Prentarinn - 01.12.2000, Síða 3
Hvernig sjáum við fyrir okkur
framtíð félagsins á þeirri nýju
öld sem framundan er, nú þegar
við höfum starfað í eina öld og
saga okkar hefur verið færð til
bókar? Hver verður sagan eftir
önnur 100 ár eða verður engin
saga?
Við í Félagi bókagerðarmanna
stöndum í dag við þröskuld nýrra
tíma í tæknimálum, segja má að
við horfum fram á nýja og gjör-
breytta veröld, þar sem tækni í
okkar iðngreinum fleygir fram
með ógnarhraða og ef við gætum
okkar ekki með því að höndla
tæknina á hverjum tíma verðum
við skilin eftir og hverfum, en
aðrir taka við. FBM er nú að
leggja lokahönd, ásamt Starfs-
greinaráði í upplýsinga- og fjöl-
miðlagreinum, á nýja leið í
grunnnámi okkar iðngreina sem
við vonum að verði til þess að
okkar starfsgreinar lifi áfram og
við höldum velli.
En nýjar námsleiðir í upplýs-
inga- og fjölmiðlagreinum verða
tilbúnar þann 1. mars 2001.
A undanförnum árum höfum
við lagt ofuráherslu á það grund-
vallaratriði sem er endurmenntun-
in og þar höfum við fengið mik-
inn stuðning frá vinnuveitendum í
prentiðnaði. Nú þegar við höfum
tekið upp samstarf við Rafiðnað-
arskólann með stofnun Marg-
miðlunarskólans væntum við
þess, að hann verði einn af þeim
burðarásum, ásamt Prenttækni-
stofnun, er hjálpi okkur til að
halda velli í tæknimálum.
Einnig sjáum við að hjá félög-
um okkar á hinum Norðurlöndun-
um sem og annars staðar í Evr-
ópu eru það menntamálin, ásamt
endurmenntuninni, sem brenna
heitast á félögunum og allir eru
að huga að nýjum leiðum í sam-
starfi við önnur félög, m.a. til að
halda velli í nýju tækniumhverfi.
En hvað með annað samstarf?
Sjáum við það fyrir okkur að fé-
lagið starfi áfram, inn á næstu
öld, án meira samstarfs við önnur
félög? Er áhugi fyrir því að at-
huga nánar samstarf innan ASI?
Við stofnuðum Fjölmiðlasam-
bandið fyrir tveim árum og bund-
um vonir við að þar myndi takast
gott og opið samstarf við þau fé-
lög er voru með í þeirri stofnun,
en eftir síðasta aðalfund þess get
ég ekki séð að áhuginn þar sé
mjög mikill. Að minnsta kosti
voru aðeins fjögur félög er sendu
fulltrúa á þann fund og af 13 full-
trúum sem mættu voru 7 frá
FBM. Ljóst er að aðildarfélögin
hafa mismikinn áhuga á sam-
starfi. Við skulum nú samt ekki
örvænta. Sjáum hvað næsta ár ber
í skauti sér. Þá má geta þess að
vinnuveitendur hafa stofnað Sam-
tök atvinnulífsins og öll verka-
lýðshreyfingin er að semja við
sömu aðila, eina og sömu samn-
inganefnd. Einnig sjáum við sam-
þjöppun fyrirtækja í prentiðnaði.
En við höfum séð það í undan-
fömum samningum að það eru
tvö fyrirtæki sem hafa ofurvald á
öðrum vinnuveitendum í prent-
iðnaði.
Stjóm og trúnaðarráð FBM
leggja til að við athugum alla
möguleika sem fyrir hendi eru og
á síðasta fundi í trúnaðarráði var
samþykkt eftirfarandi tillaga:
Stofnaður verði vinnuhópur innan
trúnaðarráðs og stjórnar, er hafi
það verkefni að kanna framtíðar-
hlutverk FBM.
A FBM að starfa áfram sem
landsfélag (óbreytt)? - Hvaða
möguleikar eru á samstarfi við
önnur félög eða sambönd? -
Nefndin hafi það hlutverk að
skoða alla möguleika - Hver er
besta leiðin fyrir félagið og fé-
lagsmenn með tilliti til nýrrar
tækni og þróunar í grafísku um-
hverfi? - Nefndin skili áliti fyrir
næsta aðalfund.
Spennandi verður að sjá hvort
eða hvemig nefndin kemst að
niðurstöðu. Það sjáum við á
næsta aðalfundi FBM.
Des. 2000. SÁ
prentarmn
■ mAlgagn félags bókagerðarmanna
Ritnefnd Prentarans:
Georg Páll Skúlason,
ritstjóri og ábyrgðarmaður.
Jakob Viðar Guðmundsson,
Kristín Helgadóttir,
Sævar Hólm Pétursson,
Þorkell S. Hilmarsson.
Ábendingar og óskir
lesenda um efni í blaðið
eru vel þegnar.
Leturgerðir í
Prentaranum eru:
Helvitica Ultra Compress,
Stone, Times, Garamond o.fl
Blaðið er prentað á 135 g
Ikonofix silk.
Prentvinnsla:
Filmuútkeyrsla: Scitex
Prentvél: Heidelberg
Speedmaster 4ra lita.
Svansprent ehf.
Forsíðan
1841 - Gamli tíminn og nýi tíminn.
Titilsiða úr Biblíu, prentuð í Viðeyjar-
klaustri árið 1841.1440 síðna bók
sem kemst fyrir á einum geisladisk.
Sæmundur Haraldsson, bókagerðar-
maður í Hvítu Örkinni, er hönnuður
forsíðunnar. Forsíðan var hans
framlag í forsíðukeppni Prentarans
og var meðal fjögurra verka sem
valin voru af dómnefnd til birtingar.
PRENTARINN ■ 3