
sýningu í Birmingham 1998 til
að kynna okkur nýjungar á sviði
prentunar almennt, og sérstaklega
til að skoða límmiðaprentvél sem
kom til greina að kaupa. Vélin
var mæld og skoðuð gaumgæfi-
lega og kom þá í ljós að húsnæði
fyrirtækisins var ekki nógu stórt.
Vélin í heild er 15 metrar, og í
viðbót þurfti að minnsta kosti 5
metra. En vélin var keypt!
í janúar 1999 var þessi vél,
sem er ein af bestu vélum í lím-
miðaprentun í heiminum, sett af
stað. Hún er af gerðinni Nilpeter
B-280, og um er að ræða sex-lita
UV-vél, með lökkun, flat- og
hverfiprentunarstönsun. Hún er
að sjálfsögðu með sjálfvirkri inn-
stillingu á öllum prentstöðvum,
þ.e.a.s lita-, lakk- og stansastöðv-
um. Hámarksafköst vélarinnar
eru ca. 120 metrar á mínútu, í allt
að sex litum, auk lökkunar. Hægt
er að stansa strenginn í fjórum
stöðvum í einu, hvort sem er í
undir- eða yfirborðann.
Vélin býður upp á afrafmögn-
un á plastefni, örkun, tölvugötun,
viðsnúning til að prenta á undir-
borðann ef þarf, og sérstaka
spamaðaraðferð, sem gerir henni
kleift að nota í hverju tilfelli
minnsm breidd á streng, til að
sem minnst af pappír fari til spill-
is.
Vélin er mjög fljótleg og þægi-
leg í innstillingu, sem einnig
sparar pappír. Fínasti línurasti
sem við höfum prentað til þessa
er 150 lfnur á tommu og skilaði
hún því ntjög vel af sér. Enn-
fremur er hægt að bæta við fólíu-
verki, silkiprentunarstöð og vid-
eoskermi til að fylgjast með
prentun vegna mikils hraða og
áætlað er að bæta því á vélina
innan skamms.
Vélin var keypt og sett upp í
nýju húsnæði að Vagnhöfða 7.1
upphafi var vélinni komið fyrir
við endann á blaðaprentvél í eigu
Odda, sem var þar fyrir, og byrj-
að að prenta. Þama möluðu þær
saman í nokkrar vikur þar til
blaðaprentvélin var fjarlægð úr
húsnæðinu og send á vit ævintýr-
anna í annað ónefnt land úti í
heimi.
Þá tók við heljarmikil vinna
við að undirbúa húsnæðið og
flytja fyrirtækið af Höfðabakka á
Vagnhöfða. I leiðinni var ákveðið
að stækka filmudeild með filmu-
útkeyrsluvél sem við höfðum
ekki áður, og nýjum tölvubúnaði.
Vélakosturinn sem fluttur var
vom tvær fjögurra lita prentvélar
og ein fjögurra lita með gylling-
arfólíu. Einnig frágangsvélar fyrir
pökkun, og að sjálfsögðu skrif-
stofur og lager. Allar þessar vélar
em í notkun í dag.
Starfsfólk Miðaprentunar vann
markvisst að því að gera húsnæð-
ið hlýlegt og skemmtilegt, lagði
nótt við dag og á heiður skilinn
fyrir dugnað sinn við þetta erfiða
verkefni. Geta má þess, að fram-
leiðsla stöðvaðist ekki einn dag
af völdum flutninganna.
Starfsfólk og fyrirtæki hafa
lagt sig fram við að þjóna við-
skiptavinum sínum af mikilli
alúð, og hafa fengið orð fyrir
fljóta, góða og vandaða þjónustu.
Nú er fyrirtækið á hraðri upp-
leið á sínu sviði, með góðar hug-
myndir og öfiugt starfsfólk.
Starfsfólk Miðaprentunar ehf.
hefur með sér starfsmannafélag,
þó ekki sé það fjölmennt. Félagið
nefnist Gleðigjafinn, og starfsemi
þess er með hefðbundnu sniði,
árlegar árshátíðir og leikhúsferð-
ir. Einnig kemur fólk saman til að
gleðjast af margvíslegu öðm til-
efni. Nokkrir starfsmanna hafa
fjalla- og jöklaferðir að áhuga-
máli, og hafa farið saman margar
slíkar ferðir.
PRENTARINN ■ 7