Verktækni - 01.09.2005, Blaðsíða 2
FRAMKVÆMDIR OG
FRAMKVÆMDASTJÓRNUN
NÁMSGREINAR
Stjórnun framkvæmda og áætlanagerð
Verkefnastjórnun
Fasteignastjórnun
Útboð, útboðsform og verksamningar
Útboðs- og verktakaréttur
Áhættugreining og áhættustjórnun
Kostnaðarfræði
Aðgerðagreining, hermun og bestun
Vöru- og aðfangastjórnun, greining ferla
Fjármál og rekstrarstjórnun
Vinnusálfræði og mannauðsstjórnun
Valnámskeið úr öðrum deildum HR
Meistaraprófsverkefni
MANNVIRKI OG MANNVIRKJAGERÐ
NÁMSGREINAR
Grundvallaratriði mannvirkjagerðar - frá
hugmynd til hönnunar
Form og fegurð - samspil arkitektúrs og
burðarþolshönnunar
Reiknisleg hönnun mannvirkja
Efnisfræði steinsteypu
Hjálpartæki hönnunar - tölvulíkön og
mannsheilinn
Eðlisfræði bygginga
Öryggis- og álagsforsendur
Jarðtækni og grundun
Burðarvirki og efnisval
Virðisgreining
Valnámskeið úr öðrum deildum HR
Meistaraprófsverkefni
FAGSTJÓRN
Forstöðumaður meistaranáms er Ingunn
Sæmundsdóttir verkfræðingur Dipl.lng
og dósent við HR. Formaður fagstjórnar
er Ríkharður Kristjánsson verkfræðingur
Dr.lng. í fagstjórn námsins sitja, auk þeirra,
Kolþeinn Kolbeinsson verkfræðingur MSc,
Sigfús Jónsson landafræðingur PhD, Ólafur
Wallevik verkfræðingur Dr.lng og Guðni A.
Jóhannesson verkfræðingur PhD prófessor
við KTH (Stokkhólmi.
V
HÁSKÓLINN í REYKJAVlK
REYKJAVÍK UNIVERSITY
OFANLEITI 2,103 REYKJAVlK • HÖFÐABAKKA 9,110 REYKJAVlK
SÍMI: 599 6200 www.ru.is
Háskólinn í Reykjavík svarar kröfum um aukna
tæknimenntun með því að bjóða upp á framhalds-
nám til MSc prófs fyrir þá sem hafa lokið BSc prófi
í byggingartæknifræði eða byggingarverkfræði.
Lögð er áhersla á:
Hagnýtt nám og hagnýtar rannsóknir í þágu atvinnulífsins, í samstarfi
við fyrirtæki og stofnanir á fagsviðinu.
Kennslufræðilega nálgun sem gerir nemendum kleift að setja sig hratt
inn í fjölbreytt verkefni og eykur færni þeirra til þverfaglegs samstarfs.
Alþjóðlegt nám í samstarfi við valda erlenda háskóla.
Þverfaglegt nám í samstarfi við lagadeild og viðskiptadeild Háskólans
í Reykjavík.
í meistaranáminu verða tvö megin áherslusvið:
• Framkvæmdir og framkvæmdastjórnun
• Mannvirki og mannvirkjagerð
Nánari upplýsingar á www.ru.is