Dagfari - 01.10.2000, Síða 3
Þótt mannkyninu hafi einhvem veginn tekist að halda aftur af
bardagagleði stríðsherra sem gæta kjamorkusprengna er ekki friðsamlegt
um að litast í heiminum. í næsta nágrenni við okkur, á Norður-írlandi, er
barist hatrammri baráttu fyrir friði; margir fagrir fætur þar, og sunnar í
álfunni, í ríkjum fyrrum Júgóslavíu, sitja menn enn uppi með
ófriðardrauginn sem vakinn var upp fyrir bráðum tíu ámm síðan. Norður í
Téténíu gráta mæður böm og böm mæður og suður í Sýrlandi er til fólk á
mínum aldri og eldra sem aldrei hefur búið annars staðar en í
flóttamannabúðum.
Þegar hugurinn leitar til þessara staða getur maður verið ánægður
að vera fæddur hér þar sem menn karpa einkum við nágrannaríkin um físk.
En sem friðsælli velmegunarþjóð ber okkur skylda til að hugsa til þeirra
sem þurfa að flýja heimaland sitt og taka vel á móti öllum þeim sem
hingað leita. íslensk menning auðgast við þá fjölbreytni sem fólk frá
öðmm menningarsvæðum flytur með sér og mannlífið verður litríkara. Ég
veit að þið emð öll sammála mér en því miður ber æ meira á málflutningi
þeirra sem ranglega kalla sig íslenska þjóðemissinna og slíkan málflutning
verður einfaldlega að kæfa í fæðingu því hann er mannfjandsamlegur. Með
því leggjum við lítið lóð á vogarskálar friðar í heiminum og friðsælla
mannlífs. Eins og við gemm með því að safnast hér saman ár hvert og
halda á lofti minningunni um kjamorkueldanna í Hiroshima og Nagasaki
fyrir réttum 55 ámm síðan.
Eftir skamma stund verður Tjömin alsett litlum ljósum sem em
tákn fyrir fómarlömb þess atburðar sem við minnumst hér í kvöld. Einnig
má líta á þau sem tákn fyrir þá einstaklinga út um allan heim sem búa við
ófrið í landinu sínu. Og svo geta þau táknað venjulegar manneskjur langt í
burtu frá öllum stríðsátökum sem gera það sem í þeirra valdi stendur til að
bæta mannlífið og halda á lofti þeim mistökum sem gerð hafa verið svo
þau verði aldrei, aldrei, endurtekin. Og þeir sem em svo lánsamir að hafa
gengið hingað í kvöld geta ánægðir baðað sína friðarfætur þegar heim er
komið!
Góða nótt.
3