Verktækni - 01.08.2002, Qupperneq 8
Byggjum við hóq(j vel?
Pallborðsumræður. F.v. Jóhann Einarsson, Ótafur Hjátmarsson, Eyjótfur Gunnarsson, Rúnar Gunnarsson,
Óskar Vatdimarsson og Hjatti Sigmundsson. Einnig voru við paltborðið þeir Július Sótnes, Hetgi S.
Gunnarsson og Björn Karlsson.
Var yfirskrift ráðstefnu á vegum Verk-
fræðingafélags fslands, Tæknifræð-
ingafélags íslands og Arkitektafélags
íslands sem haldin var 10. október s.l.
Þar var fjallað um samskipti og störf
fagaðila og annarra sem koma að bygg-
ingu og hönnun húsa og hvers konar
mannvirkja með tilliti til veðurálags,
brunavarna, hljóðvistar og gæða.
Umskipti
Júlíus Sólnes prófessor var ráðstefnustjóri
og flutti inngangserindi um stöðu máia
og tilgang ráðstefnunnar. Hann sagði
fyrstu áratugi eftirstríðsáranna hafa ein-
kennst af forljótum húsum og heilu
hverfin í Reykjavík einkennist af hug-
myndafátækt og vanþekkingu. Hvað
varðar tæknilega hönnun sagði hann
lengi hafa ríkt mikla teikningafælni og
víða úti á landi hefðu engar burðarþols-
eða lagnateikningar verið gerðar. Smám
saman hefði krafan um betri teikningar
tekið völdin, m.a. vegna útboða og bylt-
ing varð með tilkomu tölvuteikninga.
íslendingar urðu ástfangnir af stein-
steypu en vinnubrögðin voru oft óvönduð
sem leiddi til lélegrar endingar húsa og
mikilla viðgerða. Með tímanum varð
breyting þar á með betri hönnun og eftir-
liti. Júlíus telur að áratugurinn 1990-2000
hafi skipt sköpum í þessum efnum og það
megi eflaust þakka vaxandi fjölda vel
menntaðra arkitekta, verkfræðinga, tækni-
fræðinga og iðnaðarmanna.
Sjónarmið verkkaupa
ÓskarValdimarsson, forstjóri Fram-
kvæmdasýslu ríkisins kynnti sjónarmið
verkkaupa. Að hans mati er heildarráðgjöf
besta lausnin. Það þýðir að verkkaupi set-
ur fram ítarlega kröfulýsingu og hönnun-
arhópar, sem í eru m.a. arkitektar og verk-
fræðingar, bjóða í verkin sem heild og
setja fram sínar lausnir. Þá mun Fram-
kvæmdasýslan gera kröfu um að þeir sem
vinna verk fyrir stofnunina hafi viðurkennt
gæðakerfi og vinni samkvæmt gæðastöðl-
um FSR. Óskar nefndi í þessu sambandi
aukna samvinnu og hugsanlega samruna
verkfræðistofa og arkitektastofa í meira
mæli en hingað til hefur verið.
Framkvæmdasýslan mun leggja meiri
áherslu en áður á að kanna líftímakostn-
að bygginga.Við einkaframkvæmdir er
sjálfkrafa litið til þessa kostnaðar og hann
metinn en hjá hinu opinbera hefur þessi
þáttur verið vanræktur. Þar er áhersla
lögð á að stofnkostnaður bygginga sé sem
lægstur en ekki er litið til kostnaðar
vegna rekstrar og viðhalds. Opinberar
byggingar grotna niður enda er viðhald
þeirra ávallt fyrst skorið niður við gerð
fjárlaga. Þá kom fram í máli Óskars að
meiri áhersla verður lögð á vistvæn bygg-
ingarefni og meðhöndlun byggingarúr-
gangs en þessir þættir hafa verið van-
ræktir hér á landi.
Einangrun og hljóðvist
Jóhann Einarsson arkitekt FAÍ sagði
breytingar á byggingartæknilegum að-
ferðum mjög hægfara. Hvað varðar
klæðningar húsa að utanverðu vegi
markaðsverðið líklega þyngst en einnig
viðhorfið í iðninni því erfitt sé að breyta
um verklag og læra aftur það sem áður
var gert samkvæmt hefðinni.
Skermun utan við eiginlega klæðningu
húsa, til dæmis á utanáliggjandi stiga-
ganga, hefur rutt sér til rúms. Nefna má að
við tvo leikskóla hafa verið gerðar tilraunir
með tjöld sem ætlað er að standa til fram-
búðar. Húsin eru þá veggir þeirra rýma
sem mynduð eru að þremur fjórðu hlutum
en einn fjórði opinn.Yfir þetta er festur
vatnsþéttur dúkur án allra þéttinga og er
þetta rými ekki ólíkt því að standa í skóg-
arsal með þéttu laufþaki.
Jóhann sagði hljóðvist hafa verið van-
ræktan þátt hérlendis. Hann sagði hinn al-
menna íbúðarkaupanda hafa búið sér til
vissa sáttalógík sem gengur út að að fjölbýli
er eins konar stökkpallur sem ekki á að
kosta miklu til, því næst verður flutt í einbýli
og þá eru þessi vandamál úr sögunni. Eftir
er á markaðnum annars flokks húsnæði
sem erfitt er að bæta og hefur fengið á sig
neikvæða mynd. - Staðreyndin er sú að stór
hluti fólks býr í þessum blokkum til æviloka.
Jóhann rakti síðan hvernig unnið var að
hönnun hljóðvistar við hús íslenskrar
erfðagreiningar. Við fyrirspurnir kom fram
að kostnaður vegna þessa var 1-2%, eða
um 30 milljónir, af um þriggja milljarða
heildarkostnaði við bygginguna.